Fréttir

true

Rætt við hótelstjórann á Hótel Búðum

„Einn af fallegustu stöðum á Íslandi, í einungis tveggja tíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. Heillandi andrúmsloft og veitingastaður sem er hvað þekktastur fyrir að bera fram sælkeramat úr sveitinni í algjörum sérflokki.“ Þannig er tilteknum stað hér á Vesturlandi lýst. Um er að ræða Hótel Búðir á Snæfellsnesi og getur blaðamaður Skessuhorns hæglega tekið undir lýsinguna…Lesa meira

true

„Það er svo eðlilegt að þeir sem eigi meira borgi meira“

Í fyrsta sæti á lista Sósíalistaflokks Íslands í Norðvesturkjördæmi er Helga Thorberg, leikkona, garðyrkjufræðingur, móðir og amma en hún á tvo syni og fimm barnabörn. Helga hefur búið víða og segir rótleysi hafa einkennt sína æsku. Hún fæddist í Vestmannaeyjum og var yngst þriggja systra. Foreldrar Helgu skildu og ólust þær systur upp hjá móður…Lesa meira

true

Vissi ekki hvert hann var að fara

Töluverður erill var um helgina hjá Lögreglunni á Vesturlandi vegna ferðafólks sem átti leið í gegnum umdæmið. Ekki var þó um stór mál að ræða heldur mörg smærri; fólk að veikjast, lenda í smávægilegum óhöppum og slíkt. Einn þeirra sem þurfti á aðstoð lögreglunnar að halda hafði fengið sér aðeins of mikið neðan í því…Lesa meira

true

Fornleifauppgreftri í Ólafsdal lokið í bili

Sumarið 2018 hófst uppgröftur á minjum frá 9. eða 10. öld í Ólafsdal í Gilsfirði. Nú fjórum árum seinna er staðan sú að búið er að grafa upp öll mannvistarlög innan úr skálanum en veggirnir fá að standa enn. Hópur fornleifafræðinga frá Fornleifastofnun Íslands lauk við gröftinn síðastliðinn föstudag. „Það eru margar tóftir á þessu…Lesa meira

true

Víkingur einum leik frá falli eftir tap gegn Vestra

Víkingur Ólafsvík lék gegn liði Vestra í Lengjudeild karla í knattspyrnu á Olísvellinum á Ísafirði í gær og varð að sætta sig við 14. tap tímabilsins í 17 leikjum. Pétur Bjarnason kom heimamönnum yfir á 17. mínútu og fimm mínútum fyrir leikhlé bætti Pétur við sínu öðru marki og staðan í leikhléi 2-0. Guðmundur Arnar…Lesa meira

true

Samfylkingin kynnti stefnumál sín

„Samfylkingin ætlar að leiða saman annars konar ríkisstjórn en þá sem nú situr. Ríkisstjórn sem setur fjölskyldur í forgang, er tilbúin að stórbæta kjör eldra fólks og öryrkja, byggja upp sterkara samfélag með nýrri atvinnustefnu, þar sem allir hafa aðgang að fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu og ráðast í alvöru aðgerðir í loftslagsmálum,” sagði Logi Einarsson, formaður…Lesa meira

true

Stýrivextir voru hækkaðir um fjórðung í morgun

Seðlabankinn tilkynnti um stýrivaxtahækkun í morgun, en stýrivextir hækka nú um hvorki meira né minna en 25%, fara úr 1,0% í 1,25%. Til að útskýra þessa ákvörðun segir peningastefnunefnd stofnunarinnar að efnahagshorfur hafi batnað frá fyrri spá og horfur séu á meiri hagvexti í ár en spáð var í maí. Þá var spáð 3,1 prósenta…Lesa meira

true

Nokkrar veiðiár að bæta sig á milli ára

„Við vorum í Flókadalsá og fengum þrjá laxa en hann var tregur að taka hjá okkur, 20 stiga hiti,“ sagði veiðimaður sem var að hætta í Flókadalsá í Borgarfirði undir lok síðustu viku. Áin hafði þá gefið 166 laxa.  Skoðum aðeins stöðuna á svæðinu eins og hún var fyrir helgi. Einhverjar ár hafa bætt sig…Lesa meira

true

Aldarafmæli Péturs Péturssonar fyrrverandi alþingismanns úr Hnappadal

„Saga hans er í senn saga einstaklings sem haslar sér völl og saga samfélagsbreytinga,“ skrifar Magnús Pétursson meðal annars í formála bókar sinnar um lífshlaup föður síns: Lífshlaup athafnamanns, sem kom út á síðasta ári. Pétur Pétursson, fyrrum alþingismaður Alþýðuflokksins og athafnamaður, hefði fagnað aldarafmæli sínu 21. ágúst síðastliðinn. Til stóð að afkomendur Péturs myndu…Lesa meira

true

“Ætlum okkur varnarsigur í næstu kosningum”

Fyrir kosningarnar 25. september næstkomandi býður Miðflokkurinn fram lista í öllum kjördæmum. Hér í Norðvesturkjördæmi skipa efstu sætin tveir þeir sömu og fyrir kosningarnar fyrir fjórum árum þegar flokkurinn vann stórsigur. Bergþór Ólason er nú sem fyrr oddviti listans og Sigurður Páll Jónsson skipar annað sætið. Þeir hlutu báðir kosningu síðast; Bergþór sem kjördæmakjörinn en…Lesa meira