Fréttir

true

Öruggur sigur Víkings gegn Þrótti

Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð til Reykjavíkur í gær og sigraði Þrótt nokkuð örugglega 3:1 í Mjólkurbikarnum í leik sem fram fór á Eimskipsvellinum í Laugardal. Það var Harley Bryn Willard sem skoraði fyrsta markið fyrir gestina eftir um hálftíma leik. Willard var aftur á ferðinni þremur mínútum fyrir leikhlé með marki úr vítaspyrnu og…Lesa meira

true

Nýtt merki Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs

Stjórn hins nýstofnaða Ferðafélags Borgarfjarðar leitaði til Bjarna Guðmundssonar á Hvanneyri um hönnun á nýju einkennismerki fyrir félagið. Bjarni teiknaði merkið en Heiður Hörn Hjartardóttir, grafískur hönnuður á Bjargi í Borgarnesi, sá síðan um að útfæra tillöguna og ljúka verkinu. Í nýja merkinu má finna tilvísanir í borgfirska náttúru án þess að verið sé að…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Stokkið fyrir Svenna

Fjölmenni er nú statt í nágrenni Akraneshafnar, en áheitaverkefnið Stokkið fyrir Svenna hófst klukkan 10 í morgun. Eins og ítarlega hefur verið kynnt í Skessuhorni er það árgangur 1971 á Akranesi, með Pétur Magnússon í fararbroddi, sem haft hefur veg og vanda að skipulagningu viðburðarins, en safnað er fyrir einn jafnaldrann úr hópnum, Sveinbjörn Reyr…Lesa meira

true

Höfðu ekki erindi sem erfiði á Hlíðarenda

Valur hóf titilvörn sína á 2-0 heimasigri gegn ÍA í gær, í opnunarleik Íslandsmótsins í knattspyrnu sem fram fór á Hlíðarenda. Fyrri hálfleikurinn í leiknum var lítið fyrir augað, en Valur byrjaði seinni hálfleikinn mun betur og uppskar mark á 55. mínútu þegar Patrick Pedersen skoraði eftir undirbúning Kaj Leo. Ellefu mínútum síðar var Ísak…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn!

Baráttudagur verkalýðsins er í dag, 1. maí. Engin kröfuganga verður farin á Vesturlandi í dag vegna samkomutakmarkana, annað árið í röð. Miðstjórn ASÍ samþykkti á fundi sínum 17. mars að slagorðið fyrir 1. maí 2021 yrði „Það er nóg til.“ Í samþykktinni segir m.a.: „Það er nóg til“ er orðatiltæki sem allir Íslendingar þekkja og nota…Lesa meira

true

Boltinn fer á fullt – Skagamenn og Valur í opnunarleik

Íslandsmótið í knattspyrnu í Pepsi Max deild karla hefst í kvöld. Skagamenn sækja þá Valsmenn heim klukkan 20 á Hlíðarenda í opnunarleik mótsins og verður leikurinn sýndur á Stöð 2 Sport. Þá mætast Kári og Skallagrímur í sannkölluðum Vesturlandsslag í 2. umferð Mjólkurbikarsins í Akraneshöll á morgun laugardag kl. 14. Einnig etja kappi Þróttur Reykjavík…Lesa meira

true

Ríkisstjórnin boðar ný úrræði til viðspyrnu vegna Covid-19

Á annan tug úrræða verða framlengd eða innleidd á næstu dögum til að mæta afleiðingum heimsfaraldurs Covid-19. Í kynningu frá ríkissjórn Íslands kemur m.a. fram að þeirra á meðal er sérstakur 30 þúsund króna barnabótaauki til þeirra sem fá tekjutengdar barnabætur, ný ferðagjöf, framlengd úttekt séreignasparnaðar, framlenging og útvíkkun viðspyrnustyrkja og lokunarstyrkja, hliðrun á endurgreiðslutíma…Lesa meira

true

Þéttara net fjarskiptasenda afar aðkallandi í Borgarbyggð

Að kvöldi síðasta miðvikudags voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar til leitar að manni sem saknað var. Fannst hann síðar um kvöldið heill á húfi innan við Grímsstaði á Mýrum, á vegslóða að Langavatni. Hafði hann fest bíl sinn á slóðanum og haldið til í honum í þrjá daga, þar til hann loks fannst. Maðurinn gat…Lesa meira

true

Átján í sóttkví á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi birti í morgun nýjustu tölur um Covid frá heilsugæslustöðvum héraðsins. Tölurnar hafa hækkað talsvert frá því þær voru birtar síðast, fyrir 11 dögum, og eru alls átján einstaklingar í sóttkví en enginn í einangrun. Af þessum átján eru tólf í Borgarnesi, fimm á Akranesi og einn í Stykkishólmi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns kom…Lesa meira

true

Bæjarsjóður Akraneskaupstaðar gerður upp með 133 milljóna afgangi

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn á þriðjudaginn. Megin niðurstaðan var sú að 133 milljóna króna rekstrarafgangur var á síðasta ári og skuldir lækkuðu um 360 milljónir króna. „Ár varnarsigra, viðspyrnuaðgerða og mikillar uppbyggingar sjáanlegar í ársreikningi 2020,“ segir í tilkynningu frá bæjarstjórn. Meðal helstu þátta í ársreikningi…Lesa meira