Fréttir

true

Lýðheilsustefna í nýju mötuneyti Grunnskólans í Borgarnesi

Fyrsti dagur nóvembermánaðar var merkilegur dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi. Þá var fyrsta máltíðin elduð í nýju og glæsilegu eldhúsi skólans en síðustu 17 ár hafa nemendur farið yfir á Hótel Borgarness til að borða í hádeginu. Fyrsti kokkurinn í nýja eldhúsinu er Borgnesingurinn Snæbjörn Óttarsson og segir hann eldhúsið vera sveitarfélaginu öllu til sóma.…Lesa meira

true

Í sviðaveislu á Höfða

Það var létt yfir íbúum og kostgöngurum á Höfða – hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Þá var boðað til árlegrar sviðaveislu í mötuneytinu. Áður en sest var að snæðingi spilaði Gísli S Einarsson á harmonikku og söng með gestum í hátíðarsalnum og boðið var upp á kalt Brennivín fyrir þá sem það vildu.…Lesa meira

true

„Okkur er haldið í heljargreipum“

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni var starfsfólki Ísfisks, rúmlega 40 manns, sagt upp störfum 30. september síðastliðinn. Síðan þá hefur verið unnið að því að bjarga fjárhag fyrirtækisins svo það geti hafið starfsemi að nýju. En á meðan situr starfsfólkið heima með sárt ennið. Það hefur ekki fengið greidd laun fyrir…Lesa meira

true

Raunlækkun fasteignaskatts á fyrirtæki

Álagningaprósenta á atvinnuhúsnæði á Akranesi verður lækkuð frá næstu áramótum, verður 1,4% í stað 1,5804% áður. Þetta er meðal þess sem kom fram þegar fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2020 var til fyrri umræðu í bæjarstjórn á fundi í gær. „Þetta felur í sér raunlækkun fasteignaskatta og lækkun tekna Akraneskaupstaðar því fasteignamat er að hækka lítið…Lesa meira

true

Sveitarstjóra Borgarbyggðar sagt upp

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur sagt Gunnlaugi A. Júlíussyni sveitarstjóra upp og hefur hann þegar látið af störfum. Í tilkynningu frá sveitarstjórn, sem var að berast fjölmiðlum segir: „Mismunandi sýn á stjórnun sveitarfélagsins gerir það að verkum að sveitarstjórn og Gunnlaugur hafa ákveðið að slíta samstarfi. Gunnlaugur hefur frá því að hann kom til starfa fyrir sveitarfélagið…Lesa meira

true

Matur er mannsins megin

Með Skessuhorni sem kom út í dag fylgir 24 síðna sérblað um Matarauð Vesturlands. Þar er tekið hús á veitingamönnum og framleiðendum sem eru að vinna með vestlenskt hráefni og auka með því sérstöðu í þjónustu og vöruframboði. Vinnsla blaðsins er í samstarfi Markaðsstofu Vesturlands og Skessuhorns með tilstyrk frá Sóknaráætlun Vesturlands. Auk hefðbundinnar dreifingar…Lesa meira

true

Afþreyingar- og þjónustumiðstöð tekin í notkun á Húsafelli

Ný afþreyingar- og þjónustumiðstöð hefur verið tekin í notkun á Húsafelli. Húsið var byggt af PJ byggingum á Hvanneyri og flutt í heilu lagi að Húsafelli í byrjun október. Húsið, sem er staðsett við hliðina á Húsafell Bistró, er að mestu tilbúið en lokið var við frágang utanhúss í gær. Í húsinu verður Into the…Lesa meira

true

Stefna Ágústu Elínar gegn ríkinu verður tekin fyrir í dag

Aðalmeðferð í máli Ágústu Elínar Ingþórsdóttur, skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands, gegn íslenska ríkinu fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ágústa stefndi ríkinu eftir að Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra ákvað að auglýsa starf hennar laust til umsóknar án þess að hafa tilkynnt henni um fyrirætlanir sínar um auglýsinguna á réttan hátt innan tilskilins tímaramma, eins og lög…Lesa meira

true

Hvetja alla til að rækta ofan í sig – verðlaunahafar sóttir heim

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar voru veittar nýverið og í flokki fallegra einkalóða var Brekkubraut 25 á Akranesi veitt viðurkenning. Þar búa hjónin Þóra Þórðardóttir og Helgi Helgason og hafa gert undanfarin fjögur ár. „Þegar við fluttum inn var hér gamall og fallegur garður. Hér voru pallar og stétt, greinilega frá sitt hvorum tímanum, gamalt timburgróðurhús, rosalega fallegt…Lesa meira

true

Sveppaáhugafólk ætlar að koma saman

Áhugahugafólk um sveppi ætlar að hittast í brugghúsi Steðja í Flókadal á sunnudaginn. Þar verður sett upp tímabundið rými til að koma saman og læra, ræða eða einfaldlega prófa nýeldaða sveppi af ýmsum sortum. Bornir verða á borð nýeldaðir sveppir með heimagerðu brauði, súrsaðir ostrusveppir, sveppabaka og mismunandi kæfur svo eitthvað sé nefnt. Einnig verður…Lesa meira