Fréttir

true

Engar loðnuveiðar ráðgerðar á næstu vertíð

Hafrannsóknastofnun gaf á föstudaginn út skýrslu um ástand nytjastofna sjávar og ráðgjöf 2020. Samkvæmt henni leggur stofnunin til, í samræmi við aflareglu strandríkja, að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2020/2021. Það yrði því þriðja vertíðin í röð þar sem loðnuveiðar falla niður við Íslandsstrendur. Bergmálsmælingar á stærð loðnustofnsins fóru fram á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni og…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti á Vesturlandi í september

Þjóðskrá Íslands heldur utan um fasteignaviðskipti á landsvísu eftir tímabilum sem jafnframt er hægt að flokka eftir landshlutum. Í september síðastliðnum voru talsverð viðskipti með fasteignir á Vesturlandi þegar 71 fasteign skipti um eiganda. Heildarvelta í þessum viðskiptum var 2.634 milljónir króna sem gerir meðalsöluverð 37,1 milljón kr. Þar af voru seldar 27 eignir í…Lesa meira

true

Kynntu aðgerðir til stuðnings menningarstarfsemi

Forsætisráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra kynntu á föstudaginn, ásamt fulltrúum Bandalags háskólamanna og Bandalags íslenskra listamanna, tíu stuðningsaðgerðir stjórnvalda fyrir listir og menningu á tímum Covid-19. Aðgerðirnar miða að því að bæta stöðu starfandi listamanna og menningartengdra fyrirtækja. Liður í þeim eru tekjufallsstyrkir sem einyrkjar og smærri rekstraraðilar munu geta sótt um en ráðgert er…Lesa meira

true

Eldsvoði í Borgarfirði

Slökkvilið Borgarbyggðar var klukkan 17:37 í dag kallað út vegna elds í íbúðarhúsi á bæ í Hálsasveit í Borgarfirði. Slökkvilið frá öllum starfsstöðvum liðsins var sent á vettvang auk þess sem kallaður var til liðsauki frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Slökkvistarf hefur gengið vel og búist við að því ljúki fyrir miðnætti. Að sögn Bjarna…Lesa meira

true

Dregur úr smitum víðast hvar – fjölgun á Akranesi

Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á Vesturlandi nú rétt í þessu fjölgar smituðum af Covid-19 á svæði Heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi frá því fyrir helgi. Þeir eru nú þrettán sem eru í einangrun, en voru tíu fyrir helgi. Fimmtán manns eru í sóttkví á starfssvæði HVE á Akranesi. Þá eru tveir á svæði heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi smitaðir og…Lesa meira

true

Lítillega hert á sóttvarnareglum frá og með næsta þriðjudegi

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í meginatriðum þær breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem kveðið verður á um í reglugerð um takmarkanir á samkomum sem taka gildi þriðjudaginn 20. október. Breytingarnar eru að mestu þær sömu og sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði til ráðherra. Áfram verður kveðið á um strangari takmarkanir á höfuðborgarsvæðinu en gilda á landsvísu. Utan höfuðborgarsvæðisins…Lesa meira

true

Rjúpnaveiði leyfð þrátt fyrir að stofninn sé í lágmarki

Veiðitímabil rjúpu hér á landi verður frá 1. – 30. nóvember þetta árið, líkt og á síðasta ári, eins og ákveðið var um í reglugerð. Heimilt er að veiða fimm daga í viku, frá föstudegi til þriðjudags, en veiðibann er á miðvikudögum og fimmtudögum. Ítrekað er að sölubann á rjúpum er áfram í gildi og…Lesa meira

true

Jafnvægi komið á eftir hópsmit í Stykkishólmi

Eins og áður hefur verið greint frá kom upp hópsmit Covid-19 í Stykkishólmi seint í septembermánuði þegar sjö íbúar greindust með kórónuveiruna. Fjöldi íbúa fór í sýnatöku dagana á eftir og í kjölfar þeirra greindust örfáir til viðbótar. Undir mánaðamótin síðustu voru 13 manns í einangrun í Hólminum og 20 í sóttkví. Gripið var til…Lesa meira

true

Steyptu plan undir útiþvottastöðina

Félagsmenn í Neista, félagi slökkviliðsmanna í Borgarbyggð, steyptu síðdegis í gær plötu undir væntanlega þvottastöð sína. Á planinu verður komið upp saunatunnu, pottum og útisturtu. Þar munu slökkviliðsmenn eignast aðstöðu til að hreinsa af sér sót og reykjarlykt eftir löng og ströng útköll. Planið er steypt meðfram norðurhlið slökkvistöðvarinnar við Sólbakka í Borgarnesi. Verður hurðargat…Lesa meira

true

Grunur um nýtt riðutilfelli í Skagafirði

„Sterkur grunur er um riðuveiki á Stóru-Ökrum 1 (Brekkukoti) í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun hefur sett bann á allan flutning líffjár (sauð- og geitfjár) innan Tröllaskagahólfs til bráðabirgða þar til greining hefur verið staðfest.“ Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að bóndinn hafi haft samband við starfandi dýralækni sem tilkynnti héraðsdýralækni um kind með einkenni…Lesa meira