Fréttir

true

Aðgæsluleysi þegar Særún strandaði

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að aðgæsluleysi við stjórnun farþegabátsins Særúnar hafi orðið þess valdandi að báturinn strandaði á skeri í apríl síðastliðnum. RÚV greinir frá. Mikill viðbúnaður var vegna strandsins í vor, þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og björgunarsveitir frá Stykkishólmi og Rifi héldu á vettvang. Þrír farþegar voru um borð í skipinu þegar það strandaði.…Lesa meira

true

EFLA hefur opnað skrifstofu á Hvanneyri

Verkfræðistofan EFLA hefur opnað skrifstofu á Vesturlandi, nánar til tekið í Hvannahúsinu svokallaða við Hvanneyrargötu 3 á Hvanneyri. Skrifstofan á Hvanneyri var opnuð 1. nóvember síðastliðinn og þar mun Orri Jónsson, verkfræðingur frá Lundi, hafa aðsetur. „Hugmyndin að því að opna starfsstöð í Borgarfirðinum hefur verið að þróast um nokkurt skeið, en Efla hefur ávallt…Lesa meira

true

Pólsk verslun opnuð á Akranesi

Matvöruverslunin Fresh Market var opnuð við Stillholt 16 á Akranesi núna í morgun. Fresh Market er pólsk búð og þar er að finna úrval af matvöru frá Póllandi, allt frá pólskum pylsum og niðursuðuvörum til gosdrykkja og sælgætis, auk hreinlætisvara og dagvara ýmiss konar. Upphaflega stóð til að opna verslunina viku fyrr en ein vörusending…Lesa meira

true

Ríkið geri tafarlausar úrbætur

Í kjölfar óveðursins sem gekk yfir landið í síðustu viku, þegar stór hluti norðanvers landsins varð án rafmagns og fjarskipta, þykir stjórn Byggðastofnunar nauðsynlegt að hvetja ríkisstjórn Íslands til að skerpa á þessum málum í ljósi þess að miklir veikleikar komu fram í mikilvægum öryggisinnviðum landsins og að stór hluti íbúa landsbyggðarinnar býr við mikið…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðdegis í gær, þriðjudaginn 17. desember, brautskráðust við hátíðlega athöfn átta nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust Aleksandra Wasiewicz, Alma Jenný Arnarsdóttir og Dawid Einar Karlsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðist Finnbogi Steinarsson. Af opinni braut til stúdentsbrautar brautskráðust Eva María Sævarsdóttir, Ísak Þórir Ísólfsson Líndal og Kolbrún Ösp Guðrúnardóttir.…Lesa meira

true

Mælt fyrir fjölmiðlafrumvarpi á Alþingi

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um breytingar á fjölmiðlalögum á Alþingi 16. desember síðastliðinn. Markmið þess er að efla lýðræðishlutverk fjölmiðla með því að styðja við ritstjórnir fjölmiðla sem miðla fréttatengdu efni og umfjöllun um samfélagsleg málefni. „Með frumvarpinu er leitast við að Ísland skipi sér í hóp hinna Norðurlandanna og fleiri ríkja í…Lesa meira

true

Markmiðið var að bændur biðu eftir Bændablaðinu

Áskell Þórisson ritstjóri lítur yfir farinn veg við blaðamennsku og önnur störf Nýbýlið Ægissíða í Hvalfjarðarsveit lætur ekki mikið yfir sér. Það er byggt á spildu úr landi Másstaða og kúrir húsið í skjóli við mön fjallmegin við Innnesveginn. Þar er kominn myndarlegur trjálundur. Litlar skógarplöntur fá góðan aðbúnað með því að óseldar bækur eru…Lesa meira

true

Með síðustu ábúendum á heiðarbýlinu

Rætt við Maríu Björgu Gunnarsdóttur um æskuárin í Fornahvammi   Fornihvammur er eyðibýli efst í Norðurárdal í Borgarfirði sem á árum fyrr var síðasti bærinn áður en lagt var á Holtavörðuheiði að sunnanverðu. Þar var um tíma rekin umfangsmikil ferðaþjónusta enda mikil umferð sem rann í gegnum hlaðið. Þegar starfsemin var í blóma var rekið…Lesa meira

true

Óska eftir tilnefningum í Snæfellsbæ

Óskað er eftir tillögum íbúa um fallega skreytt jólahús í Snæfellsbæ og flottasta piparkökuhúsið, að því er fram kemur í frétt á vef Snæfellsbæjar. Piparkökuhúsin eru númerið og til sýnis í Kassanum í Ólafsvík. Hægt verður að senda inn tillögur til miðnættis annað kvöld, fimmtudaginn 19. desember. Að því loknu mun menningarnefnd Snæfellsbæjar fara yfir…Lesa meira

true

Endurbygging í útboð

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að láta bjóða út endurbyggingu á hluta skrifstofum fyrirtækisins við Bæjarháls í Reykjavík. Mun húsnæðið taka nokkrum útlitsbreytingum eftir endurbygginguna. Helsta breytingin er sú að útveggir hússins verða réttir, en þrír af fjórum útvveggjum hins skemmda Vesturhúss slúta nú fram yfir sig. Það þýðir að gólfflötur neðri hæða hússin stækkar…Lesa meira