Fréttir

true

Ætlaði bara að gera sitt besta og dúxaði

Föstudaginn 28. maí síðastliðinn voru 27 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Marinó Þór Pálmason var dúx skólans með 9,59 í lokaeinkunn. Marinó útskrifaðist af náttúrufræðibraut en hann valdi þá braut því hún hentaði hans áhugasviði best. „Ég hef alltaf verið mjög sterkur í raungreinum og áhuginn minn liggur þar,“ segir hann. Spurður hver sé lykillinn…Lesa meira

true

Leggja til að fyrirhugaðri aðalskipulagsbreytingu verði hafnað

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar mánudaginn 7. júní lagði nefndin til við sveitarstjórn að hafna fyrirhugaðri aðalskipulagsbreytingu vegna vindorkugarðs á Grjóthálsi. Óskað var eftir að gerð yrði breyting á aðalskipulagi þar sem nýtt iðnaðarsvæði yrði skilgreint, tæplega 400 hektara land ætlað virkjun vindorku. Borgarbyggð auglýsti í vetur eftir athugasemdum allra þeirra sem telja sig…Lesa meira

true

Deildarmyrkvi í dag

Í dag, fimmtudaginn 10. júní, mun deildarmyrkvi á sólu sjást frá Íslandi, ef skýin leyfa. Í deildarmyrkva fer tunglið að hluta til fyrir sólina en þó ekki svo það verði almyrkvi. Haft er eftir Þórði Arasyni, sérfræðingi á Veðurstofu Íslands, á vef Veðurstofu Íslands að þetta verði mesti sólmyrkvi hér á landi frá því 20.…Lesa meira

true

Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma

Undirritun viljayfirlýsingar milli Elkem, Veitna, Carbfix, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og Þróunarfélags Grundartanga um föngun og niðurdælingu á koldíoxíði og nýtingu glatvarma til hitaveitu. Lykilatriði: Föngun kolefnis úr útblæstri iðnfyrirtækja á Grundartanga sem verður dælt niður í borholur á svæðinu, ásamt nýtingu glatvarma frá þeirri starfsemi til hitaveitu Markmið að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, efla…Lesa meira

true

Verslun Öldunnar opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar

Búið er að opna verslun Öldunnar í Safnahúsi Borgarfjarðar. Fram kemur á vef Borgarbyggðar að Aldan bjóði upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjálfun fyrir fatlað fólk. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annars vegar og dósamóttöku hins vegar. Starfsemi Öldunnar kemur til móts við þarfir fatlaðs fólks fyrir atvinnu og hæfingartengda þjónustu sem stuðlar að…Lesa meira

true

Hvalfjarðargöng aftur lokuð næstu nótt

Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna vinnu og þrifa frá miðnætti til kl. 06:30 í morgun og verða aftur lokuð næstu tvær nætur á sama tíma, aðfararnætur, fimmtudags og föstudags. Frá þessu er greint á vef Vegagerðarinnar. Hjáleið verður um Hvalfjarðarveg á meðan.Lesa meira

true

Skildi vegabréfið eftir á innbrotsstað

Á mánudagsmorgun barst lögreglu tilkynning um að brotist hefði verið inn í nokkur fyrirtæki við Ægisbraut á Akranesi. Unnar höfðu verið skemmdir á húsum auk þess veggjakrotað hafði verið á þau. Þá hafði verið klippt á snúrur eftirlitsmyndavéla. Hurð hafði verið spennt upp á einu fyrirtækinu. Þar inni fannst taska með töluverðu magni af spreybrúsum…Lesa meira

true

HEIMASKAGI – fyrsta býlið á Skipaskaga

Skipaskagi: Ysti tangi Akraness sem kaupstaðurinn stendur á mun að fornu hafa heitið Skagi, en síðar, það er á 17. öld þegar Brynjólfur biskup Sveinsson í Skálholti hóf útgerð í stórum stíl á Skaga, hlaut hann nafnið Skipaskagi, m.a. vegna fjölda þeirra skipa sem biskup gerði út. Einnig gæti nafnið verið tilkomið til að aðgreina…Lesa meira

true

Íslendingar gegna mikilvægu hlutverki í rekstri barnaheimilis í Kenía

Inga Jóna Pálsdóttir býr á Akranesi en síðustu tvö ár hefur hún varið miklum tíma í Kenía sem sjálfboðaliði á barnaheimilinu Haven Rescue Home, HRH. Heimilið er ætlað ungum barnshafandi stúlkum og mæðrum sem eru 18 ára eða yngri. Heimilið opnaði Anna Þóra Baldursdóttir í maí 2017 og hafa búið þar yfir 70 einstaklinga í…Lesa meira

true

Stefna á að gera Barnafoss laxgengan

Samþykkt var á aðalfundi Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts í Borgarfirði þriðjudaginn 1. júní síðastliðinn að félagið heimilaði fyrir sitt leyti framkvæmdir á vatnasvæði félagsins með það að markmiði að fiskur geti gengið í Norðlingafljót. Lengi hafa verið uppi fyrirætlanir í þessa veru og niðurstaða þeirrar vinnu meðal annars sú að um aldamótin síðustu var hannaður…Lesa meira