Fréttir

true

Bæta aðstöðu við Glanna og Paradísarlaut

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur samið við Borgarbyggð um að útbúa bílastæði og salerni við Glanna og Paradísarlaut í Norðurárdal. Gríðarlegur fjöldi ferðafólks sækir þessi náttúruundur heim á hverju ári og algengt er á góðviðrisdögum að þar séu bílastæði stappfull. Í þessari framkvæmd leggur ríkið til 13 milljónir króna á tveimur árum. Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti samninginn…Lesa meira

true

Basar og kaffisala í Brákarhlíð í dag

Í dag, föstudaginn 1. nóvember milli klukkan 15:00 og 17:00, verður árlegur basar og kaffisala í Brákarhlíð í Borgarnesi. Að þessu sinni verður hann staðsettur í og við vinnustofu íbúa á jarðhæð heimilisins, semsagt nýr tími á basar og ný staðsetning í húsinu. Allir eru hjartanlega velkomnir og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd…Lesa meira

true

Rjúpnaveiðitímabilið hefst í dag

Í dag er fyrsti dagurinn sem heimilt er að skjóta rjúpu á þessu hausti. Fyrirkomulag veiðanna er með breyttu sniði miðað við undangengin ár. Nú og næstu tvö ár að auki verður heimilt að skjóta rjúpu frá og með 1. nóvember til og með 30. nóvember, föstudaga til þriðjudaga, eða alls 22 daga í mánuðinum.…Lesa meira

true

Blað fauk á húshorn

Blikksmiðirnir Sævar Jónsson og Ingi Björn Róbertsson frá Blikksmiðju Guðmundar voru í gær að hengja upp nýtt skilti á húshornið á Garðabraut 2a á Akranesi til auðkenningar á nýrri skrifstofu Skessuhorns. Bæjarskilti þetta er í hlutföllunum 2,5 sinnum stærð venjulegs blaðs og er staðsett eins og “blaðið” hafi fokið í suðaustan roki og endað á…Lesa meira

true

Glatt á hjalla á haustfagnaði

Það var glatt á hjalla meðal sauðfjárbænda í Dölum síðastliðna helgi þegar árlegur haustfagnaður var haldinn. Fögnuðurinn, sem er haldinn af Félagi sauðfjárbænda í Dalasýslu, var með nokkuð breyttu sniði frá því sem hefur verið síðustu ár. Hófst hann á föstudagskvöldi með hrútasýningu sunnan varnarlínu á Stóra-Vatnshorni í Haukadal. Þar voru hrútar þuklaðir í þremur…Lesa meira

true

Þróunarfélagið vill nýta glatvarma og binda kolefni

Þróunarfélag Grundartanga og Elkem Ísland vinna nú í sameiningu að fjölþættu verkefni sem miðar meðal annars að því að nýta þá umframorku sem verður til við framleiðslu kísílmálms hjá Elkem. Ólafur Adolfsson, bæjarfulltrúi á Akranesi, er formaður stjórnar Þróunarfélags Grundartanga, en að félaginu standa fjögur sveitarfélög á sunnanverðu Vesturlandi auk Faxaflóahafna og Reykjavíkurborgar. Tilgangur félagsins…Lesa meira

true

Sæmd umhverfisviðurkenningum

Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar 2019 voru afhent í gær á Bókasafni Akraness. Í lok sumars var auglýst eftir tilnefningum. Dómnefnd fór í vettvangsferðir og tók tilnefningarnar út. Meðal þess sem dómnefnd leit til við mat sitt var fagurfræði, fjölbreytileiki, samtal við almenningsrými og hvort þau vöktu í víðum skilningi athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð…Lesa meira

true

Ökumenn undir áhrifum

Ökumaður var stöðvaður þar sem hann ók um Grundarbraut í Grundarfirði laust fyrir kl. 16 síðastliðinn miðvikudag, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Strokpróf sem tekið var á manninum svaraði jákvætt og var maðurinn því handtekinn, færður til blóðtöku og látinn gefa skýrslu. Að svo búnu var honum sleppt en hann var kærður…Lesa meira

true

Opnuð sýning í Safnahúsi úr safni Páls Jónssonar

Laugardaginn 2. nóvember kl. 13 verður þess minnst í Safnahúsinu í Borgarnesi að 110 ár eru liðin frá fæðingu Páls Jónssonar bókavarðar. Páll arfleiddi Héraðsbókasafn Borgarfjarðar að bókasafni sínu sem þykir eitt merkasta einkabókasafn landsins. Bókhlaða Páls verður opin og þar verða sýndar nokkrar fágætar bækur úr safni hans í sérstökum sýningarskápum. Einnig verða sýndar…Lesa meira

true

Frumvarp um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof í samráðsgátt

Frumvarp um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnafrestur er til 12. nóvember 2019. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að samanlagður réttur foreldra til fæðingarorlofs lengist úr níu mánuðum samkvæmt gildandi lögum í tólf mánuði og að lengingin komi til framkvæmda í tveimur áföngum. Annars vegar vegna barna…Lesa meira