Fréttir

true

Olíuskip losnaði frá bryggju

Olíuskipið Torm Venture liggur nú við bryggju við Miðsand í Hvalfirði en skipið flytur olíu á geymslutanka þar. Í norðan roki í morgun vildi hins vegar ekki betur til en svo að landfestar losnuðu og byrjaði skipið að reka frá bryggju með olíuleiðsluna tengda í land. Fréttavefurinn mbl.is greindi frá. Í fréttinni segir að litlu…Lesa meira

true

Maximus trítlar í tónlistarskólann á Akranesi

Sýningin Maximus Músikús trítlar í tónlistarskólanum verður sett upp í Tónbergi af nemendum og kennurum Tónlistarskólans á Akranesi ásamt sögumanni og myndasýningu fimmtudaginn 24. október. Maximus tónlistarmús er sköpunarverk Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar og í þessari sýningu er músin fjöruga stödd í tónlistarskóla og flækist þar á milli og segir frá mismunandi hljóðfærum…Lesa meira

true

Skallagrímur semur við bandarískan miðherja

Körfluknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við bandaríska miðherjann Kenneth Simms. Kenneth mun því leika með liðinu í 1. deild karla í vetur, en hann er reynslumikill leikmaður með tíu ára feril sem atvinnumaður með félagsliðum um allan heim. Hann er 33 ára gamall og 206 cm á hæð. „Hann hefur m.a. leikið í Svíþjóð, Litháen, Belgíu,…Lesa meira

true

Boða frumvarp um nýja stjórnarskrá á grundvelli stjórnlagaráðs

Á sjö ára afmæli þjóðaratkvæðagreiðslunnar 20. október síðastliðinn var tilkynnt að Píratar og Samfylkingin hyggjast leggja fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá sem byggir á frumvarpi stjórnlagaráðs og vinnu Alþingis í kjölfarið. Frumvarpið leggur til að halda áfram vinnu við setningu nýrrar stjórnarskrá þar sem frá var horfið árið 2013. „Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október 2012 sýndi að…Lesa meira

true

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími á föstudaginn

Snæfell hafði betur gegn Skallagrími í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudaginn, en lokatölur urðu 73-69. Skallagrímur komst fljótlega í fyrsta leikhluta fimm stigum yfir en Snæfell var ekki lengi að jafna. Leikhlutinn var nokkuð jafn allan tímann en það var ekki fyrr en um miðjan annan leikhluta sem Snæfell náði aðeins…Lesa meira

true

Borgarbyggð er hástökkvari ársins í fjármálum sveitarfélaga

Á fundi í byggðarráði Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var kynnt greining Arionbanka á ársreikningum sveitarfélaga fyrir árið 2018. Þar kemur fram að Borgarbyggð er annað tveggja sveitarfélaga sem eru hástökkvarar ársins að mati bankans. „Ársreikningar þeirra sveitarfélaga sem hafa yfir 1500 íbúa voru teknir til skoðunar. Greiningardeild bankans hefur skilgreint veikleikaviðmið gagnvart 22 kennitölum í þessari…Lesa meira

true

Ljósleiðari dreginn yfir Skorradalsvatn

Lagning ljósleiðara um Skorradal er nú vel á veg komin, en verkið hófst vorið 2018. Búið er að tengja flesta bæi í sveitinni, auk nokkurra bæja í Andakíl. Sökum þess hve skógurinn er þéttur við veginn á móts við Stálpastaði var brugðið á það ráð að draga leiðarann yfir vatnið frá landamerkjum Haga og Vatnshorns.…Lesa meira

true

Drög að matsáætlun fyrir vindmyllur á Grjóthálsi

Eins og greint var frá í síðasta Skessuhorni eru uppi áform um að reisa allt að sex vindmyllur á Grjóthálsi í Borgarfirði. Það eru eigendur jarðanna Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð sem standa fyrir verkefninu. Nú hafa drög að matsáætlun fyrir vindmyllur á Grjóthálsi verið birt á vef VSÓ Ráðgjafar, www.vso.is, og verið…Lesa meira

true

Fjallað um sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi

Annað kvöld, þriðjudaginn 22. október kl. 20, flytur Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu fyrirlestur í Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti um sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi. Árum saman voru félagssagnfræðingar tregir til að nýta sér við rannsóknir persónulegar minningar fólks nema í mjög afmörkuðum tilgangi. Á síðari árum hefur orðið grundvallarbreyting á hugmyndum fræðimanna um stöðu…Lesa meira

true

Hvetja menntayfirvöld til að leysa erfitt ástand í FVA

Ekki er ofsagt að harðar deilur eru uppi innan veggja Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Deiluaðilar eru Ágústa Elín Ingþórsdóttir skólameistari annars vegar, en hins vegar nær allir kennarar við skólann sem lýst hafa vantrausti á störf hennar. Menntamálaráðherra ákvað í sumar að auglýsa starf skólameistara laust til umsóknar frá næstu áramótum, þegar skipunartíma núverandi skólameistara…Lesa meira