Fréttir

true

Stórsigur Skallagrímskvenna

Skallagrímskonur völtuðu yfir Hauka, 55-83, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Skallagrímskonur voru mjög öflugar í upphafsfjórðungnum, komust í 3-20 og leiddu með 17 stigum eftir fyrsta leikhluta, 5-22. Það var þessi góða byrjun Borgnesinga sem lagði grunn að öruggum sigri liðsins. Í öðrum leikhluta héldu…Lesa meira

true

Roðagylla heiminn í sextán daga átaki gegn ofbeldi á konum

Í dag, mánudaginn 25. nóvember, er dagurinn sem Sameinuðu þjóðirnar hafa valið til að varpa ljósi á að ofbeldi gegn konum er alþjóðlegt vandamál sem kemur upp í öllum samfélögum og menningarheimum. Ofbeldi gegn konum er aldrei einkamál heldur samfélagslegt vandamál sem hefur áhrif á milljónir kvenna. Frá 25. nóvember til 10. desember vekja Soroptimistar…Lesa meira

true

Þorsteinsmótið var spilað á laugardaginn

Síðastliðinn laugardag var Þorsteinsmótið í tvímenningi í bridds haldið í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum, fyrrum vinnustað kennarans Þorsteins Péturssonar frá Hömrum sem mótið er til minningar um. Metþátttaka var að þessu sinni, en alls voru 42 pör sem tóku þátt. Mótið er silfurstigamót líkt og fyrri ár. Öflugir briddsspilarar mættu og öttu kappi við heimamenn…Lesa meira

true

Breytt fyrirkomulag innlausnar á greiðslumarki sauðfjár

Landbúnaðarráðherra hefur gefið út breytingarreglugerð um innlausn á greiðslumarki í sauðfé. Þar kemur fram að handhafi greiðslumarks geti óskað eftir innlausn á greiðslumarki. Matvælastofnun skal bjóða til sölu það greiðslumark sem er innleyst á árinu 2019 á núvirtu andvirði beingreiðslna næstu þriggja almanaksára. Miðað er við stýrivexti Seðlabanka Íslands 1. janúar ár hvert og greiðslur…Lesa meira

true

Ætla að verða með fjóstengda ferðaþjónustu á Refsstöðum

Síðastliðið sumar festu hjónin Anna Lísa Hilmarsdóttir og Brynjar Bergsson bændur á Refsstöðum kaup á húsi á Akureyri sem þau fluttu suður í Borgarfjörð. Skessuhorn hefur áður greint frá flutningi hússins. Húsið á að nota til ferðaþjónustu en að sögn Önnu Lísu er ekki komin fastmótuð hugmynd um hvað þau ætli að bjóða upp á.…Lesa meira

true

Þórarinn frá Hamri las úr óbirtum rímum eftir bróður sinn

Vel var mætt á Þorsteinsvöku sem fram fór á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi í liðinni viku. Að kvöldinu stóð nýlega stofnað félag sem ber heitið Arfur Þorsteins frá Hamri. Þorsteinsvaka þessi var skilgreind sem óformlegur framhaldsstofnfundur félagsins. Að þessu ljóða- og sagnakvöldi komu nokkrir einstaklingar úr Borgarnesi og Reykjavík. Flutt voru stutt ávörp og lesin…Lesa meira

true

Á móti einkavæðingu samgöngumannvirkja

„Þingflokkur Framsóknarflokksins lýsir yfir algjörri andstöðu við hugmyndir um einkavæðingu samgöngumannvirkja, eins og flugvalla. Stjórn mannvirkjanna, ákvarðanir um rekstur og fjárfestingu þurfa í öllum tilfellum að vera í höndum íslenskra stjórnvalda,“ segir í tilkynningu frá þingflokknum. „Einkavæðing kerfislega mikilvægra innviða á borð við ISAVIA er í andstöðu við stefnu Framsóknar sem sérstaklega var áréttuð á…Lesa meira

true

Samsýning kvenna með tengingu við Borgarfjörð

Hvað þýðir sagan um Brák fyrir sjálfsmynd kvenna og hugmyndina um kvenleika á Íslandi? Þetta er ein af þeim spurningum sem velt er upp í samsýningu Elísabetar Haraldsdóttur, Hörpu Einarsdóttur, Ingibjargar Huldar Halldórsdóttur og Óskar Gunnlaugsdóttur í Safnahúsinu í Borgarnesi, sýningu sem einfaldlega hefur fengið titilinn Brák, eftir fóstru Egils Skallagrímssonar. Þar gefur að líta…Lesa meira

true

Telur Play ætla að hefja starfsemi með undirboðum á vinnumarkaði

Á fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands nýverið var m.a. rætt um undirboð á markaði. Hið væntanlega flugfélag Play barst meðal annars í tal. Í pistli Drífu Snædal segir um málið: „Það þótti tíðindum sæta að nýtt flugfélag var stofnað hér á landi og fréttir berast af því að kostnaði verði haldið í lágmarki með öllum ráðum,…Lesa meira

true

Anna tilnefnd til Grammy verðlaunanna

Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir úr Borgarnesi hefur verið tilnefnd til Grammy-verðlauna í flokknum Best Engineered Album, Classical, fyrir hljóðvinnslu fyrir plötuna Aequa. Tilnefningarnanr voru kynntar fyrr í vikunni. Auk hennar er önnur íslensk kona, Hildur Guðnadóttir tónskáld, tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Grammy verðlaunahátíðin verður haldin 26. janúar á næsta ári.Lesa meira