Fréttir

true

Sigur Skallagrímsmanna í Fjósinu

Skallagrímur vann góðan sigur á Álftanesi þegar liðin mættust í Fjósinu í Borgarnesi föstudaginn var í 16. umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Jafnt var með liðum í fyrsta fjórðungi. Það var ekki fyrr en í öðrum leikhluta sem Álftanes náði að slíta sig frá heimamönnum sem voru þó aldrei langt undan. Leiddu Álftnesingar með…Lesa meira

true

Þristum rigndi í Fjósinu í Vesturlandsslagnum

Snæfellskonur sigruðu Vesturlandsslaginn nokkuð sannfærandi þegar þær sóttu Skallagrímskonur heim í gær í 19. umferð Domino’s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikurinn var jafn framan af eða þar til um miðbik annars leikhluta en þá fóru gestirnir að bæta í og komust í stöðuna 40-29 þegar flautað var til hálfleiks. Snæfell hélt uppteknum hætti í þriðja…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um byggingu nýs netaverkstæðis

Síðastliðinn föstudag var fánaborg reist á lóðinni þar sem gamla fiskimjölsverksmiðjan stóð í fjöldamörg ár á hafnarsvæðinu í Grundarfirði. Hún var rifin á síðasta ári en á lóðinni mun nýtt netaverkstæði Guðmundar Runólfssonar hf. rísa á næstu misserum. Samningur á milli Guðmundar Runólfssonar hf og Vélsmiðju Grundarfjarðar ehf. var undirritaður um bygginguna. Vélsmiðjan flytur inn…Lesa meira

true

Ríkissjóður gefur landsmönnum nýja Ferðagjöf

Fyrirhugað er að gefa út nýja Ferðagjöf stjórnvalda í sumar og verður fjárhæðin sú sama og á liðnu ári eða 5.000 kr. fyrir einstaklinga fædda 2003 eða fyrr. Enn verður hægt að nota ónýttar Ferðagjafir frá síðasta ári til 31. maí næstkomandi, en eftir það falla þær niður við endurnýjun Ferðagjafar 2021. Ferðagjöfin er hluti…Lesa meira

true

Bólusett í Samkomuhúsi Grundarfjarðar

Síðasta vika var stór bólusetningarvika á öllu landinu, en samkvæmt vefsíðunni covid.is voru rúmlega 26 þúsund manns bólusettir á landsvísu. Í Grundarfirði voru tæplega fimmtíu manns bólusettir með bóluefninu AstraZeneca síðasta fimmtudag og gekk bólusetningin mjög vel. Hleypt var inn í þremur hollum og var almenn ánægja hjá fólki að fá loks bóluefni.Lesa meira

true

Komu brúnni fyrir yfir Berjadalsá

Í gærmorgun fór vaskur hópur félaga úr Rótarýklúbbi Akraness upp á Akrafjall til að setja brúna yfir Berjadalsá. Með henni er gönguleiðin á fjallið mun þægilegri. Sumir rótarýmanna tóku með sér fjölskyldumeðlimi enda veitti ekki af öllu tiltæku vöðvaafli, en brúin er talsvert þung þótt hún láti ekki mikið yfir sér. Meðfylgjandi myndir tók Atli…Lesa meira

true

Varðskipið Þór var í Grundarfirði um helgina

Að morgni síðasta dags aprílmánaðar skreið hið glæsilega varðskip Þór inn Grundarfjörð. Ætlunin var að liggja við landfestar yfir helgina en dagur verkalýðsins var einmitt í gær. Ekki er vitað hvort skipverjar fóru í kröfugöngu um borð, en áhöfnin varði helginni í Grundarfirði um borð í þessu glæsilega skipi.Lesa meira

true

Þrenna hjá Andra í stórsigri Kára í Vesturlandsslagnum

Andri Júlíusson framherji Knattspyrnufélags Kára skoraði þrennu fyrir lið sitt í 5:1 sigri á Skallagrími í Mjólkurbikarleik sem fram fór í Akraneshöllinni í gær. Andri skoraði fyrsta mark leiksins strax á sjöundu mínútu með marki úr vítaspyrnu. Fimm mínútum síðar bætti hann öðru marki við. En Skallagrímsmenn náðu að minnka muninn á 25. mínútu með…Lesa meira

true

Skagakonur úr leik í Mjólkurbikarnum

Skagakonur eru úr leik í Mjólkurbikarnum eftir 2:4 tap gegn Augnabliki í leik sem fram fór á Kópavogsvelli í gær. Leikurinn byrjaði vel hjá ÍA þegar Anna Þóra Hannesdóttir kom liði sínu yfir á 19. mínútu. En heimakonur í Augnabliki náðu að jafna metin á 33. mínútu með marki Vigdísar Lilju Kristjánsdóttur og staðan 1:1…Lesa meira

true

Hefur setið á þingi frá 2009

Í frétt hér á vefnum nýverið var sagt frá niðurstöðu forvals VG í Norðvesturkjördæmi. Í fréttinni var missagt að Lilja Rafney Magnúsdóttur hefði setið í tvö kjörtímabil á þingi, en það er rangt. Lilja Rafney hefur verið þingmaður síðan 2009 eða í þrjú kjörtímabil. Leiðréttist það hér með og beðist afsökunar á mistökunum.Lesa meira