Fréttir

true

Ill meðferð á páfagaukum

Matvælastofnun hefur tekið páfagauk af eiganda á Norðurlandi vegna vanrækslu. Við eftirlit fundust tveir mjög horaðir fuglar í búri, þar af annar dauður. Ástand fuglanna mátti rekja til vanfóðrunar og vatnsleysis og var vörslusvipting framkvæmd tafarlaust, segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. „Bannað er að beita gæludýr illri meðferð og er ekki heimilt að skilja búrfugla…Lesa meira

true

Vinnustofa til að móta aðgerðaáætlun og stefnumótun í ferðaþjónustu

Hafin er vinna við aðgerðabundna stefnumótun fyrir ferðaþjónustu á Íslandi til ársins 2025. Verkefnið er sameiginlegt verkefni Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Sambands sveitarfélaga, Samtaka ferðaþjónustunnar og Stjórnstöðvar ferðamála. Boðað hefur verið til opinna vinnustofa í tengslum við stefnumótunina og verða slíkar vinnustofur haldnar í öllum landshlutum. Hér á Vesturlandi fer ein slík fram fimmtudaginn 28. nóvember…Lesa meira

true

Vilja að veirusýktum eldislaxi verði fargað

Stjórn Landssambands veiðifélaga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún harmar að IPN veirusýking hafi komið upp í norskum eldislaxi í eldiskvíum Laxa fiskeldis ehf. í Reyðarfirði. „Slík veirusýking hefur aldrei greinst í laxi á Íslandi enda er villti laxastofninn við Ísland með þeim heilbrigðustu í heimi. IPN veira veldur alvarlegum sýkingum í laxfiskum.…Lesa meira

true

Bætti fimmtán ára gamalt Akranesmet í sundi

Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir bætti 15 ára gamalt Akranesmet á Haustmóti Fjölnis í sundi sem fram fór á laugardaginn í Laugardalnum. Þangað fór 21 sundmaður frá Sundfélagi Akraness. Mótið var fyrir sundmenn 14 ára og yngri og var gríðarlega stór hópur sem tók þátt þetta árið, 375 sundmenn frá 16 félögum um land allt. Að venju…Lesa meira

true

Uppskriftir eftirstríðsáranna komnar út á bók

Espólín bókaforlag hefur gefið út bókina Uppskriftir eftirstríðsáranna – matur úr íslenskum eldhúsum eftir stríð. Þar er á ferðinni öðruvísi matreiðslubók með aðkomu fjögurra kvenna. „Með henni er haldið á lofti merki þeirra sem löngum komu við sögu þar sem matur var gerður. Matargerð hefur breyst í aldanna rás og mun áfram taka breytingum. En…Lesa meira

true

Jólabingó Kvenfélagsins 19. júní verður á föstudaginn

Hið árlega jólabingó Kvenfélagsins 19. júní fer fram í sal Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri föstudaginn 29. nóvember kl. 20:00. Þessi viðburður hefur verið haldinn árlega í um 50 ár en Kvenfélagið 19. júní er nú fjölmennasta kvenfélag Borgarfjarðar þar sem tæplega 60 konur á öllum aldri eru félagar. Í ár verður bingóið afar glæsilegt en…Lesa meira

true

Íslandsmeistaramótinu í grjótglímu lokið

Íslandsmeistaramótaröðinni í grjótglímu lauk um helgina með flottu móti sem haldið var í Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA mætti með sjö sterka klifrara til móts og þeim fylgdi stór hópur áhorfenda og áhangenda. Mótið var fjórða og síðasta mótið í keppninni um Íslandsmeistartitilinn og spennan því í hámarki þegar mótið hófst. Keppendur klifruðu tuttugu leiðir, sem…Lesa meira

true

Veggeiningar að nýjum leikskóla risnar

Ágætur gangur hefur í haust verið í byggingaframkvæmdum á Kleppjárnsreykjum, en framkvæmdir hófust í lok sumars. Í húsinu verður leikskólinn Hnoðraból með starfsemi sína en auk þess verða þar skrifstofur fyrir starfsfólk leikskólans og grunnskólans auk kennslurýmis. Byggingin er 530 fermetrar að flatarmáli á einni hæð. Búið er að reisa forsteyptar einingar frá Steypustöðinni –…Lesa meira

true

Skagakaffi komið á söluskrá

Kaffihúsið og veitingastaðurinn Skagakaffi er nú komið á söluskrá hjá fyrirtækjasölunni Kompaníi og er auglýst eftir tilboðum í reksturinn. Í húsinu hafa á liðnum árum verið rekin kaffihús með nöfnunum Skökkin, síðar Lesbókin og nú Skagakaffi. Alls hafa fjórir rekstraraðilar komið að rekstri í húsinu á jafn mörgum árum. Katrín Guðjónsdóttir og Marius Ciprian Marinescu…Lesa meira

true

Snæfell tapaði gegn Blikum

Snæfellskonur töpuðu naumlega gegn Breiðabliki, 73-68, þegar liðin mættust í spennandi leik í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Kópavogi á laugardaginn. Jafnt var á með liðunum í upphafi leiks, en Snæfell náði síðan góðri rispu og sex stiga forystu um miðjan fyrsta leikhluta. Blikar svöruðu fyrir sig og komust yfir, en Snæfellskonur…Lesa meira