Fréttir

true

Eyjólfur segir góðar samgöngur vera forsendu byggðar í landinu

Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar. Eyjólfur er fæddur í Vestmannaeyjum, þriðji í röð fjögurra systkina. Foreldrar hans eru Guðjón Ármann Eyjólfsson, sjóliðsforingi og skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík til margra ára, og Anika Jóna Ragnarsdóttir, húsmóðir og sjúkraliði. Fjölskyldan flutti frá Eyjum í eldgosinu, þegar Eyjólfur var á…Lesa meira

true

UltraForm stöð opnuð á Akranesi um miðjan mánuðinn

UltraForm líkamsræktarstöð verður opnuð á Akranesi miðvikudaginn 15. september næstkomandi. „Við erum fyrir með eina stöð í Grafarholti þar sem hátt í hundrað manns æfa,“ segir Sigurjón Erni Sturluson, eigandi UltraForm í samtali við Skessuhorn. UltraForm er hóptímastöð þar sem æfingarnar eru settar upp með þeim hætti að allir geti aðlagað þær að sinni getu.…Lesa meira

true

Rafmagnslaus í einn dag í næstu viku

Veitur hafa tilkynnt um rafmagnsleysi einn dag í næstu viku við nokkrar götur á Akranesi. Vegna viðgerðar verður rafmagn tekið af Garðabraut, Höfðabraut, Skarðsbraut 2 og 4 og Jaðarsbraut 27-41 miðvikudaginn 8. september frá klukkan 09:00 til klukkan 19:00. Nánar má lesa um þetta á veitur.is þar sem fólki er bent á að slökkva á…Lesa meira

true

Gat fannst á sjókví Arnarlax í Arnarfirði

Matvælastofnun barst síðastliðinn mánudag tilkynning frá Arnarlaxi um gat á nótarpoka einnar sjókvíar fyrirtækisins við Haganes í Arnarfirði. Gatið uppgötvaðist við neðansjávareftirlit og er viðgerð á því lokið. Samkvæmt upplýsingum Arnarlax var gatið á tveggja metra dýpi og reyndist vera um það bil 2×2 metrar að stærð. Í þessari tilteknu kví voru um 120.000 laxar…Lesa meira

true

Langreyður sem barst til landsins framan á stefni flutningaskips

Nú hefur verið staðfest að hvalurinn sem rak dauður á Kjaransstaðafjöru í Hvalfarðarsveit síðastliðinn laugardag var langreyður. Hann er tæplega 14 metra langur og barst til landsins framan á stefni flutningaskipsins Nordfjord sem kom til Hafnarfjarðarhafnar 24. ágúst. Straumar og vindar færðu hræið yfir flóann þar sem því skolaði á land fimm dögum síðar.Lesa meira

true

Halda til veiða í dag

Nýtt kvótaár hefst í dag. Strákarnir á Sveinbirni Jakobssyni SH voru í óða önn að taka snurvoðina um borð ásamt körum og ís þegar ljósmyndari hitti á þá fyrr í vikunni í Ólafsvík. Var ekki annað að heyra en þá hlakkaði til að hefja veiðar á nýju kvótaári og ekki skemmir verðið fyrir, en verðið…Lesa meira

true

Liðskiptasetur sett á fót á Akranesi

Liðskiptaaðgerðum verður fjölgað umtalsvert hér á landi með opnun nýrrar skurðstofu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Á nýju liðskiptasetri verður eingöngu sinnt liðskiptaaðgerðum og gert ráð fyrir að það taki til starfa í mars á næsta ári. Stofnunin verður þá með getu til að framkvæma um 430 aðgerðir á ári sem er rúmlega tvöföldun á…Lesa meira

true

Fyrirlestur um sjálfbæra húsahönnun

Næstkomandi laugardag heldur hönnuðurinn Brynja Þóra Guðnadóttir fyrirlestur við Háskólann á Bifröst um frumkvöðlaverkefni sem hún stendur að í sjálfbærum arkitektúr, heilsusamlegum efnum og nýsköpun á sviði byggingarlistar. Fyrirlesturinn verður sendur út í opnu streymi kl. 12:30 – 13:30. Brynja Þóra fjallar m.a. um um hugmyndafræði sjálfbærs arkitektúrs og notkun náttúrulegra lausna í húsahönnun. Hún…Lesa meira

true

ÍA stúlkur komnar í fallsæti í Lengjudeild kvenna

ÍA og HK mættust á Akranesvelli í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi en þetta var frestaður leikur úr 13. umferð og átti upphaflega að fara fram 5. ágúst. Liðin eru í mikilli botnbaráttu ásamt þremur öðrum liðum og var þetta því algjör sex stiga leikur. HK komst strax yfir á þriðju mínútu þegar Ragnheiður…Lesa meira

true

Sameining tveggja ríkisstofnana

Frá og með 15. september sameinast Ríkiseignir og Framkvæmdasýsla ríkisins (FSR) undir heitinu Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir. „Ákvörðunin um sameininguna byggist á niðurstöðum vinnu ráðuneytis og beggja stofnana, sem staðið hefur frá síðastliðnu hausti,“ segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. „Með sameiningunni fæst mikil samlegð þar sem húsnæðis- og aðstöðumál ríkisins verða á einni hendi, hvort sem…Lesa meira