Fréttir

true

Gul viðvörun á norðanverðu Snæfellsnesi

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun um norðan- og norðvestanvert landið í dag, þriðjudag, og á morgun. Við Breiðafjörð er viðvörun í gildi til klukkan 12 á hádegi á morgun. „Sunnan hvassviðri eða stormur á Snæfellnesi, 15-23 m/s en hægari vindur annarsstaðar á spásvæðinu. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, að 35 m/s. Getur…Lesa meira

true

Ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag að gengið verði frá ráðningu Sigfríðar Björnsdóttur í starf skólastjóra Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Eins og kunnugt er sagði Theodóra Þorsteinsdóttir upp starfi sínu við skólastjórn í vor. Alls bárust 15 umsóknir um stöðu skólastjóra. Sigfríður mun hefja störf 1. ágúst. Á vef Borgarbyggðar er sagt frá því að…Lesa meira

true

Þverárrétt verður flýtt um eina viku í haust

Erindi fjallskilanefndar Þverárréttar í Borgarfirði var lagt fyrir byggðarráð Borgarbyggðar í síðustu viku. Nefndin óskaði eftir því að leitum og þar með réttum í Þverárrétt haustið 2021 verði flýtt um eina viku þannig að fyrsta rétt fari fram mánudaginn 13. september í stað 20. september. „Þetta telur nefndin nauðsynlegt til þess að minnka líkur á…Lesa meira

true

Komin er út skýrsla um stangveiðina á síðasta ári

Sumarið 2020 var skráð stangveiði í ám hér á landi 45.124 laxar. Af þeim var 49,5% sleppt aftur og var heildarfjöldi landaðra laxa því 22.797. Af veiddum löxum voru 36.022 smálaxar eftir eitt ár í sjó. Alls var þyngd landaðra laxa í stangveiði 63,5 tonn sem þýðir að meðalþyngd laxa sem komu á land var…Lesa meira

true

Samþykktu vinnslutillögu að breytingu aðalskipulags í Húsafelli til kynningar

Byggðarráð Borgarbyggðar fjallaði á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag um tillögu að vinnslutillögu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022, sem snertir Húsafell. Lögð var fram vinnslutillaga sem dagsett er 7. júní 2021 og unnin af Alta. Í tillögunni er landnotkun skilgreind fyrir verslun, þjónustu, íbúða- og frístundabyggð sunnan þjóðvegar í Húsafelli. „Markmið breytingartillögunnar er að skilgreina landnotkun svæðisins…Lesa meira

true

Spáð hvassviðri á norðanverðu Snæfellsnesi á morgun

Á morgun verður allhvasst á norðvestanverðu landinu. Spáð er sunnan og suðvestan 10-18 m/s og að hviður gætu farið í 30 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi fram yfir hádegi. Sömuleiðis verður hvasst í vindstrengjum við fjöll á Vestfjörðum. „Slíkur vindur gæti verið varasamur fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi,“ segir í athugasemd veðurfræðings.Lesa meira

true

ÍA mætir FH í Mjólkurbikarnum

Dregið var í hádeginu í dag í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu. Skagamenn voru eina liðið af Vesturlandi í pottinum og mæta þeir liði FH á heimavelli 11. eða 12. ágúst. Aðrir áhugaverðir leikir í 16-liða úrslitunum eru leikir Víkings Reykjavíkur og KR, Vestra og Þórs Akureyri og 3. deildarlið KFS, sem sló út…Lesa meira

true

Selfoss vann Víking Ólafsvík í markaleik

Selfoss og Víkingur Ólafsvík áttust við á Selfossi í Lengjudeild karla á laugardaginn í stórskemmtilegum leik. Hrvoje Tokic, fyrrum leikmaður Víkings, kom Selfyssingum yfir á tíundu mínútu og 15 mínútum síðar bætti Tokic við öðru marki og staðan orðin 2-0. Fjögur mörk komu á síðustu sex mínútum fyrri hálfleiks; Kareem Isiaka minnkaði muninn fyrir Víking…Lesa meira

true

KM náði í sitt fyrsta stig gegn Reyni Hellissandi

Reynir Hellissandi lék gegn liði KM í gær á KR vellinum í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu. Heimir Þór Ásgeirsson kom Reynismönnum yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks með sínu sjöunda marki í sumar. KM náði hins vegar að jafna á 82. mínútu leiksins með marki frá Luis Sanchez og fyrsta stig KM í sumar…Lesa meira

true

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull stækkaður á afmælisári

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 28. júní árið 2001 og á því 20 ára afmæli í dag. Fjölbreytt dagskrá hefur verið í gangi undanfarna daga í þjóðgarðinum sem náði hámarki í gær þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði reglugerð um stækkun þjóðgarðsins við athöfn sem fram fór á Malarrifi. Stækkar garðurinn nú um 9%…Lesa meira