Fréttir

true

Skagamenn áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins

ÍA vann góðan 3-0 sigur á fyrstu deildar liðinu Fram í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þegar liðin mættust á Akranesvelli í gærkvöldi í einmuna veðurblíðu. Fyrsta mark kom strax á fimmtu mínútu frá heimamönnum. Þá átti Alex Davey flotta sendingu inn fyrir vörn Fram á Morten Beck, sem skilaði boltanum í netið, 1-0 fyrir ÍA. Stuttu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík úr leik í Mjólkurbikarnum

Eyjamenn í KFS slógu Ólsara úr keppni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu þegar liðin áttust við fjörugum leik í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Lokatölur voru 4-2 KFS í vil. Það voru heimamenn sem áttu fyrsta mark leiksins sem kom á 35. mínútu þegar Elmar Erlingsson skilaði knettinum í netið fyrir Eyjamenn. Heimamenn héldu eins…Lesa meira

true

Knattspyrna í hinum ýmsu myndum á Akranesi

Norðurálsmótið í 7. og 8. flokki í knattspyrnu fór fram á Akranesi um liðna helgi. Mótið var að þessu sinni það 36. í röðinni og alls voru keppendur 1.750. Gott veður var alla dagana fyrir utan smá dropa á föstudeginum og ljóst að keppendur og allir þeirra fylgifiskar skemmtu sér konunglega alla helgina. Sjá myndafrásögn…Lesa meira

true

Helgrindur opnaðar í Grundarfirði

Nýtt hótel er við það að taka til starfa miðsvæðis í Grundarfirði þar sem bæjarskrifstofurnar voru áður til húsa. Hótelið ber nafnið Helgrindur eftir fjallgarðinum fyrir ofan bæinn. Herbergin á nýja hótelinu eru öll hin glæsilegustu með frábæru útsýni. Þórður Áskell Magnússon er í forsvari fyrir hótelið en búist er við að opna fyrir bókanir…Lesa meira

true

Sýningin Borgarfjarðarblómi verður opnuð á laugardaginn

Sýningin Borgarfjarðarblómi, eftir Viktor Pétur Hannesson, verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsi Borgarfjarðar á morgun, 26. júní. Þar mun Viktor sýna verk sem hann hefur unnið með jurtum úr Borgarfirði. Viktor kemur af Austfjörðum en hefur lengst af búið í Reykjavík en býr í dag á Stokkseyri. Hann útskrifaðist af myndlistarbraut frá Listaháskóla Íslands árið…Lesa meira

true

Brákarhátíð með breyttu sniði í ár

Ákveðið hefur verið að halda Brákarhátíð, bæjarhátíðina í Borgarnesi, með öðruvísi sniði í ár. Hollvinasamtök Borgarness hafa séð um skipulagningu hátíðarinnar síðustu ár og ákváðu samtökin að í ár yrðu minni viðburðir skipulagðir yfir sumartímann undir yfirskriftinni Viðburðardagatal Brákarhátíðar 2021. Er þetta gert í stað einnar stórrar hátíðar. Helsta ástæða þessarar breytingar er vegna Covid-19…Lesa meira

true

Golfmótið Víkingur Valkyrja í Grundarfirði

Golfklúbburinn Vestarr í Grundarfirði hélt golfmótið Víkingur Valkyrja síðasta föstudagskvöld. Fyrirkomulag mótsins var útsláttarkeppni þar sem allir keppendur léku á sama teig, karlar af gulum og konur af rauðum. Lægsta skorið var talið þar sem einn féll út á hverri holu og að lokum var einn sigurvegari í hvorum flokki. Í karlaflokki sigraði Steinar Þór…Lesa meira

true

Hraðapróf til sýnatöku tekið í notkun á heilsugæslustöðvum

Heilsugæslan hefur tekið í notkun hraðapróf til greiningar á kórónuveirunni sem veldur Covid-19. Hraðaprófin eru ekki notuð við einkennasýnatöku, heldur eru þau eingöngu ætluð þeim sem þurfa á þeim að halda, t.d. vegna ferðalaga, þar sem krafist er neikvæðrar niðurstöðu úr sýnatöku á landamærum og niðurstaða úr hraðprófi er tekin gild. Gjald fyrir sýnatöku með…Lesa meira

true

Kvennalið ÍA fékk skell á heimavelli

Meistaraflokkur kvennaflokks ÍA í knattspyrnu fékk Víking R. í heimsókn á Akranesvöll í gærkvöldi þegar liðin áttust við í sjöundu umferð Lengjudeildar kvenna. Gestirnir úr Reykjavík reyndust sterkari aðilinn og unnu Skagakonur nokkuð sannfærandi, 5-1. Fyrri hálfleikur var frekar tíðindalítill. Eina markið kom á 11. mínútu frá Víkingi R. þegar Kristín Erna Sigurlásdóttir skilaði boltanum…Lesa meira

true

Bikarkeppnin heldur áfram – þrjú Vesturlandslið í eldlínunni

Nokkrir leikir í Mjólkurbikar karla í knattspyrnu fara fram í dag og á morgun. Um er að ræða 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins en þrjú lið eru nú þegar búin að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Tvö Vesturlandslið verða í eldlínunni í kvöld. Víkingur Ólafsvík mætir KFS á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum kl. 18:00 og ÍA…Lesa meira