Fréttir

true

Vestlensk matarmenning í öndvegi

Miðvikudaginn 13. nóvember næstkomandi fylgir með Skessuhorni sérblað tileinkað Matarauð Vesturlands – vestlenskri matarmenningu. Það er Markaðsstofa Vesturlands sem gefur blaðið út í samráði við Sóknaráætlun Vesturlands og Skessuhorn. Þar verður verkefnið Veisla á Vesturlandi kynnt, matarþema sem stendur yfir allan nóvembermánuð en með sérstaka áherslu á tímabilið 13.-23. nóvember. Dagskrá þar sem fjölbreyttir matartengdir…Lesa meira

true

Hrekkjavaka er í dag

Í dag er hrekkjavaka, en hátíðin hefur verið að ryðja sér til rúms hér á landi síðustu ár og eru margir Íslendingar farnir að halda daginn hátíðlegan. Margir klæða sig upp í búninga eða setja upp skraut og þykir þá sérstaklega skemmtilegt að hafa það smá ógvekjandi. Þá hafa börn farið í svokallaða „grikk eða…Lesa meira

true

Töpuðu heima

Snæfellskonur máttu játa sig sigraðar þegar þær mættu Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi og lauk leiknum með sigri Hauka, 56-61. Snæfell byrjaði leikinn betur og komst í 12-7 áður en Haukar jöfnuðu metin í 12-12 seint í fyrsta leikhluta. Snæfellskonur áttu lokaorðið í upphafsfjórðungnum og leiddu með…Lesa meira

true

Lögreglan í stöðugri þjálfun

Lögreglumenn á Vesturlandi hafa undanfarið verið í skotvopnaþjálfun og þurfa að henni lokinni að þreyta próf, en lögreglumenn þurfa próf á bæði skammbyssu og langvopn. Auk þess hafa lögreglumenn verið við handtökuæfingar. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns eru lögreglumenn umdæmisins í stöðugri þjálfun, allt árið um kring, að frátöldum sumarmánuðum. Framundan er síðan tveggja daga námskeið allra…Lesa meira

true

Opinber heimsókn forsetahjónanna í Grundarfjörð

Í morgun hófst opinber heimsókn Guðna Th Jóhannessonar forseta Íslands og Elizu Reid eiginkonu hans til Grundarfjarðar. Þétt dagskrá er framundan í allan dag, sem lýkur með hrekkjavöku-skemmtun í Samkomuhúsinu síðdegis. Dagskráin hófst í morgun með heimsókn á bæjarskrifstofuna en síðan var haldið í grunnskólann þar sem þessi meðfylgjandi mynd var tekin nú rétt í…Lesa meira

true

Uppskipun stálþilja í Grundarfjarðarhöfn

Flutningaskipið Hohe Bank lagði að bryggju í Grundarfjarðarhöfn seinnipartinn í gær. Farmurinn samanstendur af stálþiljum sem nota á í hafnarframkvæmdirnar sem senn fara að hefjast. Starfsmenn Borgarverks eru byrjaðir að vinna í námunni við Gröf þaðan sem stórgrýti verður flutt í höfnina og eftir að þessum farmi hefur verið skipað upp verður hægt að hefjast…Lesa meira

true

Verið velkomin á opið hús hjá Skessuhorni

Á morgun, föstudaginn 1. nóvember klukkan 14-17, verður opið hús á nýrri skrifstofu Skessuhorns, á Garðabraut 2a á Akranesi. Heitt kakó, kaffi og hressing. Þá verða boðnar til sölu fyrir 2000 krónur frummyndir skopmynda Bjarna Þórs Bjarnasonar listamanns úr blaðinu síðastliðin 9 ár. Allur ágóði af sölunni rennur til Mæðrastyrksnefndar. Allir velkomnir!Lesa meira

true

Sigur eftir spennandi lokamínútur

Skallagrímskonur gerðu góða ferð til Keflavíkur í gærkvöldi, þegar þær sigruðu lið Keflvíkinga, 70-75, í Domino‘s deild kvenna í körfunkattleik. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina lungann úr leiknum, en Keflvíkingar voru nálægt því að vinna upp afgerandi forskot í lokafjóðrungnum. Leikurinn var því æsispennandi undir lokin, en fór svo að lokum að Borgnesingar höfðu betur. Jafnt var…Lesa meira

true

Landsmönnum boðin drónakona

Í dag hefst árleg sala björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á neyðarkallinum og stendur hún til 3. nóvember. Að þessu sinni er neyðarkallinn björgunarsveitarkona með dróna, en þau tæki hafa björgunarsveitir í vaxandi mæli tekið í sína notkun við leit að týndu fólki. Björgunarsveitarfólk mun standa vaktina á fjölförnum stöðum og bjóða neyðarkallinn til sölu. Hagnaður af…Lesa meira

true

Villtust á göngu

Tveir göngumenn höfðu samband við Neyðarlínu eftir að hafa gengið á Þyril í Hvalfirði síðastliðið laugardagskvöld. Göngumennirnir komust klakklaust upp á fjallið en villtust á leiðinni niður. Lögreglan á Akranesi óskaði eftir aðstoð Björgunarfélags Akraness sem kom göngumönnunum til aðstoðar.Lesa meira