Fréttir

true

Helgihald á Vesturlandi um jólahátíðina

Kirkjuhald er hjá mörgum ómissandi hluti af jólahátíðinni. Skessuhorn hafði samband við presta í öllum kirkjusóknum á Vesturlandi og fékk upplýsingar um viðburði og messur í kirkjum landshlutans yfir jólahátíðina. Garða- og Saurbæjarprestakall Sr. Þráinn Haraldsson desember – sunnudagur: Aðventukyrrðarstund í Akraneskirkju klukkan 11 desember – Aðfangadagur: Aftansöngur í Akraneskirkju klukkan 18 desember – Aðfangadagur:…Lesa meira

true

Káramenn láta gott af sér leiða

Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi afhenti nýverið Kristni Jens Kristinssyni, Kidda Jens, afrakstur styrktarsöfnunar sinnar. Káramenn hafa á innan við ári afhent langt yfir eina milljón króna í styrki handa þeim sem kljást við krabbamein og aðstandendum þeirra sem hafa kvatt vegna þess. „Við viljum þakka öllum sem lögðu hönd á plóg en verkefnið var unnið…Lesa meira

true

Alvarlegir gallar í innviðum komu í ljós í óveðrinu

Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 19. desember síðastliðinn bókun þar sem harmað er það ástand sem skapaðist í óveðrinu í desember.  Það leiddi í ljós alvarlega galla í innviðum samfélagsins. „Ljóst er að innviðir flutningskerfis raforku brugðust. Þó að veðurhamurinn væri ekki jafn mikill í Dalabyggð og hjá nágrönnum okkar skapaðist samt ástand sem…Lesa meira

true

TM lokar umboðsskrifstofu sinni í Borgarnesi

Tryggingafélagið TM birtir í vikunni auglýsingu í sjónvarpsdagskránni Póstinum þar sem tilkynnt er að félagið muni loka tryggingaumboði sínu við Borgarbraut 61 í Borgarnesi um áramótin. Engar nánari skýringar eru gefnar fyrir ástæðu lokunarinnar. Engin fréttatilkynning hefur verið send út um ástæðu lokunarinnar, hvorki til fjölmiðla né birt á heimasíðu TM. Þess er getið í…Lesa meira

true

Eldur út frá mótor í vélarrúmi Runólfs

Í gær kom upp eldur í vélarrúmi Runólfs SH þar sem skipið lá við bryggju í Grundarfirði. Eldurinn kviknaði út frá litlum mótor í vélarrúmi skipsins. Slökkvilið Grundarfjarðar var kallað á vettvang, en búið var að slökkva með duftslökkvitæki þegar það kom á staðinn.Lesa meira

true

Kepptust við að komast af lista þeirra óþekku

Skyrgámur boðaði til opins jólasveinafundar í KM þjónustunni í Búðardal föstudaginn 13. desember. Þar fór hann yfir stærstu mál ársins. Helst var til umræðu listinn yfir þá óþekku en heldur mörg nöfn var þar að finna þetta árið. Gestum gafst kostur á að rýna í listann alræmda og vinna sig af honum með því að…Lesa meira

true

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna og slysahættu um hátíðarnar

Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum, þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira. Í ljósi þess að nú gengur í garð…Lesa meira

true

Fengu glasafrjóvgun í brúðkaupsgjöf og eignuðust tvíbura

Grundfirðingurinn Rúnar Geirmundsson og konan hans Eyrún Telma Jónsdóttir voru búin að reyna að eignast barn í fjögur ár án árangus þegar þau ákváðu að fara í glasafrjóvgun. Meðferðin heppnaðist mjög vel og síðastliðið vor komu í heiminn tveir heilbrigðir drengir, þeir Atlas og Eldar. „Við vorum bæði alveg viss um að við vildum verða…Lesa meira

true

Lá á spítala í þrjár vikur eftir slys með logandi steikingarfeiti

Íris Edda Steinþórsdóttir er 19 ára Skagastelpa, fædd og uppalin á Akranesi. Hún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands síðastliðið vor og byrjaði í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands í haust. Fyrsta önnin í skólanum fór þó ekki eins og til stóð því þriðjudaginn 10. september í haust ætlaði hún ásamt kærastanum sínum að djúpsteikja kjúkling. Þau…Lesa meira

true

Jólamót Víkings í sundi

Jólamót Ungmennafélagsins Víkings/Reynis fór nýverið fram í sundlaug Snæfellsbæjar. Mótið að þessu sinni var ætlað iðkendum á grunnskólaaldri og var það vel sótt. 29 börn af þeim 32 sem æfa sund tóku þátt í mótinu. Keppt var bæði í skriðsundi og boðsundi. Mótið gekk mjög vel fyrir sig og stóðu krakkarnir sig vel. Mátti sjá…Lesa meira