
Þjóðbúningahátíðin Skotthúfan var haldin í Stykkishólmi í blíðskaparveðri síðastliðinn laugardag. Að sögn Önnu Melsteð, eins af aðstandendum hátíðarinnar, mætti fjöldi fólks á hátíðina og heppnaðist hún mjög vel. Um morgunin fór fram sögugangan Í fótspor fjallkonu um Stykkishólm þar sem göngufólkið var í þjóðbúningum. Börnum var boðið að koma og máta sig í þjóðbúninga og…Lesa meira








