Fréttir

true

Auka innlausnardagur fyrir greiðslumark í sauðfé

Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að haldinn verður auka innlausnarmarkaður með greiðslumark í sauðfé nú í desember. Markaðurinn er haldinn að tillögu Landssamtaka sauðfjárbænda um að auka greiðslumark á markaði fyrir sauðfjárbændur. Aðgerðin miðar að því að jafna stöðu bænda innan kerfisins þar sem greiðslumarki verður beint til hópa sem framleiða með minnstum opinberum stuðningi. Á markaðnum…Lesa meira

true

Gjafaleikur í gangi í Hyrnutorgi alla afmælisvikuna

Verslanir og þjónustuaðilar í Hyrnutorgi bjóða viðskiptavinum sínum að taka þátt í gjafaleik í tilefni 20 ára afmælis hússins. Hefst hann sjálfan afmælisdaginn, fimmtudaginn 26. nóvember. Viðskiptavinir skrifa einfaldlega nafn og símanúmer á miða í hverri verslun fyrir sig og freista um leið gæfunnar. Dregin verða út nöfn heppinna viðskiptavina föstudaginn 4. desember þar sem…Lesa meira

true

Stafræn vinnuvélaskírteini tekin í notkun

Ný stafræn vinnuvélaskírteini voru tekin í gagnið í vikunni. Sömuleiðis stafræn ADR-réttindi. Þessi skírteini eru fyrir alla sem eru með íslensk ADR- og/eða vinnuvélaréttindi og eiga snjallsíma, en yfir 35.000 manns eru með gild vinnuvélaréttindi hér á landi. Skírteinin sanna fyrir lögreglu að stjórnandi ökutækis sé með gild ADR- eða vinnuvélaréttindi. Í véla- og fyrirtækjaeftirliti…Lesa meira

true

Kallað eftir tilnefningum til verðlauna Félags kvenna í atvinnulífinu

„Hvaða konur vilt þú heiðra á FKA viðurkenningarhátíðinni? Opið er fyrir tilnefningar,“ segir í tilkynningu frá Félagi kvenna í atvinnulífinu. „Niðurtalningin er hafin fyrir hátíð FKA þar sem veittar verða viðurkenningar til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Mikilvægt er að fá á blað nöfn ólíkra kvenna af öllu landinu,…Lesa meira

true

Minningartónleikar á hundrað ára ártíð Sigfúsar Halldórssonar

Þann 7. september síðastliðin voru liðin 100 ár frá fæðingu tónskáldsins ástsæla Sigfúsar Halldórssonar. Af því tilefni verður dagskrá í tali og tónum streymt frá Borgarnskirkju laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00. Þeir sem taka þátt í dagskránni eru Gunnlaugur Sigfússon sonur tónskáldsins, sem segir frá ýmsu um tilurð laganna sem verða flutt auk þess að…Lesa meira

true

Afmælis Hyrnutorgs gerð skil í næsta Skessuhorni

Næstkomandi fimmtudag verða tuttugu ár liðin frá vígslu verslanamiðstöðvarinnar Hyrnutorgs í Borgarnesi. Með Skessuhorni á miðvikudaginn fylgir lítið sérblað tileinkað tímamótunum þar sem rætt er við núverandi verslanaeigendur í húsinu og byggingarsaga hússins rifjuð upp með Guðsteini Einarssyni fyrrverandi kaupfélagsstjóra KB. Skessuhorni verður af þessu tilefni, auk venjubundinnar dreifingar, frídreift inn á öll heimili í…Lesa meira

true

Þrír greindust með veiruna í gær

Þrír greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á Covid.is, og þar af voru tveir í sóttkví. 220 eru nú í sóttkví á landinu, sem er fjölgun frá því í gær þegar 205 voru í sóttkví, og 198 eru í einangrun en í gær voru þeir 205. 45 liggja á sjúkrahúsi…Lesa meira

true

Öxulþungatakmarkanir á Hvítárbrú norðan Húsafells

Á vef Vegagerðarinnar er sagt frá því að leyfilegur ásþungi á Hvítárbrú milli Húsafells og Kalmanstungu í Borgarfirði hafi verið tekinn niður í fimm tonn. Undirstöður brúarinnar eru laskaðar. Fyrir ökumenn venjulegra fólksbíla og jeppa hefur þetta engar breytingar í för með sér en fyrir stærri flutninga- og vörubíla er brúin lokuð. Verktakar sem nú…Lesa meira

true

Óbreytt fyrirkomulag á landamærum til 1. febrúar

Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar á föstudaginn. Þar var ennfremur tekin sú ákvörðun að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið Covid-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild og veiti undanþágu…Lesa meira

true

Kiwanisklúbburinn Þyrill styrkir Mæðrastyrksnefnd

Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranes færði á föstudaginn Mæðrastyrksnefnd Akraness hálfa milljón króna að gjöf. Stefán Lárus Pálsson, forseti Þyrils, sagði í ávarpi sínu að klúbburinn hefði í mörg ár styrkt Mæðrastyrksnefnd og hygðist gera það áfram. Hefði verið ákveðið að hafa gjöfina óvenju rausnarlega í ár. Það voru María Ólafsdóttir og Svanborg Liljan Eyþórsdóttir sem…Lesa meira