Fréttir

true

Skallagrímsstúlkur komnar í sumarfrí

Skallagrímur tók á móti Fjölni í síðustu umferð Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og þurftu heimastúlkur að sætta sig við 19 stiga tap. Fjölnir, sem hefur þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni, reyndist sterkara liðið og var ávallt skrefinu á undan Skallagrími. Gestirnir úr Grafarvoginum enduðu fyrri hálfleikinn sterkt og náðu að skora…Lesa meira

true

Breyting á opnunartíma sundlaugar í Borgarnesi

Frá og með deginum í dag mun sundlaugin í Borgarnesi verða opnuð hálftíma síðar á virkum dögum en venja hefur verið til. Er þetta, að sögn sveitarstjóra, hluti af innleiðingu styttingu vinnuvikunnar sem tók gildi 1. maí síðastliðinn. Í staðinn fyrir að sundlaugin verði opnuð klukkan 06:00 mun hún verða opnuð hálftíma síðar, kl. 06:30.…Lesa meira

true

Átak í aðgengismálum fyrir fatlaða

Í samgönguráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu hefur verið ýtt úr vör stórátaki um úrbætur í aðgengismálum fyrir fatlað fólk. Það er gert í samvinnu við Öryrkjabandalag Íslands og sveitarfélög um land allt. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga mun leggja fram helming fjármagns í úrbætur á móti sveitarfélögum. „Ríki og sveitarfélög munu taka höndum saman um að bæta aðgengi fyrir fatlað…Lesa meira

true

Um helmingur hefur fengið fyrri sprautuna

Fyrir síðustu helgi höfðu um 51.000 einstaklingar verið fullbólusettir hér á landi gegn Covid-19 og um 140.000 höfðu fengið a.m.k. einn skammt af bóluefni, en það eru um 48% þeirra sem áætlað er að bólusetja. Bólusetningu forgangshópa miðar vel, segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að allir einstaklingar í þeim níu forgangshópum…Lesa meira

true

Uppbygging tveggja tengivega í útboð

Vegagerðin auglýsti nýverið eftir tilboðum í tvær nýframkvæmdir á Vesturlandi; í Melasveit og uppsveitum Borgarfjarðar. Fyrra verkið snýst um endurbyggingu, breikkun, styrkingu og lögn bundins slitlags á um 4,9 kílómetra kafla af Melasveitarvegi frá Bakka að svínabúinu á Melum. Skal því verki verða lokið fyrir 30. júní á næsta ári. Hins vegar er boðin út…Lesa meira

true

Fulltrúar Arnardals og X-ins í Stykkishólmi keppa fyrir hönd Vesturlands

Söngkeppni Samfés í beinni á RUV í dag frá Akranesi Það verður margt um manninn í Bíóhöllinni á Akranesi í dag, þegar Söngkeppni Samfés verður þar haldin. Í undankeppninni hér á Vesturlandi kepptu níu atriði félagsmiðstöðva á Vesturlandi til úrslita en í SamVest eru félagsmiðstöðvarnar Afdrep í Snæfellsbæ, Arnardalur á Akranesi, Eden í Grundarfirði, Hreysið…Lesa meira

true

Lilja Rafney tekur annað sætið

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi, lýsti því yfir á landsfundi hreyfingarinnar um liðna helgi að hún ætli að taka 2. sætið á lista í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í haust. Lilja Rafney bauð sig eins og kunnugt er fram í oddvitasæti í forvali í apríl en varð að lúta í lægra haldi fyrir…Lesa meira

true

Sanngjarnt jöfnunarmark Skagamanna í blálokin

Skagamenn tóku í gærkvöldi á móti Víkingi Reykjavík í fyrsta heimaleik sínum á tímabilinu í Pepsí Max deildinni. Miðað við gang leiksins þá var það sanngjarnt að Skagamenn náðu að jafna þegar Þórður Þorsteinn Þórðarson skoraði úr vítaspyrnu á 89. mínútu með föstu skoti í vinstra hornið. En vítaspyrnan var dæmd á Kára Árnason varnarmann…Lesa meira

true

Tap hjá Kára í fyrsta leik

Knattspyrnufélagið Kári byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu í 2. deild, þegar þeir mættu KF í Akraneshöllinni í gær. Þeir máttu sætta sig við tap 2:3. En það hafði vissulega áhrif að Andra Júlíussyni var vísað af leikvelli á 69. mínútu með sitt annað gula spjald í leiknum fyrir litlar sakir í…Lesa meira

true

Fyrsti heimaleikur Skagamanna í kvöld

Fyrsti heimaleikur Skagamanna á þessu tímabili í Pepsi Max deild karla verður í kvöld á Akranesvelli og hefst kl. 19.15. Víkingur Reykjavík eru mótherjar Skagamanna en í fyrstu umferðinni unnu þeir Keflvíkinga 1-0 á meðan Skagamenn töpuðu fyrir Valsmönnum 2-0. Einungis mega 200 manns mæta á leikinn sökum sóttvarnareglna og verða þeir í merktum sætum…Lesa meira