Fréttir

true

Gestir á veitingastaðnum geta fylgst með laxinum í hylnum

Myndavél hefur verið komið fyrir undir vatnsyfirborðinu í Veiðifossi í Grímsá. Fossinn er framan við veitingahúsið í Fossatúni og er fyrrum helsti maðkveiðistaður árinnar, en ekki er veitt í honum eftir að Grímsá varð eingöngu fluguveiðiá. Allur lax í ánni þarf að fara upp Veiðifoss og því hafa gestir á útipalli veitingahússins í Fossatúni löngum…Lesa meira

true

Hjón á Vesturlandi unnu rúmlega 80 milljónir í EuroJackpot

„Þau voru glöð og ánægð hjónin nýgiftu sem komu við hjá Íslenskri getspá í síðustu viku til að sækja rúmlega 80 milljóna króna vinning í EuroJackpot. Hjónin voru ein fjögurra sem hlutu 2. vinning í EuroJacpot í útdrætti vikunnar á undan,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. „Ég kaupi stundum lottómiða í vinnunni í gegnum…Lesa meira

true

Sögusvið Hylsins er í Borgarnesi

Gróa Finnsdóttir er núna um verslunarmannahelgina að gefa út sína fyrstu skáldsögu, en hún hefur áður verið meðhöfundur í smásagnasafni auk þess að skrifa ljóð og greinar. Gróa hefur undanfarin 33 ár starfað sem bókasafns- og upplýsingafræðingur á Þjóðminjasafninu í Reykjavík og í starfi sínu m.a. sinnt greinaskrifum. Gróa er gamall Borgnesingur, á sumarbústað í…Lesa meira

true

Stofnuðu hóp í þágu SOS í Grunnskóla Stykkishólms

Æska landsins lætur sig svo sannarlega varða bágstödd börn í heiminum. Ýmsar frumlegar hugmyndir hafa orðið að veruleika í því sambandi. Þær Nikola og Tara, sem eru á leið í tíunda bekk í Grunnskólanum í Stykkishólmi, hafa fengið stjórnendur skólans og stóran hluta nemenda í lið með sér og stofnað öflugan stuðningshóp innan skólans í…Lesa meira

true

Hraunhellirinn Víðgelmir heimsóttur

Víðgelmir er stærsti hraunhellir landsins og oft sagður konungur íslenskra hella og ekki að ástæðulausu. Eins og nafnið gefur til kynna er Víðgelmir afar stór eða um það bil 148 þúsund rúmmetrar og er einn af lengstu hellum landsins eða 1.585 metrar. Þak hellisins hefur hrunið á allstórum kafla, nærri norðurenda hans, og er þar…Lesa meira

true

Grundfirskir skátar á Úlfljótsvatni

Ungmenni í skátunum í Grundarfirði héldu 14. júlí síðastliðinn á eftirminnilegt skátamót á Úlfljótsvatni. Séra Aðalsteinn Þorvaldsson birti meðfylgjandi ferðasögu: Eftir talsverðan aðdraganda og undirbúning fararstjórnar og foreldra kom loksins dagurinn, 14. júlí síðastliðinn, að haldið var af stað á skátamót á Úlfljótsvatni. Síðustu skilaboð til skátanna fyrir ferðina frá fararstjórum var að vera „tilbúnir…Lesa meira

true

Tímans tönn nagar burtu síðustu ummerki setuliðsins – syrpa

Í síðari heimsstyrjöld komu bandamenn sér upp aðstöðu á Íslandi til þess að fylgjast með og hefta siglingar þýskra herskipa og kafbáta og verja skipaleiðir sínar á norðaustanverðu Atlantshafi. Í Hvalfirði lá oft fjöldi skipa á kaupskipalæginu utan Hvammsvíkur og á móts við Ferstiklu og herskipalæginu sem var í firðinum sunnanverðum. Á stríðstímum gat þar…Lesa meira

true

Sýnir þríeykinu þakklæti

Handverksmaðurinn og hönnuðurinn Svavar Garðarsson í Búðardal hefur komið fyrir fallegri blómaskreytingu á áberandi stað í heimabæ sínum. Þar er þeim Þórólfi, Ölmu, Víði og öllum hinum, þakkað framlag sitt fyrir að standa í stafni í baráttunni við Covid-19. Sveitungar Svavars hafa lýst ánægju sinni með framtakið enda skreytingin smekkleg og ber vor um mikinn…Lesa meira

true

Minnir á kirkjutröppurnar á Akureyri

Fljótt á litið minnir þetta mannvirki á kirkjutröppurnar á Akureyri í úrhellisrigningu. En því fer víðs fjarri. Hér er annar af tveimur laxastigum sem steyptir hafa verið til að auðvelda laxi uppgöngu í Brynjudalsá fyrir botni Hvalfjarðar. Fyrst eftir að þessi stöllótti laxastigi var steyptur var ekkert grindverk ofan á veggjunum. Það gerðist því ítrekað…Lesa meira

true

Kári gerði jafntefli við Reyni Sandgerði

Kári og Reynir Sandgerði mættust í 14. umferð í annarri deild karla í knattspyrnu í Akraneshöll síðastliðið miðvikudagskvöld. Leikurinn byrjaði fjörlega með marki frá Kára á tíundu mínútu leiks en það gerði Breki Þór Hermannsson með frábærri spyrnu beint úr hornspyrnu. Reynismenn jöfnuðu nokkrum mínútum seinna þegar Magnús Magnússon fylgdi eftir skoti sem Gunnar Bragi…Lesa meira