Fréttir

true

Ráslistar fyrir íþróttagreinar á FV sem hefst á miðvikudaginn

Meðfylgjandi eru ráslistar í íþróttagreinarnar á Fjórðungsmóti Vesturlands sem hefst í Borgarnesi eftir tvo daga. Ráslistar fyrir gæðingakeppnina eru væntanlegir síðar í dag. RML birtir sýningarskrár fyrir kynbótasýningarnar. Hér eru ráslistar fyrir tölt og skeið: Tölt T1 Meistaraflokkur Holl        Knapi                                                 Félag                    Hestur Nr. 1 Birgitta Bjarnadóttir                       Geysir                   Björt frá Fellskoti…Lesa meira

true

Vel heppnuð endurheimt votlendis á Snæfellsnesi

Framkvæmdum við endurheimt votlendis í landi jarðanna Hnausa og Hamraenda á sunnanverðu Snæfellsnesi lauk í desember á síðasta ári. Þó ekki sé lengra síðan hefur landið nú þegar tekið greinilegum breytingum og framförum, segir í tilkynningu frá Landgræðslunni, sem jafnframt sendi Skessuhorni meðfylgjandi myndband um verkefnið. Í vor kölluðu Sameinuðu þjóðirnar eftir áhugaverðum og vel…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Góð stemning á brekkusöng Írskra daga

Hápunktur bæjarhátíðarinnar Írskra daga á Akranesi var án efa brekkusöngurinn á Jaðarsbökkum á laugardagskvöldinu. Þar var Club-71 sem að vanda skipulagði samkomuna. Stemningin var fín, nokkur þúsund manns og fólk á öllum aldri tók undir í söng við þyrlupallinn. Það var Ingó veðurguð sem hitaði upp fyrir Helga Björns, Ágústu Evu, Halla Melló og Reiðmenn…Lesa meira

true

Fjölmenni á tjaldstæðum í landshlutanum

Fyrsta helgin í júlí hefur oft verið stærsta ferðahelgi sumarsins á Vesturlandi. Að þessu sinni var veðurspáin góð fyrir landið allt og því dreifðist fólk víða. Þétt umferð var að og frá höfuðborgarsvæðinu á föstudag og sunnudag. Mikil umferð var um landshlutann og margir sem vildu nýta góða veðrið á tjaldstæðunum. Meðfylgjandi mynd var tekin…Lesa meira

true

Mikið um að vera í Grundarfjarðarhöfn

Það var mikill erill á höfninni í Grundarfirði fimmtudaginn 1. júlí síðastliðinn en þá komu skipin Björg EA og Björgúlfur EA til löndunar um morguninn og svo rétt fyrir hádegið lagðist skemmtiferðaskipið Le Dumont D Urville að nýju bryggjunni og var það fyrsta skipið sem leggst þar að. Þar með hefst nýr kafli í hafnarsögu…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir KH

Skallagrímur mætti liði KH í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í Borgarnesi á fimmtudaginn. Sigfús Kjalar Árnason kom KH yfir á 22. mínútu og var svo aftur á ferðinni fljótlega í seinni hálfleik með sitt annað mark og lokatölur leiksins 2-0 fyrir KH. Skallagrímur er nú í fjórða sæti B-riðils með átta stig, ellefu…Lesa meira

true

Ræddu við ökumenn á leið í fríið

Í aðdraganda einnar af stærstu ferðahelgum ársins tók björgunarsveita- og slysavarnadeildarfólk vegfarendur tali á einum 50 stöðum á landinu á Safetravel deginum. Safetravel dagurinn var á föstudaginn en hann er haldinn á hverju ári. Hvatt er til góðrar og ábyrgrar ferðahegðunar á vegum sem utan þeirra. Afhentur var poki með fræðsluefni og glaðningi um leið…Lesa meira

true

Guðjón snýr aftur til Ólafsvíkur

Knattspyrnudeild Víkings Ólafsvík hefur samið við Guðjón Þórðarson um að taka við þjálfun liðsins, en eins og greint var frá hér á síðunni sagði Gunnar Einarsson þjálfari upp störfum á föstudaginn í ljósi slaks árangurs. Guðjón, sem er einn farsælasti þjálfari landsins, þarf ekki að kynna fyrir Ólsurum enda þjálfaði hann liðið á seinni hluta…Lesa meira

true

Stórtap Ólsara gegn Þrótturum

Það gengur hvorki né rekur hjá Víkingi Ólafsvík þessa dagana í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Á fimmtudaginn mættu þeir á Ólafsvíkurvelli liði Þróttar úr Reykjavík sem fyrir leikinn voru í næst neðsta sæti deildarinnar með aðeins fjögur stig og með sigri hefði Víkingur getað jafnað þá að stigum. En það gekk alls ekki eftir því…Lesa meira

true

Þjálfari Víkings tekur pokann sinn

Knattspyrnufélagið Víkingur Ólafsvík greinir frá því á Facebook síðu sinni að Gunnar Einarsson hafi óskað eftir því að láta af störfum sem þjálfari liðsins. Gunnar tók við Víkingi í haust en gengi liðsins hefur ekki staðið undir væntingum. „Með það að leiðarljósi óskaði Gunnar eftir því að fá að láta af störfum,“ segir í tilkynningu…Lesa meira