Fréttir

true

Sjóvá tryggir bæinn

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar í síðustu viku var kynnt niðurstaða útboðs á vátryggingum bæjarins og stofnana hans fyrir árin 2022 til og með 2024. Bæjarráð samþykkti að gengið verði til samninga við Sjóvá, en tilboð félagsins var lægst í nýafstöðnu útboði. TM var áður tryggingafélag Akraneskaupstaðar.Lesa meira

true

Kári nánast fallinn eftir tap gegn ÍR

Káramenn gerðu sér ferð í Breiðholtið á föstudagskvöldið og töpuðu gegn ÍR með fjórum mörkum gegn einu í 2. deild karla í knattspyrnu. Pétur Hrafn Friðriksson skoraði tvö mörk með stuttu millibili um miðjan fyrri hálfleik fyrir ÍR og á 67. mínútu bætti Reynir Haraldsson þriðja markinu við fyrir heimamenn. Garðar Bergmann Gunnlaugsson minnkaði muninn…Lesa meira

true

Bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar rýmdar vegna mygluvandamáls

Ákveðið hefur verið að flytja starfsemi bæjarskrifstofa Akraneskaupstaðar úr Stillholti 16-18 í nýtt húsnæði að Dalbraut 4 sem byggt var sem félagsaðstaða eldri borgara og verður tekið í notkun í haust. Þetta er gert vegna raka og myglu sem greinst hefur í húsnæði bæjarskrifstofunnar. Fyrstu tíu starfsmenn bæjarskrifstofanna eru þegar fluttir yfir á Dalbraut en…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fallinn í 2. deild eftir tap gegn Selfossi

Víkingur tók á móti liði Selfoss á laugardaginn í Lengjudeild karla í knattspyrnu og tapaði leiknum með þremur mörkum gegn engu. Því er ljóst að Víkingur er fallinn í 2. deild en liðið hefur spilað samfleytt í næstefstu deild frá árinu 2018. Selfyssingar komust yfir eftir hálftíma leik með marki Valdimars Jóhannssonar og á síðustu…Lesa meira

true

Óbreyttur fjöldi í einangrun en fækkar í sóttkví

Á Vesturlandi eru nú 32 í einangrun með Covid 19 og 34 í sóttkví. Fjöldi veikra er óbreyttur frá síðasta fimmtudegi, þegar Lögreglan á Vesturlandi birti síðast gögn um útbreiðsluna. Langflestir sýktra eru á Akranesi, eða 27. Þrír eru á svæði heilsugæslunnar í Borarnesi, einn í Ólafsvík og einn í Búðardal. Á Akranesi eru 30…Lesa meira

true

Skagamenn enn í fallsæti en eygja smá von um að halda sér uppi

Skagamenn léku gegn liði KA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á Greifavellinum á Akureyri í gær og töpuðu þriðja leiknum í röð í deildinni. Leikurinn byrjaði fjörlega og Skagamenn fengu fyrsta færi leiksins þegar Wout Droste átti skot af stuttu færi sem fór fram hjá marki KA-manna. Fyrsta mark leiksins kom á 26.…Lesa meira

true

Skallagrímur áfram í bikarkeppninni

Skallagrímsmenn unnu fyrsta leik sinn á tímabilinu sem fór af stað í gærkvöldi þegar liðið tók á móti Hamarsmönnum í forkeppni VÍS bikarkeppni karla í körfuknattleik. Hamarsmenn, sem unnu sig upp í úrvalsdeild eftir síðasta tímabil, þurftu að sætta sig við tap á spennandi lokamínútum gegn Skallagrími sem spilar í fyrstu deild. Gestirnir úr Hveragerði…Lesa meira

true

Viðreisn vill gefa framtíðinni tækifæri

Landsþing Viðreisnar var haldið í rafrænt á laugardaginn þar sem málefnavinna og breytingar á samþykktum fór fram. „Í stjórnmálaályktun flokksins er lögð áherslu á að bæta þurfi lífskjör landsmanna og rekstrarumhverfi fyrirtækja og leggur Viðreisn til að binda gengi krónunnar við Evru til að lækka vexti landsmanna. Markviss efnahagsstjórn og aukið viðskiptafrelsi er í þágu…Lesa meira

true

Slakað verulega á sóttvarnareglum

Heilbrigðisráðherra ákvað á föstudaginn að gera enn frekari tilslakanir á samkomutakmörkunum sem tóku gildi 28. ágúst síðastliðinn. Grímuskylda á viðburðum utandyra hefur verið felld brott og skýrar kveðið á um heimild til að halda einkasamkvæmi í veislusölu og sambærilegu húsnæði fram yfir miðnætti. Ráðherra hefur einnig ákveðið nánari útfærslu á notkun hraðprófa á viðburðum. Tilslakanir…Lesa meira

true

Stjórnmálaályktun landsfundar VG

Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs var haldinn á laugardaginn. Í tilkynningu eftir fundinn kemur fram að lögð verður áherslu á að hreyfingin leiði næstu ríkisstjórn að loknum kosningum nú í haust. „Málefnalegur árangur Vinstri-grænna af núverandi stjórnarsamstarfi er óumdeildur en framundan eru stór verkefni,“ segir í tilkynningunni. „Næsta ríkisstjórn þarf að halda áfram á sömu…Lesa meira