Fréttir

true

Ríkisstjórnin samþykkir að leggja fram tekjufallsstyrki

Ríkisstjórnin samþykkti í dag að leggja fyrir Alþingi frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Frumvarpinu er ætlað að aðstoða einyrkja og litla rekstraraðila sem hafa orðið fyrir verulegum tekjumissi og er liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að draga úr tjóni vegna faraldursins og leggja grunn fyrir öfluga viðspyrnu í kjölfar hans, eins…Lesa meira

true

Fimmtán í einangrun á Vesturlandi

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi eru nú fimmtán í einangrun í landshlutanum og hefur þeim farið fækkandi undanfarna daga. Nú eru tíu veikir á Akranesi, fjórir í Grundarfirði og einn í Stykkishólmi. Auk þess eru þrír í sóttkví í Stykkishólmi, tveir í Borgarnesi/Borgarfirði og sextán á Akranesi. Á svæði heilsugæslustöðvanna í Búðardal og Ólafsvík…Lesa meira

true

Vörn verði snúið í sókn

Formaður stjórnar SSV brýnir sveitarstjórnarfólk til dáða Verkefni sveitarfélaga á tímum Covid-19 er fyrst og fremst að standa vörð um einstaklinga, fyrirtæki og ákveðin grunngildi samfélagsins. Þannig komst Lilja Björg Ágústsdóttir, formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, að orði í upphafsræðu sinni á rafrænu haustþingi SSV nú í morgun. „Sveitarfélögin horfa fram á stórar áskoranir…Lesa meira

true

Októberúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness í næstu viku

Mæðrastyrksnefnd á Akranesi úthlutar næst miðvikudaginn 21. október, þ.e. í næstu viku. „Vegna Covid-19 höfum við þann hátt á að leggja inn hjá umsækjendum. Einnig þurfa þeir sem sóttu um fyrir síðustu jól og í september ekki að skila inn gögnum núna. Nýir umsækjendur þurfa að skila inn búsetuvottorði og staðgreiðsluskrá og geta skilað því…Lesa meira

true

Varnir gegn náttúruvá fyrirferðarmiklar í fjármálaáætlun

Stjórnvöld hyggjast veita aukalega 10,2 milljörðum króna til ofanflóðavarna og eflingar vöktunar og styrkingu stjórnsýslu vegna náttúruvár samkvæmt fjármálaáætlun áranna 2021-2025. Eins og kunnugt er gekk fárviðri yfir Ísland í desember 2019 og olli miklu tjóni. Samgöngur lögðust af og atvinnulífið lamaðist á þeim svæðum sem urðu verst úti. Í kjölfar veðursins skipaði ríkisstjórnin átakshóp…Lesa meira

true

Lausaganga hættuleg

Óvenju mikið hefur borið á lausagöngu búfjár í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi undanfarið. Hefur lögreglu borist fjöldi tilkynninga um slíkt síðustu vikurnar. Sérstaklega segir lögregla lausagöngu stórgripa vera alvarlegt mál, þó öll lausaganga búfjár geti skapað hættu á vegum, sérstaklega núna þegar orðið er dimmt á kvöldin. Í síðustu viku hafði ökumaður einn samband við…Lesa meira

true

Lífeyrisgreiðslur verði skattlagðar strax

Flokkur fólksins hefur endurflutt þingsályktunartillögu um staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði, en málið komst ekki á dagskrá síðasta þings. „Lagt er til að í stað þess að staðgreiðsla tekjuskatts fari fram við útgreiðslu lífeyrissparnaðar þá fari hún fram þegar iðgjald og mótframlag er greitt inn í lífeyrissjóð. Einnig er lagt til að þeim fjármunum sem…Lesa meira

true

Gonzalo farinn frá Víkingi

Framherjinn Gonzalo Zamorano hefur kvatt lið Víkings Ó., en hann samdi við liðið öðru sinni fyrir yfirstandandi leiktíð. Fótbolti.net greinir frá. Gonzalo hefur spilað vel með Ólafsvíkingum á árinu, skorað 14 mörk í 22 leikjum í deild og bikar. Útséð er að Víkingur mun leika áfram í næstefstu deild á næsta ári, en liðið situr…Lesa meira

true

Norhern Wave frestað

Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Northern Wave, sem haldin hefur verið árlega á Snæfellsnesi í rúman áratug, hefur verið frestað vegna Covid-19. Ákvörðunin er tekin með heilsu og öryggi gesta, starfsfólks og samfélagsins í huga, að því er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Hún mun því ekki fara fram dagana 23. til 25. október næstkomandi, eins…Lesa meira

true

Góð aflabrögð í síðustu viku

Síðasta vika var góð hjá þeim bátum sem róa frá höfnum Snæfellsbæjar og veðurblíða með einsdæmum góð til sjósóknar. Mjög góð veiði gefur verið hjá smærri bátum sem róa með handfæri og hafa þeir komið með yfir tvö tonn að landi sem er mjög gott á þessum árstíma. Nokkrir dragnótarbátar hafa verið að veiðum á…Lesa meira