Fréttir

true

Málverk af Guðbjarti afhjúpað á Alþingi

Málverk af Guðbjarti Hannessyni, fyrrverandi forseta Alþingis og skólastjóra Grundaskóla á Akranesi, var afhjúpað í Skála Alþingishússins í gær. Viðstaddir voru forseti Alþingis, fjölskylda Guðbjarts, vinir og samstarfsfólk hans úr Samfylkingunni auk fleiri. Það var Stephen Lárus Stephen listmálari sem málaði myndina og verður henni komið fyrir í efrideildarsal Alþingis. Hefð er fyrir því að…Lesa meira

true

ÞÞÞ keyrir fatnað endurgjaldslaust til Konukots

Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi hefur tekið að sér að flytja föt sem safnað er á Akranesi fyrir Konukot, endurgjaldslaust til Reykjavíkur, en Konukot hefur sent ákall til almennings um að láta af hendi rakna hlýjan fatnað og skó fyrir skjólstæðinga Konukots. Halldóra R. Guðmundsdóttir segir í viðtali við Fréttablaðið að vel hafi verið tekið í…Lesa meira

true

Fjórir árgangar í bólusetningu

Það var nóg að gera hjá starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands þegar blaðamaður Skessuhorns rak inn nefið í íþróttasalinn á Jaðarsbökkum á Akranesi í morgun. Börn fædd árið 2006, 2007, 2008 og 2009 voru í seinni bólusetningu af Pfizer en börn sem fædd eru 2009 verða að hafa náð 12 ára aldri þegar þau fara í sprautuna.…Lesa meira

true

Seinkun á prentun og dreifingu Skessuhorns – rafræn útgáfa hér!

Í gærkvöldi varð flókin rafbilun í prentvél sem prentar Skessuhorn og ýmis önnur blöð. Ekki tókst að greina bilunina fyrr en í nótt og verður Skessuhorn því ekki prentað fyrr en upp úr klukkan 14 í dag. Af þeim sökum verður lítilsháttar töf á dreifingu blaðsins til áskrifenda. Blaðburðarbörn á Akranesi og Borgarnesi fá blaðið…Lesa meira

true

Hrefnu rak á land í morgun í Steinsvör á Akranesi

Dauða hrefnu rak á land í Heimaskagavör (Steinsvör) á Akranesi í morgun. Uppgötvuðu starfsmenn Olís hvalrekann þegar þeir mættu til vinnu. Dýrið er innan umráðasvæðis Akraneshafnar og segir Valentínus Ólason hafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum að hér sé á ferðinni fullvaxið dýr, 8-10 metra langt. Umhverfisstofnun hefur verið gert viðvart en ekki má hreyfa við dýrinu fyrr…Lesa meira

true

Það er bjartsýni í okkar huga

Ingimundur Ingimundarson er formaður íþróttanefndar eldri borgara í FEBBN og forsprakki og driffjöður í íþróttastarfi eldri borgara í Borgarnesi. Hann var á miklum þeysingi á púttmótinu í Borgarnesi á fimmtudaginn í síðustu viku. Enda nóg að gera að halda utan um öll skor mótsins og sjá um allt í kringum það ásamt dyggum aðstoðarmanni sínum,…Lesa meira

true

Ólöf Margrét er nýr prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli

Ólöf Margrét Snorradóttir hefur verið kjörin nýr prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli og mun hún ganga þar til liðs við Þráin Haraldsson og Þóru Björg Sigurðardóttur um mánaðarmótin október-nóvembar. Ólöf fæddist á Ísafirði árið 1971 og er hún önnur í röð þriggja systkina. Ólöf bjó fyrstu þrjú árin á bænum Neðri-Breiðadal í Önundarfirði, þar sem…Lesa meira

true

Listamenn byggja sér hús í Hvalfjarðarsveit

Nýtt hús er nú að rísa við Bjarkarás í Leirársveit en þar eru hjónin Einar Thorberg Guðmundsson og Laura Diamond að reisa sér nýtt heimili. Blaðamaður Skessuhorns kíkti til þeirra fyrir helgi og fékk að forvitnast um nýbúana í Hvalfjarðarsveit. Iðnaðarmenn voru á fullu að vinna í húsinu en Einar og Laura buðu blaðamanni að…Lesa meira

true

Styrkja hringrásarhagkerfi í Borgarbyggð

Borgarbyggð og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafa gert með sér samninga um styrkveitingar til annars vegar bættrar úrgangsþjónustu við frístundahús og hins vegar söfnunar brotajárns í dreifbýli í Borgarbyggð. Styrkurinn til úrgangsþjónustu nemur fjórum milljónum króna og styrkur til söfnunar brotajárns sexhundruð þúsund krónum. Ráðuneytið auglýsti 18. mars eftir umsóknum lögaðila um styrki til verkefna sem…Lesa meira

true

Samþykktu gagntilboð í fyrrum ráðhús

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram gagntilboð Steðja fjárfestinga ehf. í fasteign sveitarfélagsins við Borgarbraut 14 í Borgarnesi, gamla Ráðhúsið. Sveitarstjórn staðfesti gagntilboðið og var sveitarstjóra falið að ganga til kaupsamnings á grundvelli framlagðs tilboðs.Lesa meira