Fréttir

true

Slökkviliðsmenn komnir á bakvakt vegna óvissuástands

Mikill viðbúnaður er nú hjá Slökkviliði Borgarbyggðar vegna óvissustigs almannavarna, sem lýst var yfir fyrr í vikunni vegna þurrka og eldhættu um allt suðvestanvert landið. Að sögn Bjarna Kristins Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra er nú búið að festa fjóra menn á bakvaktir á fjörum starfsstöðvum Slökkviliðs Borgarbyggðar allar helgar meðan óvissustigið ríkir. Sömu sögu er að segja…Lesa meira

true

Tvö ár frá frá bruna í Fjöliðjunni á Akranesi – myndasyrpa

Í dag eru rétt tvö ár frá bruna sem varð í húsnæði Fjöliðjunnar, vinnu- og hæfingarstaðar, við Dalbraut á Akranesi. Nokkru eftir brunann var starfsemi vinnustaðarins komið fyrir í bráðabirgðahúsnæði í Akurshúsinu við Smiðjuvelli. Aðstaðan þar er góð svo langt sem hún nær, að sögn starfsfólks, en engan veginn hentug fyrir mismunandi þarfir allra sem…Lesa meira

true

Boða tilslakanir á sóttvarnareglum frá 10. maí

Fjöldatakmarkanir fara úr 20 í 50 manns, sund- baðstaðir og líkamsræktarstöðva mega taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, hámarksfjöldi þátttakenda í íþróttum og sviðslistum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarksfjöldi gesta á sitjandi viðburðum fer úr 100 í 150 manns. Þá verður opnunartími veitingastaða lengdur um klukkustund. Einnig verða…Lesa meira

true

Loðnuafurðir gera aprílmánuð að metmánuði í útflutningi

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 27,3 milljörðum króna í apríl síðastliðnum samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum sem Hagstofan birti í vikunni. Það er tæplega 54% aukning í krónum talið miðað við apríl í fyrra. Gengi krónunnar var að jafnaði um 5% sterkara nú í apríl en í sama mánuði í fyrra og er aukningin þar með meiri í erlendri…Lesa meira

true

Viðgerðar hafnar á ytra byrði Innra-Hólmskirkju

Nú í vikubyrjun hófst viðgerð á Innra-Hólmskirkju við Hvalfjörð. Að sögn séra Þráins Haraldssonar sóknarprests er fyrirhugað að gera við steypuskemmdir og mála kirkjuna, skipta um þak og laga tréverkið í turninum. Vonir standa til að viðgerðum geti lokið á næsta ári, en það ár verður kirkjan 130 ára. Upprunalega var Innra-Hólmskirkja byggð úr timbri,…Lesa meira

true

Naumt tap Skagans í Lengjudeild kvenna

Meistaraflokkur ÍA spilaði sinn fyrsta leik í Lengjudeildinni í gærkveldi þegar þær mættu Gróttu á Seltjarnarnesi. Skagastúlkur byrjuðu leikinn vel og á 17. mínútu skoraði Védís Agla Reynisdóttir fyrsta mark leiksins. ÍA hefði getað bætt við fleiri mörkum í fyrri hálfleik en mistókst það og staðan í hálfleik 0-1. Gróttustúlkur mættu ákveðnar til leiks í…Lesa meira

true

Martraðarbyrjun Ólsara

Víkingur Ólafsvík byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum gegn Fram í Lengjudeildinni í Safamýrinni í gærkveldi. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson skoraði mark úr víti á fyrstu mínútu leiksins og lagði svo upp þau tvö næstu fyrir þá Tryggva Snæ Geirsson og Fred Saraiva og staðan orðin 3-0 fyrir Framara eftir einungis fimm mínútna leik. Fljótlega…Lesa meira

true

Fallið frá kaupum á Suðurgötu 108

Bæjarráð Akraness samþykkti á fundi sínum 29. apríl sl. að fallast á ósk kaupanda að Suðurgötu 108, AA húsinu svokallaða, um að falla frá samningi um kaup á eigninni. Húsið hefur verið nokkurn tíma í söluferli. Upphaflega var sett sem skilyrði að söluverð hússins skyldi vera að lágmarki 40 milljónir króna en síðan var ákveðið…Lesa meira

true

Dreymdi að hann væri að hjóla til Sauðárkróks

„Mig dreymdi draum í byrjun þessa árs um að ég væri að hjóla héðan úr Borgarnesi og á Sauðárkrók í Skagafirði. Þessi draumur var mér mjög minnisstæður. Ég ákvað því að hjóla þessa leið á æfingahjólinu sem er hérna í Öldunni. Taka ferðalagið í mörgum áföngum,“ segir Guðmundur Stefán Guðmundsson í samtali við Skessuhorn. Guðmundur…Lesa meira

true

Mega áfram greiða séreignasparnað inn á lán

Heimild til að greiða séreignarsparnað skattfrjálst inn á höfuðstól íbúðalána verður framlengd fram á mitt ár 2023, ef frumvarp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis verður samþykkt á Alþingi. Úrræðið hefur verið mjög vel nýtt frá því að bráðabirgðaákvæði um málið var fyrst sett í lög um mitt ár 2014, en þannig hafa að…Lesa meira