Fréttir

true

Undirbúningsnefnd lokaði að sér á hótelinu klukkan 13

Í hádeginu í dag kom undirbúningsnefnd Alþingis fyrir rannsókn kjörbréfa saman til fundar í Borgarnesi undir stjórn Birgis Ármanssonar formanns. Að lokinni skoðun á húsakosti á hótelinu var fundinum lokað fyrir fjölmiðlafólki sem var á svæðinu. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi fram eftir degi og jafnvel til kvölds. Meðal annars ræðir þingnefndin við…Lesa meira

true

Töldu ónotaða kjörseðla og funda í kjölfarið

Í morgun mættu þrír nefndarmenn, alþingismenn sem sitja í undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, í Borgarnes. Erindi þeirra var að fylgjast með fulltrúum úr yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis og sýslumanninum á Vesturlandi telja ónotaða atkvæðaseðla frá þingkosningunum 25. september. Kjörseðlarnir höfðu verið geymdir í innsiglaðri fangageymslu á lögreglustöðinni í Borgarnesi. Ákveðið hafði verið að telja seðlana til að…Lesa meira

true

Rekstur sjávarútvegsfyrirtækja gekk vel miðað við aðstæður

Þrátt fyrir krefjandi aðstæður í fyrra, vegna Covid-19, gekk rekstur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja og fiskeldisfyrirtækja ágætlega. Þetta má lesa úr samantekt Deloitte sem kynnt var á hinum árlega Sjávarútvegsdegi, sem var í dag. Dagurinn er samstarfsverkefni Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Deloitte og Samtaka atvinnulífsins. Samantekt Deloitte byggist á ársuppgjörum fyrirtækja sem hafa yfir að ráða um…Lesa meira

true

Fléttur – þjóðlög og þjóðsögur á léttum nótum

Framundan eru tónleikar með sögulegu ívafi á þremur stöðum á Vesturlandi. Flytjendur á þeim eru Trio Danois sem samanstendur af Jónínu Ernu Arnardóttur, Morten Fagerli og Pernille Kaarslev en þau koma fram ásamt Sigrúnu Elíasardóttur Langspili sögumanni. Flutt verður dagskrá þar sem fléttað er saman þjóðsögum og lögum frá Íslandi og Norðurlöndunum og koma m.a.…Lesa meira

true

Tveir yngstu bekkirnir heima í þessari viku

Upp hafa komið Covid smit hjá nemendum og starfsmanni í Brekkubæjarskóla á Akranesi og eru nemendur í fyrstu tveimur bekkjunum og allt starfsmannateymið þeim tengd komið í sóttkví. Tveir nemendur og starfsmaður sem var að kenna í skólanum á föstudaginn hafa nú greinst smituð af Covid veirunni. Heilsugæslan er að skipuleggja sýnatökur og fer hún…Lesa meira

true

Sitthvað sem þarf að bæta hjá slökkviliðinu

Starfsmenn Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) gerðu 6. september síðastliðinn úttekt á tækjum, búnaði og aðstöðu Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs í Búðardal. Var niðurstaða þeirrar skoðunar kynnt á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar í síðustu viku. Þar var slökkviliðsstjóra falið að gera umsögn um úttekt HMS ásamt tímasettri áætlun um úrbætur. Frá slökkviliðsstjóra fari úttektin til…Lesa meira

true

Marinó Hilmar valinn leikmaður ársins hjá Kára

Lokahóf Knattspyrnufélagsins Kára fór fram á Jaðarsbökkum á laugardagskvöldið. Vegna kórónufaraldursins var haldið tvöfalt lokahóf í ár þar sem ekki náðist að halda lokahóf árið 2020. Leikmaður ársins 2020 var Dino Hodzic, efnilegastur Elís Dofri Gylfason og Andri Júlíusson var markahæstur með átta mörk í 19 leikjum. Leikmaður ársins 2021 var Marinó Hilmar Ásgeirsson og…Lesa meira

true

Viðra hugmynd um stóra sameiningu á Snæfellsnesi

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa sveitarstjórnir Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar samþykkt að hefja formlega viðræður um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna og stýrir RR ráðgjöf ehf. því ferli. En það eru fleiri viðræður framundan, en nú að frumkvæði Grundfirðinga. Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðar 22. september síðastliðinn var samþykkt að bjóða öðrum sveitarfélögum á…Lesa meira

true

Vefur Skessuhorns lá niðri um tíma í dag

Um tveggja tíma skeið eftir hádegið í dag lá fréttavefur Skessuhorns niðri. Það skýrist af því að fyrirtæki í Ameríku, sem hýsir vefumsjónarkerfið sem vefurinn er byggður í, virðist hafa orðið fyrir netárás. Nú eru vonir bundnar við að tekist hafi að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Lesendur eru beðnir velvirðingar á…Lesa meira

true

Hættir í sveitarstjórn

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur samþykkt beiðni Sigríðar Huldar Skúladóttur um lausn frá störfum í sveitarstjórn og nefndum til loka kjörtímabilsins. Fyrsti varamaður er Anna Berglind Halldórsdóttir og tekur hún nú sæti í sveitarstjórn.Lesa meira