Fréttir

true

Auglýsa styrki til lista og menningararfs

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki af safnliðum á sviði lista og menningararfs og stofnstyrki til íþrótta- og æskulýðsmála. „Veittir eru styrkir til annarra en ríkisaðila þ.e. félaga, samtaka eða einstaklinga vegna verkefna á árinu 2020 sem ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Umsóknarfrestur er til…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik

Skallagrímur mátti játa sig sigraðan gegn sterku liði Álftaness, 90-65, í fyrstu umferð 1. deildar karla í körfuknattleik. Leikið var á Álftanesi á föstudagskvöld. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks. Heimamenn leiddu snemma í fyrsta leikhluta, en Skallagrímsmenn komust yfir stutta stund áður en Álftnesingar tóku forystuna að nýju seint í leikhlutanum. Leiddu þeir…Lesa meira

true

Þyrla sótti slasaðan ökumann á Snæfellsnes

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Snæfellsnesvegi til móts við Eiðhús í Eyja- og Miklaholtshreppi um kl. 18:30 í gærkvöldi, með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. Ökumaðurinn var einn í bílnum þegar slysið varð. Sjúkrabíll og lögregla voru send á vettvang og í framhaldinu var þyrla Landhelgisgæslunnar send á…Lesa meira

true

Björgunarsveitir héldu landsæfingu í Snæfellsbæ

Um 450 manns tóku á laugardaginn þátt í landsæfingu björgunarsveita á Snæfellsnesi. Veðrið var ekki upp á sitt besta á laugardaginn, strekkingsvindur og rigning. Slíkar aðstæður eru reyndar oft þegar leit og björgun fólks á í hlut og því reyndi bæði á fólk og búnað. Á æfingunni tókst björgunarsveitafólk af öllu landinu á við 60…Lesa meira

true

Nýting námuréttinda verður færð á hendur sveitarfélaga

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 58/1998 um þjóðlendur verði lagt fram á Alþingi sem stjórnarfrumvarp. Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta að því að leyfi fyrir nýtingu náma og annarra jarðefna verði felld undir leyfisveitingarhlutverk sveitarfélaga en þurfi staðfestingu forsætisráðuneytisins. Einnig er í frumvarpnu…Lesa meira

true

Öryggi í skólum og reglur um fræðslu fyrir börn

„Stjórn og starfsfólk Heimilis og skóla lýsa yfir áhyggjum af aðgengi og öryggismálum skóla og eru tvö nýleg atvik tilefni þessa erindis,“ segir í tilkynningu. „Við skorum á mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélög landsins að taka þessi mál til gagngerrar endurskoðunar og setja viðmið þar að lútandi. Í byrjun september 2019 kom upp alvarlegt atvik…Lesa meira

true

Fjögurra ára fangelsi fyrir hnífstunguárás

Héraðsdómur Vesturlands tók í apríl síðastliðnum fyrir mál sem höfðað var gegn konu á Akranesi sem grunuð var um tilraun til manndráps í nóvember á síðasta ári. Konunni var gefið að sök að hafa stungið tengdason sinn með hnífi í brjóstkassa. Dómur Héraðsdóms Vesturlands var birtur síðastliðinn föstudag og var birtur í kjölfar þess að…Lesa meira

true

Segir viðskiptabankana ekki skila stýrivaxtalækkunum

Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og varaforseti Alþýðusambands Íslands segir það dapurlegt að viðskiptabankarnir þrír hafi ekki viljað skila þeirri miklu stýrivaxtalækkun sem Seðlabankinn hefur hrint í framkvæmd eftir að lífskjarasamningurinn var undirritaður. „Rétt er að vekja sérstaka athygli á því að ein af aðalforsendum lífskjarasamningsins var að stýrivextir myndu lækka umtalsvert og að sú vaxtalækkun…Lesa meira

true

Lýsa vantrausti á skólameistara FVA

Síðastliðinn föstudag var Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra afhentur listi með nöfnum 38 af 46 kennara við Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem þeir lýsa vantrausti á Ágústu Elínu Ingþórsdóttur skólameistara. Átelja þeir stjórnunarhætti skólameistara og framkomu hennar við undirmenn. Yfirlýsing kennaranna er svohljóðandi: „Undirritaður kennarar við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, FVA, lýsa yfir vantrausti á núverandi skólameistara FVA,…Lesa meira

true

Fögnuðu platinum brúðkaupsafmæli sínu

Hjónin Kristján Ásgeirsson og Ólöf Hjartardóttir fögnuðu síðastliðinn mánudag 70 ára brúðkaupsafmæli. Slíkt kallast platinum brúðkaup og áfangi sem fári hafa náð hér á landi. Kristján og Ólöf eru búsett á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða á Akranesi og þau ætluðu sjálf bara að láta daginn líða án þess að minnast á þennan áfanga við aðra.…Lesa meira