Fréttir

true

Mun leggja til auknar sóttvarnaaðgerðir innanlands

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum héldu í dag upplýsingafund vegna ört vaxandi útbreiðslu Covid-19. Staðan fer hratt versnandi í úbreiðslu veirunnar. 236 hafa greinst með veiruna frá mánaðamótum, þar af 213 síðustu vikuna og 78 í gær. Í ljósi stöðunnar mun sóttvarnalæknir senda heilbrigðisráðherra í dag minnisblað með tillögum að auknum…Lesa meira

true

Skagastúlkur töpuðu gegn Augnabliki

ÍA lék gegn liði Augnabliks í elleftu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Kópavogsvelli. Augnablik var án sigurs frá því í fyrstu umferð í byrjun maí þegar þær lögðu núverandi topplið deildarinnar KR að velli 2-1 og er það eina tap KR í sumar í deildinni. Augnabliksstúlkur mættu grimmar…Lesa meira

true

Mikið um fíkniefna- og ölvunarakstur

Alls voru fimm ökumenn teknir fyrir fíkniefnaakstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi síðustu vikuna. Upp úr þessum fíkniefnaakstursmálum komu tvö mál þar sem ökumenn eru grunaðir um vörslu fíkniefna. Þá var einn ökumaður tekinn fyrir ölvunarakstur.Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Stokkseyri

Skallagrímur lék gegn liði Stokkseyrar í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Skallarnir komust yfir á 13. mínútu leiksins með marki frá Ísak Jakobi Hafþórssyni og tíu mínútum síðar kom Viktor Már Jónasson þeim í tveggja marka forystu og staðan því 2-0 í hálfleik fyrir…Lesa meira

true

Fjör á fjölskyldudögum á Eiríksstöðum

Að Eiríksstöðum í Haukadal var hátíð um helgina; Fjölskyldudagar þar sem boðið var upp á fræðslu um landnámsöldina og gestir tóku þátt í allskyns fornri iðju. Um 350 manns sóttu Eiríksstaði heim í blíðskaparveðri. Gestir slökuðu á í sólinni og margir dvöldu daglangt, enda margt spennandi að gerast. Byrjað var með sögustund fyrir yngstu börnin.…Lesa meira

true

Tónlistarhátíð í Reykholti um helgina

Reykholtshátíð, sem fram fer um helgina 23. – 25. júlí, fagnar 25 ára afmæli sínu í ár en hún var fyrst haldin í Reykholti árið 1997 og er ein af elstu tónlistarhátíðum landsins. Hátíðin hefur alltaf verið haldin í kringum vígsluafmæli Reykholtskirkju sem ber upp á síðasta sunnudag júlímánaðar. Á hátíðinni í ár verða fernir…Lesa meira

true

Tilkynning: Skessuhorn næstu vikur

Skessuhorn kemur út samkvæmt venju í næstu viku, miðvikudaginn 28. júlí. Eftir það fer allt starfsfólk blaðsins í viku sumarleyfi og verður skrifstofan lokuð. Það kemur því EKKI út blað miðvikudaginn 4. ágúst, en sama dag lýkur sumarfríinu. Eftir það verður útgáfan reglubundin út árið alla miðvikudaga frá og með 11. ágúst.Lesa meira

true

Komið við í garðinum í Gröf

Hjónin Jón Eiríksson og Rut Hallgrímsdóttir búa í Gröf í Hvalfjarðarsveit. Þótt bæði séu þau komin á níræðisaldur slá þau hvergi slöku við að halda garðinum sínum við og öllu umhverfi húsanna. Margsinnis hlutu þau umhverfisverðlaun meðan Hvalfjarðarsveit stóð fyrir slíkum viðurkenningum. Allt umhverfi í og við húsin þeirra ber vott um snyrtimennsku og alúð.…Lesa meira

true

Reyndi að stinga af á affelguðum bíl

Lögreglumenn á eftirlitsferð urðu varir við ökumann sem ók um með affelgað dekk snemma  síðasta sunnudagsmorgunn. Þegar lögreglumennirnir reyndu að stöðva för hans reyndi hann að stinga lögregluna af. Um síðir tókst að stöðva ökumanninn. Reyndist hann í annarlegu ástandi. Bifreiðin hafði greinilega hafnað utan vegar en komist upp á hann aftur. Vinstri hlið bifreiðarinnar…Lesa meira

true

Lífríki spora – Um fótfestu í ljóðum Þorsteins frá Hamri

Laugardaginn 24. júlí kl. 13 flytur Ástráður Eysteinsson, prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu um ljóðskáldið Þorstein frá Hamri. Ljóð hans, Draumljóð, verður einnig viðfangsefni tónskáldins Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur á sjálfri tónlistarhátínni í Reykholtskirkju sunnudaginn 25. júlí. Fyrirlesturinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Þorsteinn frá Hamri er meðal fremstu…Lesa meira