
Volvo dælubifreið Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar hefur gengið í endurnýjun lífdaga. Eftir að dæla bílsins hrundi fyrir nokkru síðan hefur bíllinn staðið ónothæfur, þar til nú. Spánýjum One Seven dælubúnaði hefur verið komið fyrir í bílnum, ásamt mónitor. Bíllinn er orðinn eins og nýr, að sögn slökkviliðsstjórans. Það var Bílaverkstæði Hjalta sem annaðist allar breytingar…Lesa meira








