Fréttir

true

Samsýning kvenna með tengingu við Borgarfjörð

Hvað þýðir sagan um Brák fyrir sjálfsmynd kvenna og hugmyndina um kvenleika á Íslandi? Þetta er ein af þeim spurningum sem velt er upp í samsýningu Elísabetar Haraldsdóttur, Hörpu Einarsdóttur, Ingibjargar Huldar Halldórsdóttur og Óskar Gunnlaugsdóttur í Safnahúsinu í Borgarnesi, sýningu sem einfaldlega hefur fengið titilinn Brák, eftir fóstru Egils Skallagrímssonar. Þar gefur að líta…Lesa meira

true

Telur Play ætla að hefja starfsemi með undirboðum á vinnumarkaði

Á fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands nýverið var m.a. rætt um undirboð á markaði. Hið væntanlega flugfélag Play barst meðal annars í tal. Í pistli Drífu Snædal segir um málið: „Það þótti tíðindum sæta að nýtt flugfélag var stofnað hér á landi og fréttir berast af því að kostnaði verði haldið í lágmarki með öllum ráðum,…Lesa meira

true

Anna tilnefnd til Grammy verðlaunanna

Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir úr Borgarnesi hefur verið tilnefnd til Grammy-verðlauna í flokknum Best Engineered Album, Classical, fyrir hljóðvinnslu fyrir plötuna Aequa. Tilnefningarnanr voru kynntar fyrr í vikunni. Auk hennar er önnur íslensk kona, Hildur Guðnadóttir tónskáld, tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Grammy verðlaunahátíðin verður haldin 26. janúar á næsta ári.Lesa meira

true

Ríkið tapaði máli um eignarhald yfir Arnarvatnsheiði

Héraðsdómur Vesturlandi kvað í morgun upp úrskurð í máli íslenska ríkisins gegn landeigendum á Arnarvatnsheiði. Ríkið höfðaði málið og beindi kröfu sinni gegn Sjálfseignarstofnun um Arnarvatnsheiði og Geitland annars vegar en hins vegar eigendum Kalmanstungu I og II. Gerði ríkið kröfu um að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar nr. 4/2014 þess efnis að Arnarvatnsheiði,…Lesa meira

true

Reykholtsverkefnið verður gert upp á samkomu í Snorrastofu

Þriðjudaginn 26. nóvember næstkomandi stendur Snorrastofa fyrir kvölddagskrá kl. 19:30 í Bókhlöðunni, þar sem mörkuð verða lok Reykholtsverkefnisins. Það hefur verið undir stjórn Snorrastofu og fleiri stofnana í 20 ár, allt frá árinu 1999. Reifað verður hvert mat sé hægt að leggja á verkefnið og hver framtíð verkefna í sama dúr geti orðið. Reykholtsverkefnið er…Lesa meira

true

Matarhátíð á Hvanneyri á morgun

Matarmarkaður, matarhandverk, úrlit í matarkeppni og matur beint frá býli er meginþema á Matarhátíð sem fram fer á morgun, laugardaginn 23. nóvember, á gömlu torfunni á Hvanneyri. Opið hús verður í Landbúnaðarsafni Íslands og Ullarselinu en auk þess útstilling á keppnisvörum í Íslandsmeistarakeppni í matarhandverki, en úrslitin verða kynnt klukkan 14. Dagskráin hefst klukkan 12…Lesa meira

true

Segin saga hraðaksturs

Það er segin saga að hraðakstur er áberandi í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Var liðin vika engin undantekning þar á, að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns. Ökumaður var stöðvaður að morgni þriðjudagsins 12. nóvember á 131 km/klst. á Vesturlandsvegi við Galtarholt. Var honum gert að greiða fjársekt að upphæð 115 þúsund krónur. Þá var einn stöðvaður í vikunni…Lesa meira

true

VÍS kærir forsendur útboðs í Borgarbyggð

Vátryggingafélag Íslands hefur kært útboð Borgarbyggðar á vátryggingum sveitarfélagsins. Kærunefnd útboðsmála tilkynnti um að kæran hefði verið lögð fram með bréfi dags. 13.11 síðastliðinn. Gerð er krafa um að útboðið verði stöðvað þar til búið verður að taka afstöðu til kærunnar. Ástæðan er krafa um rekstur tryggingaumboðs í sveitarfélaginu, en VÍS hætti slíkum rekstri á…Lesa meira

true

Aftur á sigurbraut

Skallagrímur er kominn aftur á sigurbraut í 1. deild karla eftir sigur á Sindra, 85-71. Liðin mættust í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímsmenn skoruðu fyrstu sex stig leiksins en gestirnir frá Hornafirði jöfnuðu metin og komust síðan yfir. Borgnesingar áttu lokaorðið í upphafsfjórðungnum og leiddu með þremur stigum að honum loknum, 18-15. Þeir voru síðan sterkari…Lesa meira

true

Sóttu gildrur og búnað Blíðu

„Bergvíkin kom og hjálaði okkur í fjóra daga í síðustu viku að sækja allt sem við áttum og koma því í land,“ segir Ólafur Jónsson, annar tveggja skipstjóra Blíðu SH-27, sem sökk á beitukóngsveiðum norður af Langeyjum á Breiðafirði 5. nóvember síðastliðinn, en Ólafur var í fríi þegar skipið sökk. „Við tókum allt sem við…Lesa meira