Fréttir

true

Nýr Bárður SH á leið til landsins

Nýr Bárður SH-81 er nú á siglingu til landsins. Komið var við í Þórshöfn í Færeyjum í gær en áætlað er að sigla af stað  Íslands í fyrramálið. Báturinn var smíðaður í Rødbyhavn í Danmörku fyrir Pétur Pétursson útgerðarmann í Ólafsvík. Nýr Bárður SH er glæsilegt skip eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Hann…Lesa meira

true

Farþegaskipið Akranes verður gert út á sjóstangveiði og hvalaskoðun

Í slippnum í Vestmannaeyjum er nú verið að leggja lokahönd á lagfæringar á farþegaskipinu Akranesi. Skipið er í eigu Loðnu ehf. en að því félagi standa Gunnar Leifur Stefánsson og viðskiptafélagar hans. Að sögn Gunnars Leifs fer skipið úr slipp í næstu viku. „Þetta er skip sem hefur leyfi til að flytja 100 farþega og…Lesa meira

true

Barist með Beggu

Crossfit stöðin Box 7 efndi til samróðurs til styrktar Berglindi Rósu Jósepsdóttur sem er 33 ára tveggja barna móðir í Grundarfirði, í sambúð með Sigurbirni Hanssyni. Begga greindist með krabbamein í upphandlegg síðasta sumar og hefur verið í lyfja- og geislameðferðum síðan þá. Forsvarsmenn Box 7 vildu því leggja sitt af mörkum með þessari söfnun.…Lesa meira

true

Vilhjálmur Egilsson kveður Bifröst í vor

Vilhjálmur Egilsson lætur af störfum sem rektor Háskólans á Bifröst næsta vor, en hann hefur gegnt starfinu síðan 2013. „Meiningin er að ég hætti í lok skólaársins. Ég var upphaflega ráðinn 2013 og fyrsta ráðningin var til fjögurra ára. Hún var síðan framlengd um þrjú ár. Ástæðan er sú að ég verð 67 ára núna…Lesa meira

true

Jólabingó Kvenfélagsins 19. júní verður á föstudaginn

Hið árlega jólabingó Kvenfélagsins 19. júní fer fram í sal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 29. nóvember kl. 20:00. Þessi viðburður hefur verið haldinn árlega í um 50 ár en Kvenfélagið 19. júní er nú fjölmennasta kvenfélag Borgarfjarðar þar sem tæplega 60 konur á öllum aldri eru félagar. Í ár verður bingóið afar glæsilegt en…Lesa meira

true

Anna María er nýr útibússtjóri Verkís á Vesturlandi

Anna María Þráinsdóttir byggingaverkfræðingur tók við sem útibússtjóri Verkís á Vesturlandi 1. nóvember síðastliðinn. Anna María tekur við starfinu af Gísla Karel Halldórssyni, sem verður sjötugur á næsta ári og er farinn að minnka við sig, en er þó hvergi nærri hættur, að sögn Önnu. Starfsemi Verkís á Vesturlandi nær til landshlutans alls og lýtur…Lesa meira

true

Sölvi ráðinn þjálfari Skallagríms

Borgnesingurinn Sölvi G. Gylfason hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Skallagríms í knattspyrnu fyrir komandi keppnistímabil. Sölvi, sem er þrjátíu og eins árs, verður spilandi þjálfari en miðað er við að ráða einnig aðstoðarþjálfara fyrir liðið. Sölvi og Viktor Már Jónasson tóku við þjálfun meistaraflokks Skallagríms á miðju síðasta tímabili. Þótt þeim tækist ekki að forða…Lesa meira

true

Eftirlit með rjúpnaskyttum

Lögreglan á Vesturlandi fór með Landhelgisgæslu Íslands í rjúpnaveiðieftirlit á laugardaginn. Flogið var með þyrlu gæslunnar yfir Hraundal og nærliggjandi dali, Langavatnsdal auk friðlandsins í Geitlandi. Sást til veiðimanna, en ekki í friðlandinu. Tveir kyrrstæðir bílar voru við friðlandið en þar sást ekki til veiðimanna. Annars staðar sáust fleiri bifreiðar, en á svæðum þar sem…Lesa meira

true

Logi og Heiðar sigurvegarar BB

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk síðastliðið mánudagskvöld. Heiðar Árni Baldursson og Logi Sigurðsson leiddu mótið allan tímann og luku keppni með 62,6% skori. Anna Heiða Baldursdóttir og Ingimundur Jónsson komu næst þeim með 59,3% skor og þriðju urðu Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson með 56,4%. Við verðlaunaafhendingu kom fram að Baldur í Múlakoti ætti að fá…Lesa meira

true

Bílvelta í Hvalfirði í gær

Bílvelta varð í Hvalfirði til móts við Lambhaga kl. 16:30 í gær. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku með þeim afleiðingum að hann fór út af veginum þar sem hann valt og endaði ofan í skurði. Ökumaðurinn sat í bílnum þegar lögregla kom á vettvang og kenndi sér eymsla eftir veltuna. Hann var…Lesa meira