Fréttir

true

Tveir í fangelsi fyrir fíkniefnaakstur

Tveir karlmenn voru í Héraðsdómi Vesturlands þriðjudaginn 15. október dæmdir til fangelsisvistar vegna aksturs undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna og fyrir akstur eftir að hafa verið sviptir ökuréttindum. Annar maðurinn var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar en hinn í 60 daga fangelsi. Báðir voru þeir sviptir ökurétti ævilangt. Of hratt, undir áhrifum og án…Lesa meira

true

Fjöldi nýrra fulltrúa sækir landsfund VG nú um helgina

Hátt í þrjúhundruð VG félagar hafa nú skráð sig á landsfund Vinstri grænna sem stendur á Grand Hótel alla helgina (18. – 20. október). Blásið er til leiks klukkan fjögur á föstudag, en þá verða kynntar skýrslur og ársreikningur hreyfingarinnar. Sérstakar móttökur á fundinum fá nýir landsfundarfulltrúar, en að þessu sinni mæta á fundinn á…Lesa meira

true

Þrjátíu daga fangelsi fyrir sviptingarakstur

Karlmaður var í Héraðsdómi Vesturlands síðastliðinn mánudag dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum eftir Esjubraut á Akranesi 9. júní 2019. Fram kemur í dómnum að samkvæmt sakavottorði hafi maðurinn hlotið einn dóm frá árinu 2014 og sjö sinnum gengist undir viðurlög lögreglu og fyrir dómi. „Með brotum sínum nú hefur…Lesa meira

true

Lög um einföldun regluverks til umsagnar í samráðsgátt

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur sett til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum til einföldundar regluverks á málefnasviðum ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Frumvarpið er fyrsti áfangi af þremur í aðgerðaráætlun ráðuneytisins um einföldun regluverks á þessum málefnasviðum sem ráðgert er að standi yfir fram á mitt ár 2021. Með frumvarpinu…Lesa meira

true

Skallagrímur sóttir sigur í Stykkishólm í gær

Snæfell tók á móti Skallagrími í Vesturlandsslag í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gær. Leikið var í Stykkishólmi. Skallagrímskonur höfðu betur og tóku stigin tvö og er þetta annar sigur liðsins í röð. Borgnesingar náðu snemma forystu í leiknum og gáfu hana ekki eftir og lokatölur 54-68 Skallagrímskonum í vil. Borgnesingar hoppa því upp…Lesa meira

true

Gera úttekt á virkjanakostum á Vesturlandi

Frá því var greint á heimasíðu Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í síðustu viku að gerður hafi verið samningur við Arnarlæk ehf. um úttekt á smávirkjanakostum á Vesturlandi. Arnarlækur tekur að sér að skoða og greina allt að 70 mögulega virkjanakosti í landshlutanum, þar sem sérstök áhersla verður lögð á virkjanir af stærðargráðunni 50kW til 10MW.…Lesa meira

true

Nýjar íbúðir á markað á Akranesi

Íbúðir í þremur nýjum fjölbýlishúsum á Akranesi voru settar í sölu í síðustu viku. Um er að ræða samtals 37 íbúðir í húsunum að Asparskógum 29, Dalbraut 4 og Stillholti 21. Íbúðirnar eru frá 73 fermetrum upp í 190 fermetrar að stærð, tveggja til fjögurra herbergja. Verðið er á bilinu 39 milljónir og upp í…Lesa meira

true

Laxveiði á Vesturlandi sú minnsta frá upphafi

Hafrannsóknastofnun hefur nú gefið út bráðabirgðatölur fyrir stangaveiddan lax sumarið 2019, en mikill samdráttur var í veiði á þessu ári. Veiðin nú á landsvísu var 16.500 löxum minni en á síðasta sumri. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var 28.800 fiskar, sem var sjöunda minnsta veiði sem skráð hefur verið frá árinu 1974 og sú minnsta frá 2000.…Lesa meira

true

Líf og fjör á Tæknimessu í FVA

Síðastliðinn fimmtudag fór Tæknimessa fram í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Hana sóttu nemendur elsta stigs grunnskólanna á Vesturlandi, nemendur 8.-10. bekkja, alls um 750 manna hópur ásamt kennurum. Nokkur fyrirtæki voru að auki og kynntu starfsemi sína og allar iðnbrautir í FVA voru með kynningar sem og afreksbraut skólans. Þá voru eldsmiðir fyrir utan skólann…Lesa meira

true

Haustfagnaður í Dölum framundan

Árlegur haustfagnaður Félags Sauðfjárbænda í Dalasýslu fer fram helgina 25. til 27. október næstkomandi. Um er að ræða uppskeruhátíð sauðfjárbænda í Dölum. Nokkur breyting verður á hátíðinni í ár þar sem ákveðið var að hvíla Íslandsmeistaramótið í rúningi en þess í stað verður meiri áhersla lögð á hrútasýningarnar. „Það eru nokkrar ástæður fyrir því að…Lesa meira