Fréttir

true

Víkingur Ó náði í sitt fyrsta stig

Víkingur Ólafsvík gerði jafntefli við lið Þórs frá Akureyri í 1. deild karla, Lengjudeildinni í Ólafsvík á laugardaginn. Gestirnir í Þór komust yfir á tíundu mínútu leiksins með marki Orra Sigurjónssonar áður en Kareem Isiaka jafnaði metin fyrir heimamenn skömmu fyrir leikhlé. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks náðu Þórsarar hins vegar aftur forystunni þegar Jakob Snær…Lesa meira

true

Viðreisn kynnir framboðslista í Norðvesturkjördæmi

Viðreisn kynnti í dag framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fara fram 25. september. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarney Bjarnadóttir, kennari. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar – ungliðahreyfingar Viðreisnar, er í 3. sæti og Ingunn Rós Kristjánsdóttir sálfræðinemi í 4. sæti. Guðmundur kveðst afar stoltur af því að…Lesa meira

true

Soffía í Einarsnesi mun ferðast með Sumarlandanum

Sumarlandinn, sem er nokkurs konar sumarútgáfa Landans, var á dagskrá RUV í fyrrasumar og fékk góðar viðtökur að sögn Gísla Einarssonar þáttarstjórnanda. Hann upplýsir að þátturinn verður aftur á dagskrá frá 20. júní í sumar. Tónlistarmaðurinn KK var með í för í Sumarlandanum í fyrra og lag hans „Þetta lag er um þig,“ sem frumflutt…Lesa meira

true

Breyta olíutanki í íbúð

Á sjávarbakkanum í útjaðri Rifs á Snæfellsnesi stendur gamall olíutankur svolítið einn og yfirgefinn. Hann gegnir ekki lengur upprunalegu hlutverki sínu og hafa núverandi eigendur, Hildigunnur Haraldsdóttir arkitekt og Þórir Gunnarsson matreiðslumaður, sótt um leyfi til þess að breyta tankinum í íbúðarhúsnæði. Umsóknin var tekin fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsnefndar í febrúar en frestað…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn sjómenn!

Sjómannadagurinn er í dag. Í tilefni hans eru hátíðarhöld víðsvegar við sjávarsíðuna. Dagskráin er misjafnlega umfangsmikil eins og gengur í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu, en hér á Vesturlandi er hún einkum í Grundarfirði, Snæfellsbæ og á Akranesi en auk þess er dagskrá í Stykkishólmi. Fólk er hvatt til þátttöku og gleðjast með sjómönnum og fjölskyldum…Lesa meira

true

Forsetafrúin afhjúpaði Veðurhorfur – 112 orð íslenskrar tungu um vind

Síðdegis í gær var listaverkið Veðurhorfur eftir Sólrúnu Halldórsdóttur afhjúpað í Grundarfirði við hátíðlega athöfn.  Frú Elíza Reid forsetafrú sá um afhjúpunina en henni til aðstoðar var blómarósin Elísa Gunnarsdóttir, frænka listakonunnar. Veðurhorfum var komið fyrir í hallanum milli kirkjunnar og Fellaskjóls í Grundarfirði og sýnir 112 nöfn á vindi, allt frá blankalogni til gjörningaveðurs.…Lesa meira

true

Liv Åse er nýr formaður Krabbameinsfélag Akraness

Liv Åse Skarstad var kjörin nýr formaður Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis á aðalfundi félagsins nýverið. Liv Åse er móðir Ólavíu sjö ára Skagastúlku sem barist hefur við krabbamein síðustu tvö ár. „Ég ákvað að gefa kost á mér í stjórn félagsins en var svo beðin um að taka við sem formaður,“ segir Liv Åse sem…Lesa meira

true

Allir vinir

Lífið í sveitinni getur verið ljúft eins og þessi mynd ber með sér. Á henni eru þau Marie Greve Rasmussen, íslenski fjárhundurinn Ósar, hrúturinn Svenni Skakki og svarta hænan á bænum Steinsholti í Svínadal. Snókur er svo í baksýn. Það var Josefine Morell sem smellti af myndinni.Lesa meira

true

Hótel Laugar í Sælingsdal opnað á mánudaginn

Hótel Laugar í Sælingsdal verður opnað 7. júní næstkomandi. „Við tókum bygginguna á leigu frá 1. janúar á þessu ári en þarna hefur ekkert verið síðan Hótel Edda var rekin í húsinu 2019,“ segir Harpa Einarsdóttir hótelstjóri og einn af rekstraraðilum Hótel Lauga í Sælingsdal. Hótelið er í eigu Heilsusköpunar ehf. sem þær Harpa og…Lesa meira

true

Héldu upp á 50 ára fermingarafmæli

Hluti úr árgangi ´57 úr Borgarnesi kom saman á laugardaginn til að fagna 50 ára fermingarafmæli sínu. Hópurinn var fermdur af séra Leó Júlíussyni á hvítasunnudegi 30. maí 1971 í Borgarnesskirkju á björtum og fallegum degi. Alls voru 26 sem fermdust þennan dag en 14 mættu á endurfundinn í Borgarnesi um helgina. Fermingarsystkinin byrjuðu á…Lesa meira