Fréttir

true

Mæðrastyrksnefnd stefnir á úthlutun fyrir jólin

Mæðrastyrksnefnd Akraness stefnir á að árleg jólaúthlutun fari fram föstudaginn 13. desember næstkomandi. Nú vinna konur í nefndinni að söfnun styrkja og leitar aðstoðar frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum til að gera úthlutunina mögulega. „Við stefnum á að styrkir að þessu sinni verði að mestu leyti í formi gjafakorta í matvöruverslunum,“ segir María Ólafsdóttir formaður…Lesa meira

true

Heitt vatn finnst í Ólafsdal – gjörbreytir möguleikum til heilsársrekstrar

Síðastliðinn laugardagsmorgun komu bormenn frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða niður á heitt vatn skammt fyrir neðan skólahúsið í Ólafsdal. Það er Minjavernd sem stendur að uppbyggingu á staðnum og segist Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri að vatnsfundurinn á laugardaginn hafi glatt sitt gamla hjarta. „Þetta mun gjörbreyta öllum möguleikum til heilsársrekstrar í Ólafsdal en í það minnsta…Lesa meira

true

Fjalla um neyslubreytingar og áhrif á matvælaframleiðslu

Matvælalandið Ísland og Landbúnaðarklasinn standa fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu um neyslubreytingar og áhrif þeirra á matvælaframleiðslu á morgun, þriðjudaginn 5. nóvember. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum en munu allir fjalla um það hvernig breytingar á neysluhegðun almennings munu snerta matvælageirann í nánustu framtíð. Fulltrúi frá Gallup segir frá könnunum á neyslu sem benda til…Lesa meira

true

120 ár frá fæðingu Jóhannesar úr Kötlum

Í dag eru 120 ár síðan drengur fæddist drengur á Goddastöðum í Laxárdal, síðar skírður Jóhannes Bjarni Jónasson. Á Facebook síðu Byggðasafns Dalamanna er skáldsins Jóhannesar úr Kötlum minnst. „Það er vel þess virði að staldra við í dag og rifja upp eins og eitt af ljóðum hans í huganum og/eða uppgötva eins og eitt…Lesa meira

true

Úr leik í bikarnum

Skallagrímur og Snæfell töpuðu bæði Leikið var í 32 liða úrslitum Geysisbikars karla í körfuknattleik um helgina. Snæfell og Skallagrímur léku í gærkvöldi og máttu bæði lið sætta sig við tap í sínum viðureignum. Borgnesingar töpuðu fyrir Sindra í Borgarnesi og Snæfell beið lægri hlut gegn Þór Ak. í Stykkishólmi. Spennuleikur í Borgarnesi Skallagrímsmenn höfðu…Lesa meira

true

Umsagnir um plastfrumvarp

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Frumvarpinu hefur nú verið streymt á samráðsgátt stjórnvalda þar sem fólki gefst kostur á að koma með athugasemdir til 11. nóvember nk. „Markmið frumvarpsins verður að draga úr áhrifum plasts á umhverfið og heilsu fólks.…Lesa meira

true

Guðmundur hættir að stýra Golfklúbbnum Leyni

Guðmundur Sigvaldason hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi sem framkvæmdastjóri og hefur stjórn Leynis orðið við beiðni hans. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Guðmundur hefur starfað hjá Golfklúbbnum Leyni frá árinu 2013 sem framkvæmdastjóri og leitt öfluga uppbyggingu klúbbsins undanfarin ár en aðstaða klúbbsins hefur tekið miklum breytingum…Lesa meira

true

Áforma friðlýsingu votlendis við Fitjaá

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um friðlýsingu votlendis og óshólma Fitjaár í Skorradal sem friðland. Áformin eru kynnt í samstarfi við landeigendur og Skorradalshrepp. „Víðlent votlendi er við Fitjaá og er það að stærstum hluta á náttúruminjaskrá. Tillagan nær jafnframt yfir árósa Fitjaár þar sem er að finna fjölbreytt fuglalíf. Starungsmýravist er ríkjandi á svæðinu en…Lesa meira

true

Skipaður þjóðleikhússtjóri

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóra í embætti þjóðleikhússtjóra frá 1. janúar nk. Skipunin gildir í fimm ár. Sjö umsóknir bárust um embættið. Starf útvarpsstjóra verður auglýst laust til umsóknar.Lesa meira

true

Ítalskur skiptinemi með frábæran árangur í stærðfræðikeppni

Ítalski skiptineminn Giovanni Gaio stundar nám við Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Hann hefur einungis verið á Íslandi í tvo og hálfan mánuð en engu að síður bannaði hann fréttaritara Skessuhorns að ræða við sig á ensku. „Bara íslenska takk,“ sagði hann skýrmæltur. Giovanni býr í Stykkishólmi og unir hag sínum vel. Þriðjudaginn 29. október síðastliðinn…Lesa meira