Fréttir

true

Ferðaþjónusta hefur bætt lífsgæði og lífskjör

Í dag komu út skýrslur með niðurstöðum kannana á viðhorfum heimafólks til ferðamanna og ferðaþjónustu á fjórum áfangastöðum, Reykjanesbæ, Stykkishólmi, Húsavík og Egilsstöðum. Kannaðar voru bæði sértækar og staðbundnar áskoranir sem fylgja uppbyggingu ferðaþjónustu og móttöku ferðamanna á þessum stöðum. Niðurstöður staðfesta að ferðamennskan hefur mikil áhrif á samfélag heimamanna en áhrifin eru nátengd staðbundnum…Lesa meira

true

Opnuðu barinn Skipperinn í Stykkishólmi

Hjónin Hreiðar Már Jóhannesson og Hulda Hildibrandsdóttir hafa opnað barinn Skipperinn að Þvervegi 2 í Stykkishólmi. Barinn var opnaður á laugardaginn, 9. nóvember síðastliðinn. Hreiðar segir að um algera skyndiákvörðun hafi verið að ræða hjá þeim hjónum. „Það var annað hvort að ég færi aftur á sjóinn eða myndi búa mér til heilsársvinnu,“ segir Hreiðar…Lesa meira

true

Vörukynning og matarsmakk í Ljómalind á föstudaginn

Í versluninni Ljómalind í Borgarnesi verður opið hús næstkomandi föstudag og verða flestir matvælaframleiðendur í versluninni með kynningu á sínum matvælum milli klukkan 16 og 18. Boðið verður upp á að smakka ýmis fjölbreytt matvæli auk þess sem hægt verður að spjalla við framleiðendurnar og fá frekari upplýsingar um matinn. „Það komast ekki alveg allir…Lesa meira

true

Vínbúðin flutt í nýtt húsnæði á Akranesi

Klukkan 11 í morgun var Vínbúðin á Akranesi opnuð í nýju húsnæði að Kalmansvöllum 1 og hefur gömlu búðinni við Þjóðbraut 13 verið lokað. Nýja verslunin er um 450 fermetrar að stærð og er öll aðstaða í henni betri en á fyrri stað. Meðal annars er stór kælir þannig að viðskiptavinir geta nú nálgast kaldan…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd fékk ágóða af skopmyndasölu

Á opnu húsi hjá Skessuhorni 1. nóvember síðastliðinn voru seldar frummyndir skopmynda Bjarna Þórs, sem birst hafa í blaðinu undanfarin níu ár. Salan gekk prýðilega og rennur ágóðinn, 72.500 krónur, óskiptur til Mæðrastyrksnefndar Akraness. María Ólafsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar tekur hér við peningnum úr hendi Hrafnhildar Harðardóttur auglýsingasala á Skessuhorni. Athygli er vakin á því að…Lesa meira

true

Misstu af lestinni eftir hléið

Skallagrímur tók á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestirnir úr Hveragerði yfirhöndinni í þeim síðari og sigruðu að lokum með 15 stigum, 89-104. Liðin skiptust á að leiða framan af fyrsta leikhluta. Undir lok hans náðu Hamarsmenn smá rispu og leiddu með fjórum stigum að…Lesa meira

true

Amerískur fótbolti á Akranesi á laugardaginn

Leikinn verður amerískur fótbolti í Akraneshöll á laugardag, þegar Einherjar mæta þýska liðinu Pforzheim Wilddogs. Er þetta í annað skipti sem amerískur fótboltaleikur fer fram á Akranesi, en Einherjar sigruðu sænska liðið Tyreso Royal Crowns í Akraneshöllinni í nóvember í fyrra. Amerískur fótbolti nýtur nokkuð vaxandi vinsælda um heim allan og stöðugt fleiri utan Bandaríkjanna…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir Breiðafjörð í fyrramálið

Í dag er spáð norðlægri og síðan breytilegri átt um landið vestanvert. Víða verður léttskýjað, en él á norðaustanverðu landinu fram yfir hádegi. Lægir og léttir til norðaustanlands í kvöld, en vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestanlands. Seint í nótt og í fyrramálið er spáð suðaustan 15-23 m/sek og rigningu eða slyddu sunnan- og vestantil,…Lesa meira

true

Hótel Varmaland er nýtt 60 herbergja hótel í hjarta Borgarfjarðar

Nýjasta hótelið á Vesturlandi er á Varmalandi í Stafholtstungum í Borgarfirði, í húsi sem upphaflega var byggt undir starfsemi Húsmæðraskólans á Varmalandi sama ár og síðari heimsstyrjöldinni lauk. Á síðustu fimm árum hefur húsið verið stækkað og endurbætt fyrir hundruði milljóna króna. Skólahald í húsmæðraskólanum lagðist af seint á níunda áratugnum og eftir það var…Lesa meira

true

Fjórum skipverjum bjargað um borð í þyrlu laust fyrir miðnætti

Rúmlega tuttugu tonna fiskibátur, Einar Guðnason ÍS-303, strandaði við Gölt á utanverðum Súgandafirði í gærkvöldi. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá bátnum klukkan 22 en fjórir voru um borð. TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var þegar í stað kölluð út sem og björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á norðanverðum Vestfjörðum. Báturinn skorðaðist fljótlega á milli kletta og braut nokkuð á…Lesa meira