Fréttir

true

Bifreiðaþjónustu Snæfellsness lokað um mánaðamótin

Almennri verkstæðisþjónustu Bifreiðaþjónustu Snæfellsness í Grundarfirði verður lokað föstudaginn 29. nóvember næstkomandi. Bifreiðaþjónusta Snæfellsness er í eigu Rútuferða og er þetta liður í breytingum á rekstri fyrirtækisins. „Verkstæðinu verður lokað í núverandi mynd. Okkar helsti tekjuliður eru rútuferðirnar. Verkstæðið keyptu Rútuferðir á sínum tíma til að hafa aðstöðu fyrir tæki og tól og til að…Lesa meira

true

Losun frá bílaumferð hefur aukist gríðarlega

Losun gróðurhúsalofttegunda vegna vegasamgangna hefur aukist gríðarlega, að því er fram kemur á vef Umhverfisstofnunar. Tölur um losun frá vegasamgöngum og hlutfall af þeirri losun sem fellur á beina ábyrgð stjórnvalda sýna að árið 2005 voru vegasamgöngur 26% af losun. Árið 2017 var hlutfallið komið upp í 34%, en þar vega fólksbílar mest. Tölur frá…Lesa meira

true

Fóru í æfingabúðir í Langaholt

Kirkjukór Ólafsvíkur undirbýr sig af krafti þessa dagana fyrir árlega jólatónleika sína sem fram fara í byrjun desember. Einn liður í þeim undirbúningi var að kórinn fór um síðustu helgi að Langaholti til æfinga. Tók kórinn daginn snemma á laugardeginum og voru kórfélagar mættir og byrjaðir að æfa um klukkan 10 um morguninn þar sem…Lesa meira

true

Leikdómur – Fimm stjörnu sýning sem allir ættu að sjá

Það var ekki laust við að spennu gætti meðal gesta sem mættir voru í Bíóhöllina á Akranesi síðastliðið föstudagskvöld. Framundan var frumsýning Skagaleikflokksins á söngleiknum Litlu Hryllingsbúðinni, stærsta verkefni sem hið gamalgróna leikfélag hafði ráðist í svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Frést hafði að stemningin meðal leikara og annarra sem þátt tóku í uppfærslunni…Lesa meira

true

Fresta um viku atkvæðagreiðslu um starfsskilyrði nautgriparæktar

Frá því var greint í dag á vef Bændasamtakanna að búið er að fresta atkvæðagreiðslu um samkomulag um endurskoðun á samningi um starfsskilyrði nautgriparæktar frá 19. febrúar 2016, sem undirritað var 25. október sl. og fara átti fram dagana 20.- 27. nóvember. „Bændasamtök Íslands boða hér með að nýju til atkvæðagreiðslu um samkomulagið. Atkvæðagreiðslan mun…Lesa meira

true

Kynna í samráðsgátt áform um Miðhálendisþjóðgarð

Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands á vorþingi 2020. Áformin um frumvarpið hafa nú verið kynnt og sett í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Frestur til að skila umsögn er til og með 4. desember 2019. Drög að frumvarpi um þjóðgarðinn munu einnig verða kynnt í samráðsgátt.…Lesa meira

true

Snæfellingar sigruðu í Rímnaflæði

Þeir Davíð Svanur Halldórsson og Hjörtur Sigurðsson úr félagsmiðstöðinni Afdrepi í Snæfellsbæ báru sigur úr býtum í Rímnaflæði 2019, rappkeppni unga fólksins með laginu „Leiðinlegir dagar“. Það er Samfés, samtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, sem stendur fyrir keppninni. Í öðru sæti varð Viktor Örn Hjálmarsson úr félagsmiðstöðinni Þrumunni með lagið „Ferillinn“ og í þriðja sæti varð…Lesa meira

true

Blindi lundinn Mundi í aðalhlutverki í nýrri bók

Ævintýri Munda Lunda, Hvuttasveinar og Fleiri Korkusögur eru allt nýjar bækur eftir Borgnesinginn Ásrúnu Magnúsdóttur. Bókin Fleiri Korkusögur er framhald af bókinni Korkusögur sem hún gaf út í fyrra ásamt systur sinni, Sigríði. Nýja bókin kom út í haust og líkt og í fyrri bókinni er aðalpersónan byggð á systurdóttur Ásrúnar: „Hún er algjör prakkarakringla…Lesa meira

true

Er þakklátur Borgfirðingum fyrir gott samstarf og ánægjuleg kynni

Gunnlaugur Auðunn Júlíusson fráfarandi sveitarstjóri í Borgarbyggð kveðst aðspurður í samtali við Skessuhorn líta glaður um öxl, eftir þrjú og hálft ár í starfi sveitarstjóra. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast íbúum í starfi og leik, en um leið er hann leiður yfir að þannig hafi farið í liðinni viku að sveitarstjórn…Lesa meira

true

Talsvert um laus hross á vegum

Nokkuð var um lausagöngu hrossa í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Að morgni þriðjudagsins 12. nóvember var tilkynnt um lausa hesta á Vesturlandsvegi til móts við Narfastaði. Síðdegis á miðvikudag var tilkynnt um laus hross undir Hafnarfjalli, en fundið var út úr því hver eigandi hrossanna var, sem kom strax á staðinn…Lesa meira