Fréttir

true

Reynismenn með stórtap gegn Ými

Reynir Hellissandi lék gegn liði Ýmis úr Kópavogi í C-riðli fjórðu deildar karla í knattspyrnu í Kórnum í gær.  Það verður að segjast eins og er að heimamenn voru ekki mjög gestrisnir því Ýmismenn röðuðu inn mörkum í leiknum. Í fyrri hálfleik skoraði Eiður Gauti Sæbjörnsson tvö mörk fyrir Ými og þeir Jón Kristinn Ingason…Lesa meira

true

Skemmtiferða- og fiskveiðiskip koma við í Grundarfirði

Fimmtudagurinn 15. júlí síðastliðinn var æði erilsamur á höfninni í Grundarfirði. Þá voru skipin Björg og Björgúlfur við bryggju þar sem þau voru að landa og norska línuveiðiskipið Veidar kom til að taka olíu, vistir og beitu. Upp úr hádeginu kom svo skemmtiferðaskipið Dumont D’Urville og lagðist við ankeri fyrir utan. Farþegarnir af skipinu voru…Lesa meira

true

Fjórða bókin væntanleg frá Evu Björg í haust

Eins og fram kom í Skessuhorni fyrir tveimur vikum síðan þá hlaut Eva Björg Ægisdóttir rithöfundur frá Akranesi „Rýtinginn,“ verðlaun Samtaka breskra glæpasagnahöfunda árið 2021 í flokknum frumraun ársins fyrir bók sína Marrið í stiganum. En á vormánuðum var hún einnig tilnefnd til verðlauna á CrimeFest bókahátíðinni fyrir Marrið í stiganum. Þetta er virt hátíð…Lesa meira

true

Keppni eldri borgara í pútti

Eldri borgarar frá Akranesi og Borgarbyggð keppa nú níunda árið í röð í pútti. Hittast liðin þrisvar og gildir árangur sjö bestu hjá hvoru liði hverju sinni. Fyrst hittust liðin á Reykholtsdalsvelli í Nesi 23. júni síðastliðinn. Þar fóru leikar þannig að Borgarbyggð vann með 481 höggi gegn 504. Hlutirnir snérust við á Hamri í…Lesa meira

true

Hvalreki á Víkurrifi

Ungan háhyrning rak á land á Víkurrifi vestan við Grundarfjörð í síðustu viku. Hræið fannst á föstudaginn en það er mjög nálægt bílastæðinu á svæðinu. Víkurrifið er mikið notað af Grundfirðingum en vinsælt er að fara í heilsubótargöngu eftir fjörunni og svo hefur svæðið mikið verið notuð fyrir sjósund á síðustu misserum. Hræið er illa…Lesa meira

true

Skotheld leið til að plata lúsmýið

Ole Jakob Volden parketslípari á Akranesi hugsar oft út fyrir rammann. Meðfylgjandi mynd deildi hann á fésbók síðu sinni fyrr í dag og segir að eftir miklar pælingar og mælingar hafi hann fundið lausn á þessu lúsmývandamáli; „Lúsmý gildran.“ Hún svínvirkar og allir geta gert svona gildru. Það sem gerist er efirfarandi: „Lúsmýið kemur flögrandi…Lesa meira

true

Halda í dag örsýningu í Legsteinahúsi

Frændsystkinin Páll Guðmundsson og Ingibjörg Þórðardóttir á Húsafelli opna í dag klukkan 13:00 „Pop up“ sýningu í nær fullkláruðu legsteinahúsi í Húsafelli. Sýningin verður einungis opin í dag. Ingibjörg er 16 ára gömul en býr, að sögn Páls frænda hennar, yfir miklum hæfileikum í myndlistinni. Þau munu bæði sýna olíumálverk. Páll m.a. samsett panorama verk…Lesa meira

true

Góður sigur Skagamanna gegn Íslandsmeisturum Vals

Skagamenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Íslandsmeistara Vals 2:1 á Akranesvelli í Pepsi Max deildinni í gær. Þarna áttust við efsta lið deildarinnar og botnliðið. Eftir heldur dapurt gengi að undanförnu mættu heimamenn ákveðnir til leiks og gáfu allt í leikinn og voru einfaldlega betri aðilinn í fyrri hálfleik. Gáfu Valsmönnum engan frið á…Lesa meira

true

Grasasnar gefa út plötu tileinkaða John Prine

Vestlenska hljómsveitin Grasasnar lauk nýverið upptökum á nýrri plötu, sem heitir Prine, og hefur að geyma lög bandaríska lagasmiðsins og flytjandans John Prine. Meðlimir Grasasna tóku fyrir löngu ástfóstri við John Prine. En vegur hans sem lagasmiðs og flytjanda og áhrifavalds í bandarískri tónlist óx gríðarlega mikið hin síðustu ár. Upptökur á nýju plötunni stóðu…Lesa meira

true

Skuggamyndir frá Býsans á sumartónleikum í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 18. júlí kl. 16 mun hljómsveitin Skuggamyndir frá Býsans stíga á stokk í Hallgrímskirkju, en tónleikarnir eru liður í sumartónleikaröð í kirkjunni. Þetta er í þriðja sinn sem þessi hressa hljómsveit leikur í kirkjunni. Hljómsveitin leikur tónlist frá Suðaustur-Evrópu sem oft nefnist Balkantónlist en sú tónlist er annáluð fyrir dulúð og tilfinningahita. Hljómsveitin hefur…Lesa meira