Fréttir

true

Reykhóladagar verða um helgina

Hinir árlegu Reykhóladagar verða haldnir hátíðlegir dagana 23. til 25. júlí næstkomandi. Á föstudeginum verður margt skemmtilegt á dagskrá og þar má til dæmis nefna brúðuleiksýninguna Dimmalimm, Reykhóladagahlaupið við Bjarkalund, Bjórmíluna sem er 4×400 metra hlaup með fjórum „drykkjarstöðvum“, töframaðurinn Jón Víðis verður með töfrasýningu í Reykhólabúðinni og kvöldið endar svo með BarSvari á Báta-…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður auglýsir breytingu aðalskipulags Jörundarholts og golfvallar

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar auglýsir í Skessuhorni sem kom út í dag tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness. Annars vegar er um að ræða áformaða breytingu þannig að íbúðasvæði ÍB10, sem er í Jörundarholti, verði stækkað vegna áforma um byggingu íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Í skipulagslýsingunni segir að breytingin sé liður í því að bæta húsnæðisöryggi fatlaðs…Lesa meira

true

Ellan losnaði upp og strandaði

Ella, gamla vinalega trillan sem liggur við ból á Brákarsundi á sumrin, losnaði um kaffileytið í gær á flóðinu. Rak hana undan vindi og upp í grjótgarðinn við gömlu steinbryggjuna á Suðurnesi og strandaði þar. Hún náðist á flot skömmu síðar fyrir eigin vélarafli en einnig með hjálp báts sem togaði í hana. Ekki urðu…Lesa meira

true

Fréttaritaraskipti í Dölum

Eins og margir Dalamenn vita hafa þau Karl Ingi Karlsson og Steinunn Matthíasdóttir selt KM þjónustuna og eru nú á förum úr Búðardal eftir tveggja áratuga búsetu þar. Steina hefur undanfarin ár sinnt starfi fréttaritara Skessuhorns í Dölum samhliða annarri vinnu. Við starfi fréttaritara nú tekur Bjarnheiður Jóhannsdóttir á Jörva, sem m.a. kemur að rekstri…Lesa meira

true

Fylgiskönnun MMR brotin niður eftir kjördæmum

Fréttavefurinn mbl.is í Reykjavík birti í dag skoðanakönnun sem MMR vann fyrir miðilinn 8.-14. júlí um fylgi stjórnmálaflokka í kjördæmunum sex. Þar má meðal annars sjá að allflestir flokkar, sem bjóða fram, sækja afar mismunandi mikið fylgi eftir því hvort horft er á suðvesturhorn landsins eða landsbyggðina. Ef skoðað er fylgi flokkanna í Norðvesturkjördæmi sérstaklega…Lesa meira

true

Á góðri stund í Grundarfirði um næstu helgi

Hátíðin Á góðri stund verður haldin um helgina, dagana 23. til 25. júlí, í Grundarfirði. Það er Hátíðarfélag Grundarfjarðar sem hefur umsjón með bæjarhátíðinni í ár. Skessuhorn heyrði aðeins í Guðrúnu Hrönn Hjartardóttur, sem er í stjórn Hátíðarfélagsins. Sagði hún að hátíðin yrði með lágstemmdu og kósýkenndu sniði þetta árið en að Grundfirðingar væru engu…Lesa meira

true

„Ég þakka fyrir þessa ofurhetju á hverjum degi“

Á Akranesi býr þriggja ára strákur, Martin Kristó Þórðarson, sem á sér afar áhugaverða sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hann fæddist með nokkra fæðingargalla og líf hans hefur einkennst af baráttu við þá og fleira. Það sem er einkennandi fyrir þennan strák er að hann er oftast brosandi og með ákveðni og jákvæðu hugarfari hefur…Lesa meira

true

Baulan var opnuð á fimmtudaginn

Líkt og sagt var frá í Skessuhorni í síðustu viku var Baulan í Borgarfirði opnuð að nýju fimmtudaginn 15. júlí. Búið er að gjörbreyta húsnæðinu, jafnt skipulagi sem innréttingum. Haukur Ragnarsson veitingamaður var ánægður þegar blaðamaður Skessuhorns leit við á fimmtudaginn og kvaðst bjartsýnn á framhaldið. Þá var hann reyndar enn að undirbúa opnun eldhússins…Lesa meira

true

Lokað fyrir umferð á suðurleið á móts við Fiskilæk í kvöld

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er stefnt að því, ef veður leyfir, að malbika hringveginn á móts við Fiskilæk í Melasveit í kvöld, miðvikudag og næstu nótt. Lokunin gildir þá frá kl. 21 til klukkan 09 í fyrramálið. Veginum verður lokað fyrir umferð á suðurleið, en umferð norður getur ekið meðfram framkvæmdasvæðinu. Fyrir þá sem eru…Lesa meira

true

Þýskur listamaður í einstakri siglingu umhverfis landið

Þýski listamaðurinn Peter Lang er nú í óvenjulegri ferð umhverfis Ísland. Tók hann á leigu eikarbátinn Pál Helga ÍS-142 frá Bolungarvík og réði Loft Vigni Bjarnason skipstjóra í ferðina. Málar hann í ferðinni fjölda mynda af strandlengju Íslands frá sjó. Er þetta að líkindum í fyrsta skipti sem ferð af þessu tagi er farin. Með…Lesa meira