
Sökum veðurs í gær fór rafmagn af dreifikerfi Rarik á tveimur stöðum á Vesturlandi. Fyrst varð straumlaust í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, frá Ólafsvík að Fróðá, frá klukkan 14 til 16. Síðari bilunin varð á Skógarstrandarlínu. Þar sló út rafmagni klukkan 19 en viðgerð lauk klukkan 23.Lesa meira








