Fréttir

true

Frisbígolfvöllur í Stykkishólmi

Frisbígolfvöllur var settur upp í Stykkishólmi í lok júlí í sumar og hefur hann notið töluverðra vinsælda. Í síðustu viku kom sérfræðingur í þessum efnum til að reka smiðshöggið á völlinn, klára merkingar á holum og setja upp skilti til að kynna brautirnar fyrir þeim sem eru að spila frisbígolfið. Auk þess hélt hann lítið…Lesa meira

true

Smiðjuloftið fagnaði afmæli

Smiðjuloftið fagnaði þriggja ára starfsafmæli með veglegri afmælisveislu dagana 2.-5. september. „Á dagskrá voru fjölbreyttir viðburðir fyrir börn sem fullorðna með áherslu á listir og hreyfingu, sem er einmitt einkenni starfsins á Smiðjuloftinu,“ segir í tilkynningu frá Valgerði Jónsdóttur. Á föstudagskvöldinu voru haldnir tónleikar tileinkaðir tónlist frá ýmsum löndum, aðallega þjóðlagatónlist. Þar komu fram Rut…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær auglýsir eftir styrkumsóknum

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar auglýsir á vef sínum eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og fyrirtækjum í samræmi við reglur Stykkishólmsbæjar um styrkveitingar. Í auglýsingunni segir: „Markmiðið með styrkjum bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, menningarlífs, lífsgæðum og fjölbreytilegu mannlífi og öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi.…Lesa meira

true

Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson

Þriðjudaginn 21. september kl. 20 flytur Gottskálk Jensson minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson í Bókhlöðu Snorrastofu er nefnist „Reykhyltingur um Reykhylting: Ævisögur Snorra Sturlusonar á latínu eftir Finn Jónsson biskup“. Fyrirlesturinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Finnur Jónsson var prestur í Reykholti og prófastur í Borgafjarðarsýslu áður en hann varð biskup í Skálholti. Hann…Lesa meira

true

Rigningin hefur sinn sjarma

Á meðan sólin hefur leikið við fólk fyrir norðan og austan hefur verið heldur blautt hjá okkur á Vesturlandi og er áframhaldandi rigning í kortunum. Rigningin hefur þó sinn sjarma rétt eins og sólin, eins og má sjá á meðfylgjandi mynd sem Elmar Snorrason tók á Húsafelli nú síðdegis. Þessi fallegi regnbogi vakti yfir fjöllunum…Lesa meira

true

September púttmót eldri borgara í Borgarnesi

Síðasta fimmtudag fór fram opið púttmót eldri borgara á púttsvæðunum við klúbbhúsið á Hamarsvelli í Borgarnesi. Þátttakendur voru alls 52 frá Púttklúbbi Borgarbyggðar, Púttklúbbi Suðurnesja og Púttklúbbi Hvammstanga og var keppt í alls sex flokkum og léku keppendur 72 holur. Sigurður Þórarinsson kom með ráskubba sem gerðir voru af miklum hagleik og voru settir á…Lesa meira

true

Byrjaði að veiðast um leið og fór að rigna

„Já, það byrjaði að rigna í dag og það breytti öllu. Við fengum fjóra flotta laxa í Staðarhólsánni og Hvolsá um leið og vatnið jókst verulega,“ sagði Sigursveinn Bjarni Jónsson, sem var við veiðar í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum nú þegar það tók að rigna verulega. „Áður hafði ekki komið dropi úr lofti þegar…Lesa meira

true

Heitavatnslaust í Borgarnesi á morgun

Vegna viðgerða verður heitavatnslaust í Borgarnesi á morgun, þriðjudaginn 14. september, á milli kl. 8:00 og 12:00. Á vef Borgarbyggðar er íbúum bent á að hafa skrúfað fyrir heita vatnið til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið verður sett á aftur. „Í kuldatíð er ráðlagt að hafa glugga lokaða og útidyr…Lesa meira

true

Kári tapaði gegn Haukum

Kári lék í gær síðasta heimaleik sinn í bili í 2. deild karla í knattspyrnu þegar liðið mætti Haukum í bongóblíðu í Akraneshöllinni í gær. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleiknum í gær en fimm mínútum eftir hálfleik skoraði Tómas Leó Ásgeirsson fyrsta mark gestanna og níu mínútum síðar bætti Páll Hróar Helgason við öðru…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Gróttu

Víkingur Ólafsvík tók á móti Gróttu í síðasta heimaleik liðsins í Lengjudeild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Gróttumenn byrjuðu af miklum krafti í leiknum því eftir rúmlega hálftíma leik voru þeir komnir með þriggja marka forystu með mörkum frá Arnari Þór Helgasyni, Pétri Theodóri Árnasyni og Gabríel Hrannari Eyjólfssyni og staðan í hálfleik 0-3. Eftir…Lesa meira