
Uppbygging gönguleiða á vegum hins nýstofnaða Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs hófst með látum í gær þegar sjálfboðaliðar á vegum félagsins tóku til hendinni í hlíðum Hafnarfjalls. Níu manns, nefndarfólk í Stikunefnd og fleiri félagsmenn, mættu í fjallið með naglbíta og sleggjur. Verkefni dagsins var að rífa niður girðingu sem var búin að ganga frá starfslokasamningi fyrir nokkru.…Lesa meira








