Fréttir

true

Baldur dró vélarvana bát til Akraness

Sjómælingaskip Landhelgisgæslunnar, Baldur, dró Kvist KÓ-30, rúmlega fimm brúttótonna fiskibát, til hafnar á Akranesi síðdegis í gær. Samkvæmt heimildum Skessuhorns varð báturinn vélarvana og dó á öllum tækjum þegar hann var staddur um sjö sjómílur vestur af Þormóðsskeri en báturinn var á leið á Arnarstapa. Einn maður var um borð í bátnum og sakaði hann…Lesa meira

true

Skaginn 3X smíðar nýtt uppsjávarvinnslukerfi fyrir Loðnuvinnsluna

Skaginn 3X hefur undirritað samning um smíði nýs uppsjávarvinnslukerfis fyrir starfsemi Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Það mun auka sjálfvirkni og vinnslugetu Loðnuvinnslunnar en stefnt er að því að auka afköst vinnslunnar í allt að 400 tonn á sólarhring sem er um 70% afkastaaukning frá því sem nú er. „Nýja kerfið er hannað til að framleiða hágæða…Lesa meira

true

Dósamóttakan opnar á ný á Akranesi

Dósamóttaka Fjöliðjunnar á Smiðjuvöllum á Akranesi hefur nú verið opnuð aftur eftir nokkurra vikna lokun vegna sóttvarna. Opnunartími er alla virka daga frá kl. 08.00-11.45 og 13.00-15.30. Viðskiptavinum er bent á að virða grímuskyldu og fjarlægðartakmörk ásamt því að sýna biðlund því búast má við töluverðri örtröð næstu dagana.Lesa meira

true

Rann úr kerrunni við sjósetningu

Betur fór en á horfðist þegar handfærabáturinn Hvalsá SH var settur á flot í uppsátrinu í Ólafsvík á laugardaginn. Báturinn rann úr vagninum sem hann hafði verið fluttur á og var einstakt lán að engar skemmdir urðu við þessa hröðu sjósetningu.Lesa meira

true

140 keppendur tóku þátt í stærsta enduromóti síðari ára

Um liðna helgi hélt Enduro Fyrir Alla sína fyrstu keppni sumarsins. Fór hún fram í Syðra-Langholti í Hreppum. Metþátttaka var á mótinu en hátt í 140 keppendur voru skráðir til leiks. Keppt er í brautarakstri og var brautin í ár hátt í ellefu kílómetrar. Keppnin reynir á hæfni og þol keppenda og voru flestir keppendur…Lesa meira

true

Fjöldi umsókna um störf hjá Norðuráli fór fram úr væntingum

Alls bárust 666 umsóknir um sumarstörf hjá Norðuráli í ár. Þá auglýsti fyrirtækið einnig laus störf í ker- og steypuskála á sama tíma og bárust 159 umsóknir í þau störf. Alls sóttu því 825 um störf hjá álverinu. Í tilkynningu frá Norðuráli kemur fram að nýráðningar vegna sumarstarfa voru alls 109 en þar til viðbótar…Lesa meira

true

Málþing á morgun um þjóðvegi á hálendinu

Vegagerðin stendur fyrir málþingi um þjóðvegi á hálendinu í beinu streymi á morgun, þriðjudaginn 11. maí frá klukkan 9.00 til 12.30. „Eitt af verkefnum Vegagerðarinnar samkvæmt samgöngáætlun 2020-2034 er að móta stefnu um hönnun vega á hálendi Íslands í samræmi við áherslur í landsskipulagsstefnu. Vegagerðin stígur nú sín fyrstu skref í þessa átt en vill…Lesa meira

true

Níu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi

Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi kom saman í gærkvöldi og fór yfir þau framboð sem bárust vegna prófkjörs sem fram fer 16. og 19.júní næstkomandi. „Alls bárust átta framboð fyrir lok tilskilins framboðsfrests og voru þau öll úrskurðuð gild. Að auki bætti kjörnefnd við einu framboði líkt og prófkjörsreglur heimila. Um er að ræða fjórar konur…Lesa meira

true

Snæfellsstúlkur sigruðu í framlengdum leik

Snæfell endaði tímabilið á góðum sigri gegn Breiðabliki í framlengdum leik í Stykkishólmi í lokaumferð Domino’s deild kvenna í körfuknattleik á laugardaginn. Leikurinn spilaðist jafnt alveg til lokaleikhluta sem endaði í jafntefli, 70-70, og fór því leikurinn í framlengingu. Liðin héldu uppteknum hætti í framlengingunni og skiptust á körfum, hægri – vinstri. Það var ekki…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn töpuðu fyrsta leiknum í úrslitakeppninni

Skallagrímsmenn þurftu að sætta sig við tap gegn Álftanesi í fyrstu viðureign liðanna í 8-liða úrslitum 1. deildar karla í körfuknattleik. Liðin áttust við á Álftanesi síðastliðinn föstudag. Heimamenn voru sterkari aðilinn í upphafi leiks og leiddu með fimm stigum eftir fyrsta fjórðung. Álftnesingar juku forskot sitt enn frekar í öðrum leikhluta og leiddu með…Lesa meira