Fréttir

true

Sýndi börnunum íbúa undirdjúpanna

Eymar Einarsson sjómaður á Akranesi gerði nýverið ferð á leikskólann Akrasel. Hafði hann meðferðis nokkra fiska sem hann sýndi börnunum. Eins og sjá má þá vakti þessi heimsókn mikla lukku meðal barnanna, enda hafa mörg þeirra aldrei séð slíka fiska áður. Því var mikið spáð og spurt og ekki stóð á upplýsingunum frá Eymari. Meðfylgjandi…Lesa meira

true

Lions gaf hesteigendafélaginu reiðhjálma

Hestaeigendafélagið Hringur í Ólafsvík fékk góða gjöf á dögunum þegar félaginu voru færðir barnareiðhjálmar. Munu hjálmarnir nýtast félaginu vel en þeir voru teknir í notkun þegar félagið var með opið hús á 17. júní. Það var Lionsklúbbur Ólafsvíkur sem færði félaginu þessa góðu gjöf og vilja félagsmenn fá að nýta tækifærið og koma á framfæri…Lesa meira

true

Útvegsfyrirtæki sameinuð

Tilkynnt hefur verið um að frá og með 1. júlí næstkomandi renna formlega saman í eitt útgerðarfyrirtækin Runólfur Hallfreðsson ehf. frá Akranesi og Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað. Runólfur Hallfreðsson ehf. var til áratuga fjölskyldufyrirtæki sem gerði út togarann Bjarna Ólafsson AK frá Akranesi.Lesa meira

true

Aflahæsti grásleppubáturinn gerður út frá elstu verstöð landsins

Það má heldur betur segja að grásleppuvertíðin hafi gengið vel hjá áhöfn Hugrúnar DA-1 sem gerð var út frá Skarðsstöð á Skarðsströnd í Dölum. Það eru feðgarnir Gísli Baldursson og Baldur Þórir Gíslason, ásamt Quentin Monner, sem skipa áhöfn Hugrúnar en mokveiði hefur verið hjá þeim á Breiðafirði síðustu vikur. Vertíðinni lauk í gær, miðvikudaginn…Lesa meira

true

Tólf íbúða blokk reist á einum degi

Um síðustu helgi lagðist lítið flutningaskip að bryggju á Akranesi. Um borð voru einingar sem fljótlega var hafist handa við að skipa á land. Á þriðjudag var ekið með þessar einingar í lögreglufylgd að lóðinni Asparskógum 19 í Skógarhverfi og tólf íbúða húsi á tveimur hæðum raðað upp á sökklana. Lauk því verki samdægurs. Næsta…Lesa meira

true

Skálinn opnaður á Hreðavatni

Í síðustu viku var Hreðavatnsskáli opnaður að nýju eftir gagngerar breytingar á húsunum. Fjölskyldan sem rekur Hraunsnef sveitahótel keypti Hreðavatnsskála fyrr á þessu ári. Frá því gengið var frá kaupunum í vor hefur húsnæðið verið lagfært og breytingar verið gerðar á skipulagi innan dyra. Í Skálanum er nú veitingasala, lítil nýlenduvöruverslun, hostel en auk þess…Lesa meira

true

Jökullinn umvafinn bleikum skýjum

Á Jónsmessunótt segir þjóðsagan að happadrjúgt geti verið fyrir húsbændur að fara út og hoppa umhverfis hús sín, helst íklæddir annarri skálminni á brókum sínum og velta sér upp úr dögginni. En Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns hafði öðrum hnöppum að hneppa og hélt til veiða, enda stundar hann strandveiðar af kappi. Á útstíminu tók hann…Lesa meira

true

Færeyingarnir öflugir í Langánni

Við birtum í gær mynd af Jögvan Hansen söngvara og stangveiðimanni þar sem hann hampaði búttuðum laxi úr opnun Langár á Mýrum um síðustu helgi. Hollið sem nú var að ljúka veiðum í ánni þurfti aldeilis að hafa fyrir hlutunum, því einungis tveir laxar komu á land. „Það er mjög lítið af fiski komið í…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna hvassviðris frá því í kvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris um allt norðanvert landið og miðhálendið, eða svæði sem nær frá Breiðafirði í vestri, um Vestfirði, Strandir, Norðurland vestra, Norðurland eystra og miðhálendið. Hvessir í kvöld og verður slæmt veður allan föstudaginn á þessu svæði. Viðvörun vegna hvassviðris á Breiðafirði nær frá klukkan 21 í kvöld og…Lesa meira

true

Ákvæði um forgangsröðun við bólusetningu afnumin

Samkvæmt áætlun verður í lok þessarar viku búið að bjóða öllum bólusetningu gegn Covid-19 sem skilgreindir eru í forgangshópum samkvæmt gildandi reglugerð um bólusetningar. Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að fella brott ákvæði reglugerðar sem kveður á um forgangshópa. Bólusetning gegn Covid-19 byggist þar með á sömu reglugerðarheimildum og bólusetning við öðrum smitsjúkdómum hér á landi. Með…Lesa meira