Fréttir

true

Héldu dag íslenskrar tungu hátíðlegan

Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur 16. nóvember á hvert. Nemendur í Grunnskóla Snæfellsbæjar tóku forskot á sæluna og héltu daginn hátíðlegan síðastliðinn föstudag. Voru haldnar samkomur á sal hjá 1. til 4. bekk á Hellissandi og 5. til 7. bekk í Ólafsvík. Á Hellissandi sungu nemendur íslensk lög og tilkynnt var um úrslit í…Lesa meira

true

Apótek Vesturlands er fyrst til að taka í sölu CBD vörurnar

Heildsalan Ozon er fyrsta fyrirtækið hér á landi sem hefur innflutning á snyrtivörum sem innihalda virka efnið CBD sem unnið er úr hampi. Það er Sigurður Hólmar Jóhannesson, framkvæmdarstjóri Ozon og sonur hans Viktor Snær sem standa á bakvið innflutninginn á vörunum. Sigurður kynntist CBD fyrst fyrir nokkrum árum vegna dóttur sinnar sem er með…Lesa meira

true

Staða sveitarstjóra verður auglýst

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í morgun var tekið til umræðu hvaða ferli verði viðhaft við ráðningu nýs sveitarstjóra. Eins og kunnugt er sagði sveitarstjórn Gunnlaugi A Júlíussyni upp störfum sveitarstjóra í síðustu viku. Samþykkt var á fundinum að afla verðhugmynda frá þremur ráðningarstofum vegna væntanlegs auglýsingarferlis, úrvinnslu umsókna og ráðningu í starfið. Eiríki Ólafssyni sviðsstjóra…Lesa meira

true

Æsispennandi blakleikur í Grundarfirði

Ungmennafélag Grundarfjarðar tók á móti Ými í fyrstu deild kvenna í blaki fimmtudaginn 14. nóvember síðastliðinn. Liðin voru í sitthvorum hluta deildarinnar en Ýmir er við toppinn á meðan Grundarfjörður er í neðri hlutanum. Ljóst var frá byrjun að heimamenn ætluðu að selja sig dýrt og byrjuðu af miklum krafti. Grundfirsku stelpurnar komust í 9-2…Lesa meira

true

Mættu ofjörlum sínum

Snæfellskonur mættu ofjörlum sínum þegar þær sóttu Keflavík heim í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Heimakonur náðu undirtökunum í fyrri hálfleik og unnu að lokum öruggan sigur, 89-66. Keflvíkingar voru sterkari framan af fyrsta leikhluta en Snæfellskonur voru þó aldrei langt undan. Seint í leikhlutanum náði Keflavík tíu stiga forskoti sem Snæfell minnkaði…Lesa meira

true

Margt um manninn á Malavímarkaði

Árlegur Malavímarkaður var haldinn í Grundaskóla á Akranesi í hádeginu í dag. Nemendur og starfsfólk skólans höfðu undibúið markaðinn með að búa til og safna saman munum til að selja. Allur ágóði af sölunni rennur til styrktar skólastarfi í Malaví, sem er eitt fátækasta ríki heims. Settir voru upp sölubásar um skólann þar sem meðal…Lesa meira

true

Endurómur íslenska sönglagsins

Hildigunnur Einarsdóttir messósópran og Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari halda tónleika í Vinaminni á Akranesi, sunnudaginn 24. nóvember kl. 16. Á þessum tónleikum verður íslenska sönglagið skoðað allt frá fyrsta íslenska sönglaginu sem vitað er um, til tónsmíða 20. aldar, til splunkunýrra tónsmíða Páls Ívans frá Eiðum sömdum sérstaklega fyrir þetta tilefni. Hann mun velta fyrir…Lesa meira

true

Ósamræmi í þróun fjárveitinga í umhverfisgeiranum

Mikið ósamræmi er í þróun fjárveitinga til mismunandi verkefna sem falla undir verksvið umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, að því er fram kemur í upplýsingum sem Samtök náttúrustofa tóku saman úr fjárlögum áranna 2005-2019 og fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. „Þegar horft er á þróunina sést að meðalframlag til hverrar náttúrustofu lækkaði um 35% á núverandi verðgildi,…Lesa meira

true

Fyrstu nýju sjúkrabílarnir verða af gerðinni Benz Sprinter

Ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um kaup á 25 nýjum sjúkrabílum liggur fyrir í kjölfar útboðs Ríkiskaupa í haust. Þar með er endurnýjun sjúkrabílaflotans loks hafin í samræmi við samkomulag Sjúkratrygginga Íslands og Rauða krossins á Íslandi frá 11. júlí í sumar. Ekki er þó gert ráð fyrir að fyrstu bílarnir verði afhentir fullbúnir til notkunar fyrr…Lesa meira

true

Allir kvennaflokkar æfðu saman

Sameiginleg knattspyrnuæfing allra kvennaflokka ÍA var haldin í gær. Þar fengu ungar og upprennandi knattspyrnukonur frá 7. flokki og upp úr að æfa með fyrirmyndum sínum úr meistaraflokki. „Gaman var að sjá yngri iðkendur með fyrirmyndum sínum á æfingu,“ segir á vef KFÍA. Æfingin var skipulögð af þjálfurum félagsins, sem fengu leikmenn meistaraflokks til að…Lesa meira