Fréttir

true

Ný stjórn kjörin á landsfundi Vinstri grænna

Á landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem haldinn er á Grand hóteli um helgina var ný stjórn kjörin í flokknum. Alls barst 21 framboð í stjórn en hún er skipuð ellefu aðalmönnum og fjórum varamönnum. Katrín Jakobsdóttir var endurkjörin formaður flokksins en hún hefur verið formaður frá árinu 2013. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra,…Lesa meira

true

Verkefnisstjóri í menningar- og byggðamálum

Sigursteinn Sigurðsson arkitekt hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Sigursteinn hefur síðustu átta ár rekið arkitektastofuna Gjafa í Borgarnesi en auk þess starfaði hann að sérverkefnum fyrir SSV á árunum 2012 til 2014. Hann hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í ýmsum framfara- og samfélagsmálum í heimabyggð og…Lesa meira

true

Vetraropnun Guðlaugar við Langasand

Á Langasandi er hægt að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins úr Guðlaugu sem er heit laug staðsett í grjótgarðinum við sandinn. Guðlaug er skilgreind sem náttúrulaug/afþreyingarlaug sem er opin allt árið um kring. Laugin er gjaldfrjáls og eru búningsklefar á staðnum. Vetraropnun í Guðlaugu hefur nú tekið gildi. Opið er miðviku- og föstudaga…Lesa meira

true

Agnes Joy var tekin upp á Akranesi

Íslenska kvikmyndin Agnes Joy var frumsýnd í Háskólabíói í gær. Fjölmenni var á sýningunni en um er að ræða mynd um Rannveigu sem er að upplifa kulnun í starfi og einkalífi. Þá er hjónabandið ekki vel statt og hún föst í starfi sem hún hatar og á í útistöðum við dóttur sína, Agnesi. Agnes er…Lesa meira

true

Betri bílastæði við Saxhól

Framkvæmdum á bílastæðinu við Saxhól lauk nú á dögunum en peningar í það verkefni fengust úr innviðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2019 og 2020. Var úhlutunin 6,5 miljónir fyrir árið 2019 og 23,3 milljónir fyrir árin 2020-2021. Hefur Vegagerðin séð um lagfæringarnar á veginum að Saxhól sem og bílastæðinu fyrir Þjóðgarðinn Snæfellsjökul en það er Stafnafell…Lesa meira

true

Rætt um framtíð Breiðafjarðar

Fræðslu- og umræðuþing um framtíð Beiðafjarðar, á vegum Breiðafjarðarnefndar og Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, verður haldið í Tjarnarlundi í Saurbæ á miðvikudaginn í næstu viku, 23. október. Dagskráin hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 16:00. Allir eru velkomnir og ókeypis aðgangur. Það er mikilvægt að skrá sig á netfangið breidafjordur@nsv.is. Sjá hér að neðan ítarlega…Lesa meira

true

Prjónahópur færir þakklætisvott

Frá því að Kaffi Emil var opnað í Grundarfirði fyrir nokkrum árum hefur vaskur hópur kvenna átt afdrep þar einu sinni í viku til að hittast og prjóna. Nú styttist í að mæðgurnar Olga Sædís Aðalsteinsdóttir og Elsa Fanney Grétarsdóttir hætti rekstri kaffihússins og því vildu þessar vösku prjónakonur færa þeim þakklætisvott fyrir prjónaaðstöðuna. Þær…Lesa meira

true

Ísfiskur fær fyrirgreiðslu Byggðastofnunar

Fiskvinnslan Ísfiskur á Akranesi hefur fengið jákvæða afgreiðslu lánsumsóknar hjá stjórn Byggðastofnunar. Að sögn Alberts Svavarssonar framkvæmdastjóra er sú lánafyrirgreiðsla háð uppfylltum skilyrðum sem fyrirtækið þarf svigrúm til að mæta. Því mun í eina til tvær vikur til viðbótar ríkja óvissa um framtíð fyrirtækisins. Albert kveðst engu að síður vongóður um að Ísfiskur nái að…Lesa meira

true

Breytingar í starfsmannahaldi á RML

Hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er 44 manna hópur starfsmanna með breiða þekkingu á landbúnaði og með aðsetur á 13 starfsstöðvum um landið. RML hóf starfsemi árið 2013 og er stefnan að veita metnaðarfulla þjónustu meðal annars á sviði landbúnaðar og landnytja. Talsverðar breytingar hafa að undanförnu verið kynntar á starfsmannahaldi. Sigurður Guðmundsson hefur verið ráðinn sem…Lesa meira

true

Fjölmenningarhátíð í Snæfellsbæ á sunnudaginn

Sunnudaginn 20. október verður Fjölmenningarhátíðin haldin í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík frá klukkan 14 til 16. Er þetta í fimmta sinn sem hátíðin er haldin en fram að þessu hefur hún verið haldin í Frystiklefanum í Rifi. Vegna þess hversu mikill fjöldi gesta hefur verið var ákveðið að færa hátíðina í stærra húsnæði í ár.…Lesa meira