
„Við opnum fimmtudaginn 15. júlí. Allir velkomnir, kaffi á könnunni og íspinnar fyrir börnin,“ segir í tilkynningu frá nýjum rekstraraðila Baulunnar í Borgarfirði. Skeljungur keypti eins og kunnugt er Bauluna í september á síðasta ári og rak hana þar til í janúar að lokað var og auglýst eftir áhugasömum sem vildu taka reksturinn að sér.…Lesa meira








