Fréttir

true

Skiluðu tillögum um starfsþróun kennara

Samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda skilaði á dögunum tillögum til Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra um framtíðarsýn fyrir starfsþróun kennara hér á landi. Tillögur þessar eru nýmæli þar sem ekki hefur legið fyrir sameiginleg framtíðarsýn á málefni starfsþróunar t.d. milli ólíkra skólastiga og rekstraraðila skóla. „Starfsþróun getur m.a. falið í sér formlegt nám og…Lesa meira

true

Lögð til breyting á hluthafasamkomulagi

Næstkomandi föstudag hefur verið boðað til fundur hluthafa í Menntaskóla Borgarfjarðar ehf. Á dagskrá fundarins eru breytingar á hluthafasamkomulagi og í kjölfar þess stjórnarkjör samkvæmt því. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr í haust hefur ríkt óánægja meðal fulltrúa meirihlutans í sveitarstjórn Borgarbyggðar að hafa ekki formann stjórnar menntaskólans, í ljósi þess að…Lesa meira

true

Þjóðararfur í þjóðareign

Vilhjálmur Bjarnason færði á dögunum Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra gjafabréf útgáfuréttar að sex binda útgáfu þjóðsagna Jóns Árnasonar sem fræðimennirnir Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson tóku saman og gáfu út á árunum 1954-1961. Þar er um að ræða aðra útgáfu sagnanna sem Jón Árnason safnaði og margir Íslendingar kannast við og er sú útgáfa…Lesa meira

true

Íbúafundur í Stykkishólmi í kvöld

Boðað hefur verið til íbúafundar með Acadian Seaplants í Stykkishólmi um fyrirhugaða rannsóknar-, öflunar- og þörungaverksmiðju þar í bæ. Fundurinn verður haldinn í Amtsbókasafninu í kvöld, þriðjudaginn 8. október, og hefst kl. 18:00. Stykkishólmsbær á nú í viðræðum við kanadíska fyrirtækið um framvindu í þessum málum. Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri mun setja fundinn en síðan…Lesa meira

true

Bæta aðgengi fólks að sérfræðilæknum

Verkefni sem Landspítali vinnur að og felst í þróun tæknilausna til að stuðla að bættu aðgengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu hlaut nýverið fimm milljóna króna styrk af byggðaáætlun Alþingis. Verkefnið snýr annars vegar að beinum samskiptum sjúklinga við sérfræðinga sjúkrahússins og hins vegar að þróun tæknilegra leiða til að skapa skilvirkan og öruggan farveg fyrir ráðgjöf…Lesa meira

true

Útkall að hrognavinnslufyrirtæki

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var á ellefta tímanum í kvöld kallað út vegna elds í Hrognavinnslu Vignis G Jónssonar við Smiðjuvelli 4 á Akranesi. Fljótlega kom í ljós að engin hætta var á ferðum og eldur var ekki laus. Reyk lagði hins vegar frá reykofni sem notaður er til matvælavinnslu. Störfum slökkviliðsmanna lauk því jafn…Lesa meira

true

Bjarni Sæmundsson í fjölþættum rannsóknaleiðangri

Um þessar mundir er rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson í 12 daga rannsóknaleiðangri í Arnarfirði og í Ísafjarðardjúpi. Samkvæmt frétt Hafrannsóknastofnunar er um borð unnið að mörgum og fjölbreyttum rannsóknaverkefnum og er gert ráð fyrir að teknar verði um 500 stöðvar með rækjuvörpu, sjótaka, botngreip, botnkjarnataka eða neðansjávarmyndavél. Í þessum leiðangri fer m.a. fram stofnmæling rækju, könnuð…Lesa meira

true

Stofnanir verði utan höfuðborgarsvæðis

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði á föstudaginn fram minnisblað á ríkisstjórnarfundi þar sem áréttað var mikilvægi þess að skoðað verði gaumgæfilega hvort að þær stofnanir sem ráðuneyti áformi að setja á laggirnar geti verið staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að móta og byggja upp öflugt og sterkt samfélag. „Ríkisstjórnin telur að…Lesa meira

true

Stórt tap á heimavelli

Snæfellingar máttu sætta sig við stórt tap gegn sterku Vestraliði, 64-114, þegar liðin mættust í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi á föstudagskvöld. Gestirnir frá Ísafirði náðu undirtökunum snemma leiks, leiddu 9-14 um miðjan fyrsta leikhluta, bættu síðan í og höfðu 13 stiga forystu að honum loknum, 31-18. Þeir settu…Lesa meira

true

Nýtt póstnúmer í Eyja- og Miklaholtshreppi

Frá 1. október síðastliðnum gerði Íslandspóstur þá breytingu að öll heimili í Eyja- og Miklaholtshreppi hafa nú fengið póstnúmerið 342 Stykkishólmur, í stað 311 Borgarnes áður. Verður póstdreifing í sveitina framvegis úr Stykkishólmi. Póstnúmerið 341 Stykkishólmur er fyrir Helgafellssveit.Lesa meira