Fréttir

true

Sundfélag Akraness náði góðum árangri í Hafnarfirði um helgina

Á Íslandsmeistaramóti í 25 m laug, sem fram fór um í Ásvallalaug í Hafnarfirði um síðustu helgi, var einn Íslandsmeistari frá Sundfélagi Akraness auk þess sem fjögur silfur komu á Akranes. Alls voru 188 keppendur frá 15 félögum á mótinu og þar af komu átta frá Akranesi. „Sundkrakkarnir áttu mjög góða helgi og stemningin í…Lesa meira

true

Skrifað undir samninga um sóknaráætlanir landshluta

Nýir sóknaráætlanasamningar við átta landshlutasamtök sveitarfélaga voru undirritaðir í dag. Fulltrúar landshlutasamtakanna undirrituðu samningana í ráðherrabústaðnum við hlutaðeigandi ráðherra. Grunnframlag ríkisins til samninganna árið 2020 nemur 716 milljónum króna en með viðaukum og framlagi sveitarfélaga nema framlög alls 929 milljónum króna. Samningarnir byggja á lögum um byggðaáætlun og sóknaráætlanir og gilda til fimm ára, 2020-2024.…Lesa meira

true

Bjarki á leið á lokaúrtökumót

Borgnesingurinn Bjarki Pétursson tryggði sér í gær þátttökurétt á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðar karla í golfi. Bjarki komst inn á mótið eftir mikla baráttu á annars stigs úrtökumóti sem haldið var á Spáni. Bjarki var á fjórum höggum yfir pari eftir fyrstu tvo keppnisdaga mótsins, en lék seinni tvo hringina á níu undir pari við mjög erfiðar…Lesa meira

true

Samið um nýtt nám í jarðvinnu

Samtök iðnaðarins, Félag vinnuvélaeigenda, Tækniskólinn og mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa tekið höndum saman um að koma á laggirnar nýju námi í jarðvinnu í fyrsta sinn hér á landi. Samkomulag þess efnis var undirritað í gær. Markmiðið með samkomulaginu er að koma á formlegu jarðvinnunámi á framhaldsskólastigi sem undirbýr nemendur undir margvísleg störf við jarðvinnu og…Lesa meira

true

Ógætilegur akstur stórhættulegur knöpum og hrossum

Ása Hólmarsdóttir, formaður Hestamannafélagsins Dreyra á Akranesi, hefur sent frá sér vinsamleg tilmæli til ökumanna: „Ekki flauta á hestafólk á útreiðum og ekki aka hratt framhjá þeim.“ Ása segir að komið hafi upp nokkur tilvik að undanförnu þar sem ökumenn á ferð um gamla þjóðveginn inn að hesthúsahverfinu á Æðarodda hafa sýnt fullkomið tillitleysi og…Lesa meira

true

Taka þátt í Handverki og hönnun í Ráðhúsinu

Í næstu viku mun Handverk og hönnun halda hina árlegu sýningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin stendur dagana 21. til 25. nóvember. Að sögn sýningarhaldara ræður fjölbreytnin ríkjum á sýningunni enda er gróskan mikil í íslensku handverki, hönnun og listiðnaði. Frá Akranesi mæta þær stöllur Kolbrún Sigurðardóttir og María Kristín Óskarsdóttir…Lesa meira

true

Kúnnakvöld í Módel í aðdraganda aðventu

Áratugahefð er fyrir því að verslunin Módel við Þjóðbraut 1 á Akranesi bjóði gestum og gangandi á kúnnakvöld. Um er að ræða kvöldopnun þar sem ýmis tilboð og kynningar eru í gangi og jólavörurnar komnar í hillurnar. Engin undantekning var á því að þessu sinni, en síðastliðinn fimmtudag var sameiginlegt kúnnakvöld Módels og verslunarinnar Hans…Lesa meira

true

Mæla blóðsykurinn næsta laugardag

Laugardaginn 16. nóvember klukkan 13-16 mun verða boðið upp á fría blóðsykursmælingu í Bónushúsinu við Smiðjuvelli á Akranesi. Mælingin er í boði Apóteks Vesturlands, Lionsklúbbanna á Akranesi og Félags sykursjúkra á Vesturlandi. Fólk er hvatt til að nýta sér þetta.Lesa meira

true

Nýtt smáforrit metur hættuna á sjónskerðingu hjá sykursjúkum

Tæp 70% fólks með sykursýki fær augnbotnabreytingar sem afleiðingu af sjúkdómi sínum. Koma má í veg fyrir sjónskerðingu og blindu í yfir 90% tilvika með tímanlegri greiningu og meðferð. Lions hreyfingin á Íslandi hefur til fjölda ára beitt sér fyrir blóðsykursmælingum þannig að fólk sem komið er í áhættuhóp vegna sykursýki fái snemma greiningu og…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til uppsetningar hraðhleðslustöðva

Orkusjóður hefur úthlutað styrkjum að upphæð 227 milljónum króna til uppsetningar 43 nýrra hraðhleðslustöðva vítt og breitt um landið. Nýju stöðvarnar verða þrisvar sinnum aflmeiri en öflugustu stöðvarnar sem fyrir eru hérlendis og eiga að stuðla að hindrunarlausum ferðum rafbíla milli landshluta. Verkefnið er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og uppbyggingu innviða vegna orkuskipta…Lesa meira