
Ekki er lengur þörf á að neytendur vatns úr vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni í Norðurárdal sjóði vatnið. „Endurtekin sýnataka leiddi í ljós að ekki er e-coli mengun í neysluvatninu. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands telur því ekki lengur þörf á að sjóða vatnið,” segir í tilkynningu. Veitusvæðið sem vatnsbólið í Grábrókarhrauni þjónar nær til Borgarness, Bifrastar og Varmalands…Lesa meira







