Fréttir

true

Boða tilraunaverkefni um sjúkraþyrlu

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu heilbrigðisráðherra sem felur í sér undirbúning tilraunaverkefnis um notkun sjúkraþyrlu til að styrkja sjúkraflutninga í landinu og veita þannig bráðveikum og slösuðum sérhæfða þjónustu með sem skjótustum hætti. Heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið falið að útfæra fjármögnun og tímasetningu verkefnisins. Eins og fram kemur í minnisblaði heilbrigðisráðherra til ríkisstjórnarinnar…Lesa meira

true

Arctic Adventures og Into the Glacier í eina sæng á ný

Arctic Adventures hf. og framtakssjóðurinn Icelandic Tourism Fund I, hafa gert samkomulag um sameiningu Arctric Adventures og Into the Glacier ehf., sem rekur ísgöngin í Langjökli. Ekkert varð af sameiningu fyrirtækjanna í ársbyrjun 2019 en nú sameinast þau á nýjan leik. Um leið kaupir Arctic Adventures hluti framtakssjóðsins í fjórum afþreyingarfyrirtækjum í ferðaþjónustu; Óbyggðasetri Íslands,…Lesa meira

true

Fjármálaráðherra áfrýjaði ekki héraðsdómi um Arnarvatnsheiði

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns síðla í nóvember, kvað Héraðsdómur Vesturlandi upp úrskurð í máli íslenska ríkisins gegn landeigendum á Arnarvatnsheiði. Ríkið höfðaði málið og beindi kröfu sinni gegn Sjálfseignarstofnun um Arnarvatnsheiði og Geitlandi annars vegar en hins vegar eigendum Kalmanstungu I og II. Gerði ríkið kröfu um að felldur yrði úr gildi…Lesa meira

true

Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins á Laugum

Í dag og næstkomandi sunnudag eru síðustu dagarnir sem Byggðasafn Dalamanna verður opið á Laugum í Sælingsdal. Af því tilefni verður opið frá klukkan 13-17 báða dagana, frítt inn á safnið, húslestur og heitt á könnunni. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að pakka safnkostinum niður. Frá þessu er greint á heimasíðu safnsins.…Lesa meira

true

Í fangelsi fyrir áreitni og árás

Maður var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreigni gegn konu og líkamsárásir gegn henni og annarri konu á Akranesi aðfararnótt 17. apríl 2018. Dómur í málinu var upp kveðinn í Héraðsdómi Vesturlands 20. desember síðastliðinn. Var manninum gefið að sök að hafa áreitt fyrri konuna kynferðislega með því að káfa á brjóstum hennar…Lesa meira

true

Gamlársmót Gústa á morgun

Hið árlega Gamlársmót Gústa í sundi verður haldið í Jaðarsbakkalaug á Akranesi kl. 10:00 á morgun, laugardaginn 28. desember. Það er Ágúst Júlíusson, sundmaður á Akranesi, sem stendur fyrir mótinu. Verður það með svipuðu sniði og fyrri ár, keppt í stuttum sundgreinum og öllum velkomið að taka þátt hvort sem þeir eru núverandi eða fyrrverandi…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Ok opnar flugeldasölu

Líkt og fyrri ár mun Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði bjóða upp á flugeldasölu í aðdraganda áramóta. Að sögn Jóhannesar Berg formanns félagsins verður salan á tveimur stöðum; í Þorsteinsbúð í Reykholti og BÚT húsinu á Hvanneyri. Opið verður á báðum stöðum klukkan 13-22 mánudaginn 30. desember og kl. 11-15 á Gamlársdag. “Við hvetjum fólk til…Lesa meira

true

Gleðileg jól!

Starfsfólk Skessuhorns sendir lesendum sínum og viðskiptavinum um land allt hugheilar jóla- og nýárskveðjur. Hafið þökk fyrir árið sem er að líða.  Lesa meira

true

Nagladekk eru mikilvægur öryggisbúnaður

Á undanförnum árum hafa Samtök ferðaþjónustunnar kallað eftir því við stjórnvöld að auka svigrúm varðandi notkun negldra hjólbarða á bílaleigubílum til að auka öryggi í umferðinni. Í erindi til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem SAF sendu á dögunum er þessi skoðun ítrekuð. „Öryggismál og forvarnir eru ein af undirstöðum faglegrar ferðaþjónustu. Umræðan um öryggismál magnast þegar…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Síðastliðinn föstudag voru 65 nýstúdentar brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Athöfnin fór að mestu fram með hefðbundnu sniði. Jónína Víglundsdóttir áfangastjóri flutti annál haustannar og rifjaði upp helstu atriði viðburðaríkrar annar. Guðjón Snær Magnússon, nýstúdent frá Ásgarði í Borgarfirði, flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og rifjaði upp eftirminnileg augnablik skólagöngunnar. Borgnesingurinn Magnús Geir Eyjólfsson,…Lesa meira